Vikan


Vikan - 28.09.1972, Blaðsíða 44

Vikan - 28.09.1972, Blaðsíða 44
Þegar bandaríski herinn réð- ist á Gúam tuttugasta og fyrsta júlí 1944, stóð Tweed uppi á kletti og veifaði til herflugvél- anna, sem komu í breiðum inn yfir ströndina og felldu sprengj- ur svo skipti þúsundum smá- lesta á bækistöðvar Japana. Já, hann gat meira að segja leið- beint löndum sínum við árás- irnar. Sama dag og næstum þúsund ára skógarvist hans tók enda, hófst sams konar skeið í ævi Jókoj. Og það átti að verða miklu lengra og einmanalegra. — Orrustunni um Gúam var lokið eftir daginn, sagði Sjó- itsji Jókoj frá eftir að hann hafði verið fangaður. Tuttugu þúsundum japanskra hermanna var slátrað í þeirri viðureign. Margir frömdu hara- kiri þegar öll sigurvon var úti. Þessi pálmum vaxna paradísar- ey varð alþakin líkum. Nokkur hundruð hermanna, þeirra á meðal Jókoj, sem lifðu af orrustuna, hlýddu síðustu fyrirskipunum yfirmanna sinna. Þeir fóru inn í frumskóg- inn og hófu skæruhernað. Þeir frömdu skemmdarverk og gerðu árásir að næturþeli. Þeir reyndu að vona hið bezta og bjuggust á hverri stundu við liðstyrk frá Japan. En í salarkynnum yfirher- stjórnarinnar í Tókíó voru menn hrelldari en nokkru sinni fyrr. Todsjó hafði neyðzt til að segja af sér, allt var að komast á Tingulreið og frá öll- um vígstöðvum bárust fréttir um ósigra og vonbrigði. Japan var hvarvetna á undanhaldi og hafði ekkert varalið til að senda til vígvallanna. Níu milljónir manna höfðu þegar verið kall- aðar í stfíðið, og eftir voru einungis börn og gamalmenni. Þrítugasta september 1944 var allt tuttugasta og níunda her- fylkið talið af, og lýsti her- málaráðuneytið því yfir að liðs- menn þess myndu allir dauðir. I heiðursskyni voru þeir allir hækkaðir í tign um eina gráðu. Jókoj varð þannig undirforingi, enda þótt nærri þrír áratugir ættu eftir að líða unz hann frétti af þeirri upphefð. Presturinn við Gjún-dji-hof- ið í Tomita færði frú Tsúrú Jókoj fréttina af dauða sonar- ins. — Það getur ekki verið satt, hann lifir, snökkti hún. -—• Hann kemur aftur einhvern daginn. aHnn lifir . . . En hún varð að taka allt það litla, sem hún hafði sparað sam- an, og kaupa fyrir það legstein til minningar um einkason sinn. Á steininn lét hún grafa: „Héðan burtkallaður undir- NÝTT FRÁ RAFHA NÝ ELDAVÉL GERÐ HE6624. 4 hellur, þar at 1 með stiglausri stillingu og 2 hraðsuðuhellur, stór ofn, 56 lítra, yfir- og undirhiti fyrir steikingu og bökun, Ijós í ofni. Fæst með eða án glóðar- ttelkar elements (grill). — Heimkeyrsla og Rafha ábyrgð. Berry leikf imibúningar Svartir, hvítir, bláir. Verð frá kr. 340,00. Leikfimibuxur. Rucana strigaskór, íþróttatöskur. Voit körfuboltar. Póstsendum. Laugavegi 13 - Kjörgarði - Glæsibæ VIÐ ÓÐINSTORG - SÍMI 10322 foringi Sjóitsji Jókoj, sæmdur þjónustuorðunni af áttundu stærð, dáinn þrjátíu ára að aldri á Omíja-jima (japanska heitið á Gúam), þegar herein- ing hans öll varðist sem hetj- ur allt til dauða.“ Síðan fór fram í Tomita tákn- ræn jarðarför Jókojs skraddara og undirforingja, þar sem nokkrir ættingjar og grannar heiðruðu minningu hans. En gröfin var tóm, og ör- væntingarfull móðirin skrifaði yfirvöldunum hvert bréfið af öðru og bað þess að leitað væri að jarðneskum leifum sonar hennar. Hún fékk aldrei svar — yfir átta hundruð týndir japanskir hermenn höfðu ver- ið yfirlýstir fallnir á þennan hátt. Og að lokum gafst móðirin upp, tók frænda Sjóitsjis, Ósa- mú að nafni, að sér sem sinn eigin son og arfleiddi hann. Arfurinn var raunar ekki ann- ar en bernskuheimili sonarins, sem nú hafði verið yfirlýstur dáinn. Jókoj og félagar hans, sem af hlýðni við skipanir yfirmanna höfðu flúið inn í frumskóginn, voru þegar tveimur mánuðum eftir orrustuna gleymdir og yf- irgefnir af stjórn sinni. — Gefizt aldrei upp! Látið aldrei taka ykkur lifandi! var það síðasta, sém yfirmaður þeirra hafði kallað til þeirra. Bandarísku hermennirnir þaukönnuðu eyna í leit að Jap- önum þeim, er lagzt. höfðu í skóginn. Þeir dreifðu út yfir skóginn þúsundum flugrita og æptu í hátalara að farið yrði vel með alla, sem gæfust upp. Og morgir gáfust upp. En Jókoj og tuttugu aðrir, sem mðe honum voru, afsögðu það með öllu. — Við þorðum það ekki, sagði Jókoj á blaðamannafundi í Tókíó. — Árum saman höfðu yfirmenn okkar hrætt okkur á Churchill, MacArthur og Roo- sevelt, og Englendingum og Ameríkönum hafði verið lýst fyrir okkur sem blóðþyrstum barbörum. Við vildum ekki láta taka okkur til fanga, því að þá gerðum við ráð fyrir að 44 VIKAN 39. TBL.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.