Vikan


Vikan - 14.09.1972, Blaðsíða 6

Vikan - 14.09.1972, Blaðsíða 6
Hverju sinni sem einhver þota banda- ríska flughersins rýfur hljóðmúrinn yfir þjóðgarðinum US Park í Utah, þjóta garðverðirnir af stað til að sjá, hvort nokkurt tjón hafi orðið á stein- boga einum miklum gerðum af nátt- úrunnar höndum, sem er mesta dýr- indi garðsins. Steinbogi þessi er hundr- að metra að þvermáli og frægastur slíkra boga í öllum heimi. Þegar þoturnar brjótast gegnum hljóðmúrinn, gera þær það með óhemju brestum og blæstri, svo að líkja má við sprengingar. Hefur þetta marg- sinnis valdið skaða, þegar lágt hefur verið flogið. Boginn sem hér um ræð- ir má ekki við miklu, svo að garð-, verðirnir hafa af honum þungar áhyggjur. Þeir fullyrða að flugmenn- irnir hegði sér af ábyrgðarleysi og glannaskap og leiki sér að því að fljúga sem lægst, rétt eins og þeir séu að reyna að brjóta niður bogann. Annar staður, sem flugherinn hefur mjög notað til æfinga, er Dauðadalurinn frægi í Kaliforníu, en botn hans er hundrað metra undir sjávarmáli og beggja vegna fjöll upp í þrjú þúsund metra hæð. Þarna eru flugmennirnir vanir að steypa sér niður í allt að tíu metra hæð yfir jörðu. í fyrra hleyptu þotubrestir af stað miklum skriðuföllum, sem eyðilögðu þúsund ára gamlar rústir Indíánabygginga í Canyon de Chelly í Arizona. AFGÖMUL BARNFÖSTRA Elzti borgari Taílands, sem kunnugt er um, er Tongsúk Namkaeó til heimilis í þorpinu Sí Sjang Maí bei Nong Kaí í norðurhluta landsins. Hann fullyrðir sjálfur að hann sé hundrað þrjátíu og sjö ára að aldri, og hefur enginn getað afsannað það ennþá. Og ýmislegt mælir með því að karl segi satt til. Pó Tú, eða Tú afi, eins og hann er kallaður, hefur séð á bak í gröfina tveimur eiginkonum og á nú dálagleg- an hóp afkomenda: ellefu börn, fimm- tíu barnabörn og fjörutíu og sjö barna- barnabörn. Elzt barna hans er dóttir að nafni Fúang, nú áttatíu og fimm ára, en það yngsta er fjörutíu og sex ára gamall sonur. Tongsúk var annar í röðinni af tíu barna hópi fátæks bónda í Súrat-Tani í suðurhluta Taílands. Foreldrar hans, sem og systkini, eru auðvitað löngu dáin. Móðir hans náði þó hundrað þrjátíu og tveggja ára aldri. STRÍÐSÞOTUR VALDA NÁTTÚRUSPJÖLLUM Steinboginn mikli, sem óttast er aS þot- urnar blási um koll. Náttúruverndarmönn- um er mjög uppsigað við þessi tæki, en flugherinn segist hins vegar ekki eiga ann- ars kost en æfa liðsmenn sína og maskínur yfir strjálbýlum svæðum. Þúsund ára gamlar rústir Indíánabygginga, sem lentu undir skriðuföllum, er þotu- brestir komu af stað. SfoAN SfoAST Tongsúk var lengi öldungur eða odd- viti í þorpi sínu, og enn er hann ern vel og fylgist með því sem er að ger- ast í landinu, sem og á erlendum vett- vangi. Hann er sextíu kílóa þungur og hundrað sjötíu og tveir sentimetrar á hæð. Hann segir bezta ráðið til að ná svo háum aldri sé að bera ekki of þungar áhyggjur af morgundeginum, láta sér ekki leiðast og vera alltaf ánægður. Nú hefur hann fyrst og fremst fyrir stafni að gæta barna og barnabarna, og má skilja að það sé ærið starf fyrir jafn roskinn mann. Dr. Peter Kreisky, sonur Austurríkiskansl- ara. Myndin er tekin þegar hann tók þátt í mótmælaaðgerðum gegn Nixon, er hann var í opinberri heimsókn til föður hans. ÖLÍKT HÖFÐUST ÞEIR AÐ Nýlega kom Nixon Bandaríkjaforseti í opinbera heimsókn til Austurríkis og hafði ágætar viðtökur af forsætisráð- herra landsins, sem Kreisky heit-ir. En ekki voru allir Austurríkismenn jafn hrifnir af gestinum. og kom til svæs- inna mótmælaaðgerða, þar sem látin var í ljós andúð á hernaði Bandaríkj- anna í Víetnam. Og einn þeirra, sem þar var fremstur í flokki, var enginn annar en sonur forsætisráðherrans eða sambandskanslara, eins og það heit- ir þar í landi. Sá heitir Peter Krei- sky, tuttugu og átta ára og læknir að mennt og starfi. Einhverjir hafa orðið til að hneyksl- ast á þessu og segja að kanslarinn hafi alið strákinn illa upp. Kreisky kansl- ari hefur tekið því öllu létt og segir að pólitískar skoðanir sonarins og hegð- un samkvæmt þeim sé hans einkamál. Frjálslyndi af þessu tagi er annars ekki nýmæli í þýzka heiminum; þannig demonstreraði sonur Willys Brandts fyrir fáeinum árum af miklum móði gegn Nató-stefnu föður síns, sem þá var utanríkisráðherra Vestur-Þýzka- lands. Bar strákur þá járnkross úr síðari heimsstyrjöld á berri bringunni að hippasið. En Brandt sagði það sama og Kreisky nú: sonur minn ræður sjálfur sírrum pólitísku athöfnum, ekki I síður en ég mínum.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.