Vikan - 16.03.1972, Blaðsíða 50
STORT
PÁSKABLAB
KONA UM BORÐ
Framháld af bls. 22.
og ég náðum samtímis til Que-
rols og beygðum okkur yfir
hann. Hann var náfölur. Eg
losaði um skyrtuna hans og
varð dauðskelkaður, þegar ég
sá hve mikið blæddi. Skotsár-
ið var verra en ég hafði búizt
við og hann hafði látið uppi.
Hann hlaut að hafa fundið mik-
ið til, en harkað af sér, þegar
hann hélt sér uppi og stjórn-
aði því sem hann gat. Hann
opnaði aðeins augun. reyndi
að segja eitthvað. en svo missti
hann meðvitundina.
Og Jonathan hló.
Þar brást honum bogalistin.
Það var hann sem var orsök að
því að Querol lá þarna með-
vitundarlaus og hann hló. Ég
þaut upp og réðist á hann. Ég
sló hann með hnefunum, greip
aðra hækjuna og barði hann í
fótleggina, þangað til hann
emjaði af sársauka.
— Langar þig til að deyja!
hvæsti ég. — Segðu mér hvað
þú gerðir um borð í Conven-
ant!
— Ekkert, stundi hann.
Ég lyfti hækjunni aftur og
í þetta sinn sló ég hann í brjóst-
ið. É’g sá hræðsluna í augum
hans, en ég hefði getað haldið
áfram að berja hann í það
óendanlega, ef hann hefði ekki
rétt fram hendurnar og volað.
— Ég skal! Ég skal segja þér
það!
Svo hvíslaði hann: — Gas.
Ég opnaði gaskranann.
Gas. Hann hafði haft tíu
sekúndur, en það var nógur
tími til að skrúfa frá krana.
Samt var ég nokkuð von-
góður.
— Þau hljóta að finna lykt-
ina, sagði ég.
— Nei, það var ég sem
KLIPPIÐ HÉR
Pöntunarseðill
Vinsamlegast sendið mér sniðið, sem ég krossa framan við, ( þv( númeri, sem
ég tilgreini. Greiðsla fylgir með í áv(sun/póstáv(sun/frímerkjum (strikið yfir
það sem ekki á við).
Nr. 56 (9537) Stærðin á að vera nr.
Nafn
Heimili
Vlkan - Sfimplieíty
-------------------------------KLIPPIÐ HÉR
byggði bátinn. Það var ég sem
stóð fyrir öllum útbúnaði.
Þetta er lyktarlaust gas.
— Það er útilokað! öskraði
ég, viti mínu fjær.
— Það er sáralítil lykt af
því. Svo lítil að enginn finnur
hana. Það þarf aðeins lítinn
neista og þá springur Conven-
ant í loft upp.
Ég gat ímyndað mér hvern-
ig það skeði. Þau höfðu verið
uppi á þilfari, þegar þau fóru
frá bryggjunni. En bráðlega
myndi Jacky fara niður til að
hita kaffi. Hún myndi kveikja
á eldspýtu . . .
Framhald í næsta blaði.
50 VIKAN ll.TBL.