Vikan


Vikan - 14.09.1972, Blaðsíða 30

Vikan - 14.09.1972, Blaðsíða 30
RENSJÖHOLM Hvorki þér né Ajax þurfið sjálfvirka þvottavél til að fá gegnhreinan, hvítan þvott því Ajax er sjálft sjálfvirkt Ajax er blandað efnakljúfum og því óháð orku þvottavéla Með Ajax - efnakljúfum verður Þvotturinn gegnhreinn og blæfallegur. Ajax er gætt sjálfvirkri Þvottaorku og hreinsimætti, sem óhreinindin fá ekki staðizt. Ajax er kjörefnið í stórÞvottinn - gerir hverja flik leiftrandi hvíta. Ajax er íika tilvalið í fínni Þvotta, t. d. orlon og nælon, sem gulna Þá ekki. Ajax er rétta efnið, ef leggja Þarf í bleyti, og við forÞvott. Notið Þá Ajax og horfið á óhreinindin hverfa. Framhald af bls. 19. ég vona að við tvö getum hjálpast að .... En kennarinn ... hugsaði ég. Skilur hann ekki heldur dreng- inn? — Það getur tekið tima að kynnast honum og ég vara yður við, hann getur orðið erfiður til að byrja með, hélt hann áfram. — Hann var ákaflega mótfallinn þvi að fá hjúkrunarkonu. En það er nauðsynlegt. Ég vona, systir, að þér hafið þolinmæði með honum, meðan hann er að venjast þvi. — Það get ég örugglega, svar- aði ég. — Ég á sjálf tvo yngri bræður og mér þykir vænt um börn. Hann brosti vingjarnlega. — Þetta verður allt i lagi. En nú viljiö þér sjálfsagt kom yður fyrir og hvila yður eftir ferðina. Ég skal hringja á frú Mattson. Ég ætlaði að fara fram í forsal- inn og biða þar, en hann stöðvaði mig. —Það er eitt ennþá, systir. Ég held að Claes verði auðveldari viðureignar ef þér eruð i venju- legum fötum, ekki hjúkrunarbún- ingi. Þessir hvitu búningar geta verið nokkuð kuldalegir ... Já, frú Mattson, systir Malin vill gjarnan sjá herbergið sitt núna. Ég fylgdi á eftir ráðskonunni upp breiðan hringstigann. Hér voru sannarlega engin brakandr þrep! Ráðskonan sagði ekki neitt og ég hugleiddi samtal mitt og doktorsins. Áhrifin voru nokkuð blandin, það var greinilega eitt- hvað meira en lítið undarlegt við þennandreng. Það var mér ljóst, þegar afi hans talStði við mig, þótt hann væri ekki eins opinskár og Klemens sonur hans. Herbergið mitt var i annarri hliðarálmunni á næstu hæð og á leiðinni hugsaði ég að þetta væri sannarlega höll en ekki hús. En þvilik höll, það var ekki amalegt fytir barn að alast hér upp! Bræður minir hefðu þegið það á Claes -aldri. Þeir hefðu heldur ekki verið hrifnir af þvi aðfá unga stúlku til að annast sig. Frú Mattson benti mér á aðrar dyr. — Þetta er herbergi drengs- ins, doktor Renfeldt vildi að systir hefði herbergið við hliðina á honum. Ég elti hana inn á mitt her- bergi. Ég staðnæmdisi á þrösk- uldinum, þetta var ekki herbergi, þetta var salur. Stofuhæðin i hús- inu okkar hefði komizt þarna fyrir. Fyrir utan rúmið, var her- bergið búið stofuhúsgögnum. — Baðherbergið er þarna. Hún benti ,á dyr. — Ég held þér finnið þar ailt sem þér þarfnist. Ef yður vantar eitthvað, þá skuluð þér bara hringja. Maturinn verður tilbúinn klukkan sjö, doktorinn vill að þér boröið með fjölskyld- unni. 30 VIKAN 37.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.