Vikan


Vikan - 28.09.1972, Blaðsíða 48

Vikan - 28.09.1972, Blaðsíða 48
UNESCO 1872 ALÞJðÐLEGT BÚKAAR ÚTVEGUM ALLARv FÁANLEGAR BÆKUR SÍMAR 14281 13133 11936 Bókaverzlnn SNÆBJARNAR Hafnarstræti henni og hann stækkaði hana stöðugt. Lífsskilyrðum hans lýstu kannski hvað bezt þeir tuttugu og sex blaðamenn japanskir, sem skoðuðu hellinn tuttugasta og áttunda janúar síðastliðinn. Kó Tóda, blaðamaður hjá Asa- hi Sjimbún, segir svo frá: — Það tók okkur heilan sól- arhring að fá leyfi til ferðar- innar. Bandaríski herinn hafði girt af allt svæðið og lýst það „sérstaklega hættulegt“. Þar væri allt morandi í jarðsprengj- um, sem japanski herinn hefði skilið eftir. Flokkur sprengju- leitarmanna þaukannaði svæð- ið í sex klukkustundir og fann nokkrar jarðsprengjur, sem enn voru virkar. Eftir klukkustundar ferð frá Agana, höfuðstað Gúams, end- aði vegurinn og við tók skógur, sem var alveg ótrúleg flækja af pálmum, mangróve og bamb- us. Stór ský af mýflugum herj- uðu á okkur og bitu sig gegn- um skyrtur okkar. Hitinn var þrjátíu og fjórar gráður, og svitinn sem bogaði af okkur skolaði af okkur smurningnum, sem við höfðum borið á okkur til varnar fyrir mýinu, og lað- aði að enn fleiri mýflugur. Skyggnið inni í frumskóginum var í hæsta lagi tíu metrar, dökkgrænir runnar og allavega gróður gleypti þá, sem á undan fóru, svo ört að það lá við að við yrðum að haldast í hendur til að týna ekki hver öðrum. „Ef einhver missir af hópnum, gæti svo farið að hann mætti ráfa hér um í vikur og mán- uði án þess að finnast," sagði sériffinn. Jörðin var þakin kókoshnet- um, hún lét undan þunga okk- ar og saug sig fasta á fætur okkar. Sefstrá, hvöss sem hníf- ur, skárust gegnum húðina á berum handleggjum okkar. Annað veifið heyrðum við í bandarískum herflugvélum yf- ir trjátoppunum. Ef að japönsku farþegaflug- vélarnar hefðu flogið yfir suð- urhluta eyjarinnar á leið hing- að með túrista hefði Jókoj kannski látið lokkast fram úr fylgsni sínu mörgum árum fyrr í þeirri trú að her keisarans væri kominn aftur. En nú fóru vélarnar frá japönsku félögun- um aldrei yfir þennan hluta skógarins . . . Framhald. Bókaverzlun SNÆBJARNAR Hafnarstræti 48 VIKAN 39. TBL.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.