Vikan - 31.08.1972, Qupperneq 6
FÁLKARí
FLUGVALLARGÆZLU
Fuglar, sem halda sig í námunda við
flugvelli og flugbrautir, hafa oft vald-
ið miklu tjóni á flugvélum, þegar þeir
fljúga á móti þeim og fara í hreyfla
og mótora. Hefur meira að segja kveð-
ið svo rammt að þessu, að langir fund-
ir og stór þing hafa verið haldin til
að ræða þetta alvarlega vandamál, sem
er með þeim stærri er flugiðnaðurinn
á við að glíma. Ekki þarf nema einn
fugl inn í flugmótorinn, svo nauðsyn-
legt sé að rífa hann allan úr og þarf
ekki að fara fleiri orðum um allan
þann kostnað og fyrirhöfn.
Margar aðferðir hafa verið reyndar
til að vinna bug á þessu vandamáli
og má til dæmis nefna, að á Kastrup-
flugvelli í Kaupmannahöfn hefur ver-
ið komið fyrir hátalarakerfi, sem send-
ir frá sér mávagarg í aðvörunartón
áður en flugvélar lenda þar, ef mikið
er um máva á flugvellinum í það og
það skiptið. En það, sem ætlar að reyn-
ast hvað bezt, er í notkun og tilraun-
um í Bandaríkjunum. Þar eru nefni-
lega notaðir fálkar við sex herflugvelli.
Tilraunum þessum er stjórnað af 31
árs gömlum hermanni, David Horse-
field, sem ásamt tveimur aðstoðar-
mönnum sínum og 48 fálkum hreinsar
flugvellina af öllum mávum og öðrum
fuglum. Fálkarnir gera hreint á nokkr-
um mínútum og óhöppum af völdum
fugla hefur stórlega fækkað.
ROLLS MEÐ
FLUGVÉLAMÖTOR
Englendingurinn John Dodd á senni-
legast einn af heimsins merkilegustu
—■ og dýrustu — bílum. í honum er
1800 hestafla vél, sem Dodd keypti úr
Spitfire-orrustuflugvél. Dodd keypti
sér ennfremur vélarlausan Rolls-Royce
Merlin V 12 og gaf fyrir allt saman
rúmlega eina milljón íslenzkra króna.
En hann var ekki ánægður fyrr en
hann hafði fengið einn þekktasta bíla-
smið Bretlands til að smíða sérstök
grill, grindur og sitthvað fleira sem
við þekkjum ekki nánari deili á, og
allt var það úr fíbergleri. Silfur er
einnig hér og þar á bílnum en Dodd
neitar að selja, þrátt fyrir að Banda-
ríkjamaður nokkur hafi boðið honum
andvirði 10 milljóna íslenzkra fyrir
drossíuna góðu.
AFRiKA KAUPIR LJÚN
I EVRÖPU!
Ljónabyggðir Afríku eru nú á góðri
leið með að verða að engu. í eina tíð
voru á hverju ári flutt til Evrópu og
Ameríku mörg ljón til augnayndis fjöl-
skyldufeðrum og börnum í ýmsum
dýragörðum, en nú er öldin önnur. Nú
reyna Afríkumenn að fá keypt ljón frá
Evrópu, því nóg er af Ijónum í svo til
öllum dýragörðum álfunnar. Og ný-
lega voru fluttir 10 ljónsungar frá
frönskum dýragarði til Senegal, þar
sem vonazt er til að aðkomnu dýrin
pari sig við þau, sem fyrir eru. Mynd-
in er tekin á Orly-flugvelli við París
þegar farið var með ljónsungana og er
sá „litli" heldur betur montinn. Úr
svip hans má kannski lesa: „Africa!
Here I come!“
ENN EIN DRAPSVÉL
Það nýjasta á drápsvélamarkaðinum,
sem opinn er að nokkru leyti fyrir al-
menning, er bandarísk maskína,
sem er þeim kostum búin að hafa sjón-
varpsmyndavél í nefinu, og geta þann-
ig „yfirboðarar" hennar fylgzt með því
að hún nái marki sínu og eins hefur
verið komið fyrir í heila vélarinnar
mynd af skotmarkinu. Eru sagðar nær
100% líkur til að maskínan nái alltaf
að framfylgja marki sínu. Þessi vél,
svo hugvitsamleg í smíði, var fram-
leidd hjá Huges Aircraft í Tucson,
Arizona; hjá sjálfum Howard Hughes,
og er nú verið að reyna hana í Viet-
nam. Þar í landi býr nefnilega mikið
af tilraunadýrum, en mörg þeirra eru
að vísu dauð, svo og land þeirra.
Mikill munur væri, ef hægt væri að
búa til vél með sjónvarpsmyndavél,
sem útskýrði hvar fólk væri soltið og
þar með færi önnur maskína af stað
með mat. En líf þeirra svöngu og
hrjáðu er varla til annars en að murka
það úr þeim sem fengu það svo bölv-
anlega í vöggugjöf — eða hvað?
6 VIKAN 35. TBL.