Vikan


Vikan - 31.08.1972, Side 15

Vikan - 31.08.1972, Side 15
FRAMHALDSSAGA EFTIR BRUCE GRAEME ANNAR HLUTI Læknirinn yppti öxlum: — Eftir þvi sem ég bezt veit hafði hann aldrei séð hana fyrr en hún kom til dvalar hjá húsbónda hans fyrir um það bil sex vikum. En það gat hver maður séð, að hann var hrifinn af henni. Englandi, og var talinn einhver efnilegasti ungur læknir, sem þá var uppi. — Hvaö kom fyrir hann? Eitt- hvert hneyksli i samband við ein- hvern sjúkling? — Ekki var það nú, enda þótt þaö sé algengast þegar svona kemur fyrir. Sem sagt, veit ég ekki annað en það, sem almanna- rómurinn sagði þá, að einhver sjúklingur hans heföi dáið með grunsamlegum atvikum. ,Hvað sem þvi liður, þá gat félagi hans, sem'ivar voldugur maður, þaggað þettáf niður, svo að ekki varð úr neitt opinbert hneyksli. En Part- ington gekk úr félagsskapnum og kom sér burt. Og siðan hefur hann forðazt doktorstitilinn og annað það, sem minnir á læknis- starfssemi hans. — Hann hefur þá ekki grætt fé sitt á lækningum? — Nei, og það gera heldur ekki margir. Venjulegur læknir getur taliö sig sælan, ef hann hefur al- mennilega ofan i sig að éta, nú á dögum. fig veit annars ekki, hvaðan Partington koma pen- ingar, þó býst ég við, að hann hafi erft einhvern rikan ættingja. Að minnsta kosti keypti hann Quarley Hall fyrir nokkrum árum, og auk þess á hann hús i London. — Dvelur hann þá nokkurntima þar? — Ekki svo ég viti, en hann fer þangað einu sinni eða tvisvar á viku. Eins og ég sagði áðan, held ég, að hann sé með lausa skrúfu. Hann heldur þvi fram, að ekki sé hægt að lækna likama manna, nema með sálrænum áhrifum, og hann hefur talsverðan hóp áhang- enda, sem hann kemur saman með i húsi sinu i London. Og i raun og veru eru þetta sjúklingar hans, enda þótt hann vilji ekki láta kalla þá þvi nafni. — Já, ég býst við, að þetta standi i sambandi við þessar ein- kennilegu tilraunir hans, sagði fulltrúinn. — Ég er nú ekki mikið inni i visindarannsóknum, en ég hef aldrei heyrt getið um neinar tilraunir, sem ekki er hægt að framkvæma nema i kolamyrkri og klukkan fjögur á morgnana. — Já, það er óneitanlega skrýtiö. En hinu rpegið þér trúa, að þó Partington sé kannski ein- kennilegur, er hann óvenju gáfaður maður. Og hann leggur enga áherzlu á að gera tilraunir sinar neitt dularfullar. Annars veit ég, fyrir tilviljun, hvað hann er að rannsaka. Hann hefur sett ftam þá kenningu, að hugsanir manna framleiði vissar sveiflur, rétt eins og rafmagnssveiflur, og hann er að reyna að búa til áhald, likt og útvarpshljóönema, sem getur skrifað niður þessar sveiflur. fig veit vitanlega ekki, hvers virði þessi kenning hans kann að vera, en hann ver öllum tlma sinum I þessar tilraunir. Fulltrúinn hló. — Þetta er fyrir utan og ofan minn skilning, hvað sem öðru liður, sagði hann. — Jæja, þakka þér kærlega fyrir hressinguna, læknir — ég hejfl helzt, að hún hafi bjargað lifi minu. Nei, ekki meira, þakka þér fyrir. Það er timi til kominn að fara að komast heim til Wald- hurst. 4. kafli. Viku siöar, eða nákvæmlega til tekið, að morgni hins 11. júli, var Holley lögregluþjónn, sem hafði stöð I þorpinu Moreby, um fimm milur frá Waldhurst, að eta morgunverðinn sinn. Hann hafði verið á verði til miðnættis nóttina áður og var nú að hlaktK til þess að geta verið eina "éða tvær klukkustundir i garðinum siniTm. Hinn gifurlegi hite, sem hafði verið undanfarið, var nú liðinn hjá, og indælasta sumarveður komið i staðinn, svo að Holley ætlaöi að nota tækifærið og vinna dálitið I garðinum. En garðyrkjuhugleiðingar hans urðu fyrir truflun, er hann heyrði fótatak nálgast. Aður en hann gæti athugað þetta nánar, var hurðinni hrundið upp og roskin kona kom þjótandi inn i stofuna og hneig orðalaust niður á auðan stól. Holley stökk á fætur og starþi á hana, án þess að vita, hvaðan á Framhald á bls. 34. 35. TBL. VIKAN 15

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.