Vikan - 14.09.1972, Page 51
Vorið 1920 lágu þeir Knud Ras-
mussen Grænfaldsfari og Peter
Freuchen landkönnuður og rithöf-
undur á skipi sínu „Disko“ í God-
havn á Grænlandi.
Fengu þeir þá heimsókn af Græn-
lendingnum Karl Thygesen, sem
var dönskumælandi.
Hann tjáði þeim félögunum að
hann mundi heimsækja Danmörku
þá um sumarið.
„Þá verður þú að koma til mín
út til Hundested,“ sagði Rasmussen,
„og þá skait þú fá þrjá daga, sem
þú munt aldrei gleyma."
„Komdu því næst til mín út á
Emehöje,“ sagði Peter Freuchen, „og
þú skalt fá hjá mér þrjá daga, sem
þú aldrei getur munað eftir!“
OoO
Ungur maður í einkennisbúningi
Hjálpræðishersins var á leiðinni til
Innvernes, sem er neðarlega í Skot-
landi. Á móti honum í klefanum sat
gamall Háskoti, er horfði á hinn
unga hermann forvitnum augum. —
Loks stóðst sá gamli ekki mátið og
spurði:
„Hvaða herdeild tilheyrir þú,
ungi maður, ég minnist ekki að hafa
séð þennan einkennisbúning fyrr.“
„Ég er í Hjálpræðishernum,"
sagði ungi maðurinn, „og er á leið
til Innvernes til að berjast við
djöfulinn. —- Því næst berst ég við
hann í Aberdeen, svo í Edinborg og
svo áfram.“
„Þetta líkar mér,“ hrópaði gamli
Skotinn og lyfti sér í sætinu. „Bara
hrektu djöfulinn suður á bóginn -—
en skildu ekki við hann fyrr en
hann er kominn alla leið yfir til
Englands!"
OoO
Fjórir Skotar og einn íri fóru eitt
sinn í skemmtireisu til Parísar. Þeir
fengu sér hressingu á einum af hin-
um mörgu útiveitingahúsum. Allt í
einu segir einn Skotinn: — Ég borga
allt saman. Félagarnir urðu undr-
andi, en daginn eftir stóð í Parísar-
blöðunum:
„Hörku slagsmál! Ofsareiður Skoti
réðist með barsmíð á írskan búk-
talara.“
VÍSIR flytur nýjar fréttir. Vísiskrakkarnir bjóða ]
fréttir sem skrifaðar yoru 2 'á klukkustund fyrr.
VÍSIR fer í prentun kl. hálf-ellefu að morgni