Vikan


Vikan - 28.09.1972, Page 5

Vikan - 28.09.1972, Page 5
Verið viðbúin þvi að þurfa að ieggja dálítið á ykkur til að ást- in haldist jafn heit og hún er nú. En ef þið vandið ykkur, eig- ið þið fyrir höndum hamingju- rika sambúð. Skriftin gefur til kynna jákvæða afstöðu til lifs- ins og hæfileika til að njóta þess einfalda og smáa, sem það býð- ur upp á. Freknótt Kæri Póstur! Ég er 15 ára og freknótt, svo um munar. Geturðu gefið mér eitthvert óbrigðult ráð til að losna við þær? — Hvernig er skriftin, o ghvað lestu úr henni? Ráðalaus. Við þekkjum ekkert óbrigðult ráð til að losna við freknur. Bezta ráðið, sem við getum gef- ið þér, er að sætta þig við frekn- urnar og leggja rækt við annað i útliti þinu, sem kann að vekja aðdáun og auka sjálfstraust þitt. Auk þess líta fæstir á freknur sem útlitsgalla, þótt freknóttu fólki sé iðulega strítt á þvi. — Skriftin er bara skemmtileg, og við getum ómögulega lesið út úr henni, að þú sért ráðalaus! Lítil brjóst Pussý, Birgitta og fleiri og fleiri hafa skrifað Póstinum og rekið upp harmakvein út af litlum brjóstum og beðið um ráð til að „láta þau stækka". Heldur fer lítið fyrir kunnáttu okkar i þeim efnum, en við vitum til þess, að læknar reyna eitthvað að hjálpa, sé ástandið i raun og veru slæmt. Einnig luma sérfræðingar í líkamsrækt á æfingum, sér- staklega gerðum til að þjálfa og stækka brjóstvöðvana. Svar til Bjargar Reyndu að taka aðfinnslum hans létt, snúðu þeim upp i grin og reyndu að afvopna hann með gamansömum athugasemdum, án þess þó að særa hann. Áreið- anlega er honum ekki sama um þig, en hann á greinilega til nokkra stirfni i umgengni. Kann- ski hefði hann gott af þvi að þurfa einu sinni að bíða svolitið eftir því, að þú komir upp í fangið á honum. Okkur sýnist bæði á skriftinni og orðalagi öllu, að þú sért vönduð og góð stúlka, sem telur heiðarleika og samvizkusemi til mestu dyggða. Steingeitin og Vogin geta átt prýðilega saman, en til þess að svo megi verða, þurfa báðir að- ilar að vanda sig. Svar til einnar spurular Ef þú getur nálgast 46. tbl. 1970 af Vikunni, en þar er grein um Fóstruskólann, sem m. a. segir okkur, að umsækjendur þurfi að vera 18 ára með gagnfræðapróf, landspróf eða sambærilega menntun, og þar er ýmislegt sagt um tilhögun námsins, sem tekur 3 vetur og eitt sumar. — Frekari upplýsingar færðu hjá Fóstruskólanum, Lækjargötu 14 b, síma 21688, og skólastjóri er Valborg Sigurðardóttir. Andstæðingar Emils Hr. ritstjóri Vikunnar! Eftir að hafa með athygli lesið ræðu séra Emils Björnssonar í Vikunni nýlega, langar mig mjög til að kynnast fleiri við- horfum í þessum málum, og þá sérstaklega þeirra, sem teljast mættu andstæðingar þeirrar túlkunar, sem séra Emil setti fram. Væri því vel þegið, að Vikan birti ræðu einhvers trúaða prests- ins, eins og þeir eru kallaðir, svo að maður geti einnig áttað sig á skoðunum þeirra, sem eru á öndverðum meiði. Væri þetta mögulegt? Með vinsemd og virðingu og þökk fyrir fróðleik og skemmt- un. Ahugasamur lesandi. Pósturinn hefur orðið var við, að ræða séra Emils hefur vakið athygli. Áhugi á trúmálum er enn geysimikill, og við skorum á andstæðinga Emils að láta nú frá sér heyra. SKBIFVÉLIN Box 1232 Suðurlandsbraut 12 Reykjavík, sími 19651 =.Cánon * M CANON er mest selda rafeinda-reiknivélin á íslandi í dag. Sendum myndir og verð, eftir beiðni, hvert á land sem er. RAFTORG SÍMi: 26660 RAFIÐJAN SÍMi: 19294 39. TBL. VIKAN 5

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.