Vikan


Vikan - 31.08.1972, Qupperneq 3

Vikan - 31.08.1972, Qupperneq 3
35. tbl. - 31. ágúst 1972 - 34. árgangur Fyrsti íslendingur- inn sem keppti á Olympíu- leikum TjaldaS í regni á Akureyri Fyrsti íslendingurinn, sem keppti á Olympíuleikum, var Jóhannes á Borg. Hann keppti í grísk-rómverskri glímu í London 1908, og hefði ugglaust náð langt, ef hann hefði ekki meiðzt í keppninni. Sjá grein á bls. 28. Jónas Guðmundsson stýrimaður brá sér norður á Akureyri í sumarleyfinu og tjaldaði þar í grenj- andi rigningu. Hann segir frá þessari reynslu sinni í léttum dúr i grein á bls. 18. Hann bauS Stalín byrginn Tito var aðeins fátækur bóndasonur, en tókst að komast til æðstu valda með þjóð sinni. Hann var einn af örfáum, sem bauð sjálfum höfuðóvininum, Stalin, byrginn. Greina- flokkur um Tito hefst á bls. 8. KÆRI LESANDI! Smásagan er að þessu sinni eftir franska rithöfundinn Guy de Maupassant, sem talinn er meðal snjöllustu smásagnahöf- unda, er uppi hafa verið, og oft er nefndur faðir nútímasmásög- unnar. 1 þessari ...skemmtilegu sögu skopast hann að lauslæti, brellum og ótryggð kvenna, en það gerði liann oft í sögum sín- um. Maupassant kvæntist aldrei, en átti hverja ástmeyna á fætur ann- arri. Hann var eftirsóttur af kven- fólki og varð stundum að flýja Parísarborg til þess að geta unn- ið. Fæst af þessum ástarævintýr- um áttu sér djúpar rætur. En ef marka má vini hans, kom þó sá dagur, að liann kynntist konu, sem hann vildi eiga, en tókst ekki að vinna ástir hennar. Her- bergisþjónn hans nefnir hana ekki með nafni í dagbók sinni, heldur kallar liana aðeins grá- klæddu konuna. Hann lýsir strjál- um heimsóknum hennar til Mau- passants og sorg hans, eftir að hún yfirgaf hann. Maupassant varð ekki tanglíf- ur. Rúmlega tvítugur að aldri sýktist hann af sárasótt, sem þá var að mestu leyti ólæknandi. Fyrst voru þjáningarnar aðal- lega líkamlegar, en síðar lagðist sjúkdómurinn á heilann og taug- arnar. Hann lézt á geðveikrahæli aðeins 'iö ára gamall. EFNISYFIRLIT GREINAR BLS. Bóndasonurinn, sem bauð Stalín byrginn, fyrsta grein um Tito, forseta Júgóslavíu 8 Tjaldað í regni á Akureyri, grein eftir Jónas Guðmundsson, stýrimann 18 Ráðgátan um morðið á Ullu Höglund, frá- sögn af sænsku afbrotamáli, þar sem Island kemur við sögu 20 Þýzkir Olympíuleikar í annað sinn, grein um Olympíuleikana i Miinchen 26 Þegar íslendingar neituðu að ganga inn á Olympíuleikvanginn, frásögn af fyrstu þátt- töku Islendinga í Olympíuleikunum eftir Pétur Haraldsson 28 SÖGUR Frjáls, smásaga eftir Guy de Maupassant, myndskreyting: Sigurþór Jakobsson 12 Þegar myrkrið skellur á, stutt framhaldssaga eftir Mary Kay Simmons, fyrri hluti 16 Konan í snörunni, framhaldssaga, annar hl. 14 Blómkálsréttir í Eldhúsi Vikunnar, umsjón: Dröfn H. Farestveit, húsmæðrakennari 24 FASTIR ÞÆTTIR Pósturinn 4 Siðan siðast 6 í fullri alvöru 7 Mig dreymdi 7 Heyra má 32 Myndasögur 44, 47, 49 Stjörnuspá 45 Krossgáta 50 FORSÍÐAN Hinn glæsilegi Olympíuleikvangur í Miinchen. Sjá greinar á bls. 26—30. VIKAN Útgefandi: Hilmir hf. Ritstjóri: Gylfi Gröndal. Blaðamenn: Dagur Þorleifsson og Matt- hildur Edwald. Útlitsteikning: Sigurþór Jakobs- son. Auglýsingastjórar: Sigríður Þorvaldsdóttir og Sigríður Olafsdóttir. — Ritstjórn, auglýsingar, afgreiðsla og dreifing: Síðumúla 12. Símar: 35320 - 35323. Pósthólf 533. Verð í lausasölu kr. 60,00. Áskriftarverð er 575 kr. fyrir 13 tölu- blöð ársf jórðungslega eða 1100 kr. fyrir 26 blöð misserislega. Áskriftarverðið greiðist fyrir- fram. Gjalddagar eru: nóvember, febrúar, maí og ágúst. 35. TBL. VIKAN 3

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.