Vikan


Vikan - 28.09.1972, Blaðsíða 43

Vikan - 28.09.1972, Blaðsíða 43
HARMLEIK BREYTT ? HAMINGJU Framhald af bla. 9. — Ég held sambandi við hálfsystur mína í Salzburg, sem er þremur árum eldri en ég, segir Martin, — en að öðru leyti hef ég ekkert samband við mína réttu ættingja. Fritz Haider segir: — Okkur er annt um, að barnabæirnir. okkar séu ekki neitt „öðruvísi“. Börnin ganga í venjulega skóla með jafnöldrum sínum, en ef þau fá ekki framhaldsmenntun við sitt hæfi í grenndinni, geta þau flutzt í eitthvert af skóla- heimilum okkar, eins og Mart- in Kreil gerði. Sönnun þess, hve „SOS-börn“ , eru ánægð með uppfóstrið, er að mörg þeirra starfa að þess- um málefnum á fullorðinsaldri. í Hinterbriihl er t. d. Karla Pansi, 20 ára fóstra við leik- skólann þar, en hún var alin upp í barnabæ frá 8 ára aldri, þegar hún missti móður sína. Og þar er einnig Herbert Stranner, 24 ára smiður, sem kom barn að aldri til Hinter- brúhl. Eftir iðnnám kom hann aftur til Hinterbrúhl og er þar við öll hugsanleg störf, hann slær á sumrin, mokar snjó um vetur, keyrir bíl, gerir við hús, húsgögn, leikföng o. fl. ☆ HIN EIGINKONAN Framhald af bls. 13. ur og fór að borða. Hreyfingar hennar voru rólegar og hún hafði fulla stjórn á þeim. — Hvers vegna sagðirðu mér ekki að hún hefði líka blá augu? spurði hún eftir nokk- urra sekúndna þögn. — En elskan mín, ég hafði nú ekki einu sinni hugsað út í það! Hann kyssti hönd hennar er hún rétti hana að brauðkörf- unni, og hún snöggroðnaði af gleði. Hún var dökk í húð og allþrýstin, svo að hún hefði getað sýnzt aðeins grófgerð. En stór, blá augun, sem sífellt virtust skipta um lit, og liðað gullið hár hennar gerði í stað- inn að verkum að hún sýndist veikbyggð og andleg. Þakklæt- iskennd hennar til eiginmanns- ins átti sér engin takmörk. Hún var opinská án þess að vita af því sjálf og allur persónuleiki hennar lýsti af ódulinni ánægju og hamingju. Þau borðuðu og drukku af góðri lyst, og hvort um sig hélt að hitt hefði gleymt brúnklæddu konunni. Að vísu hló Alice ein- staka sinnum fullhátt, og Marc sat eins og hann væri alltaf að hugsa um hvernig hann liti út og kæmi fyrir. Beinn í baki og hnakkakertur. Þau urðu að bíða smástund eftir kaffinu og voru þögul á meðan. Sterkt sólskinið endurvarpaðist frá sjónum og þarna inni var næst- um óþolandi skjannabjart. — Hún situr þarna ennþá, hvíslaði Alice allt í einu. — Fer það í taugarnar á þér? Eigum við kannski að drekka kaffið einhvers staðar annars staðar? — Alls ekki! Ef einhverjum stendur ekki á sama, þá ætti það að vera hún! Þú ættir að líta á hana — það lítur ekki beinlínis út fyrir að hún hafi það mjög skemmtilegt . . . — Ég þarf ekki að líta á hana — veit nákvæmlega hvernig hún er á svipinn. — Jæja, var hún svona? Hann blés reyk út um nefið og hrukkaði augabrýrnar. — Svona? Nei — í alvöru talað, þá var það mér að kenna. Ég gat einfaldlega aldrei gert hana hamingjusama. — Þetta er það versta, sem ég hef heyrt! — Þú ert svo góð, elskan. Svo frábær. Sannkallaður eng- ill . . . Ég veit að þú elskar mig. Ég er svo hreykinn af því. Þegar þú horfir á mig eins og þú gerir núna . . . En hún — hún . . . Já, ég gat ekki veitt henni það sem hún vildi. Það var bara þannig. Eg gat aldrei gert hana hamingjusama. — Það hlýtur þá að vera erfitt að gera henni til hæfis. Alice hristi vasaklútinn pirr- uð og gaut augunum á konuna, sem sat og reykti, augu hennar lokuð og kyrrð og velþóknun í svipnum. Marc yppti öxlum hógvær- lega. — Það er hún sjálfsagt, við- urkenndi hann. — En hvað er hægt að gera fyrir manneskj- ur, sem aldrei eru ánægðar? Ekkert nema vorkenna þeim. Hugsaðu um okkur í staðinn, elskan, okkur sem erum svo hamingjusöm. Eða erum við það ekki? Hún svaraði ekki. Hún virti andlit hans fyrir sér næstum í laumi, kannaði reglulega and- litsdrættina, slétta húðina, þykkt hárið sem örlítið var far- ið að silfrast, leit á smáar, nett- ar hendur hans. í fyrsta sinn frá því að hún hitti hann fór hún að efast. — Hvað var það þá sem hún vildi? spurði hún. Og allan tímann, allt þangað til Marc hafði borgað reikning- inn og spurt hvert þau ættu að keyra, allt þangað til þau stóðu upp til að fara, sat hún og virti hina konuna fyrir sér, horfði á hana forvitin og öfundsjúk. Þessa óánægðu, ófullnægðu, yfirlætislegu konu . . . 28 ÁR f FRUMSKÚG- UM GÚAM Framhald af bls. 11. til fanga og settir í einangrun- arfangabúðir. Leifar bandaríska liðsins flýðu inn í frumskóginn með Japanina á hælunurn. Þar rann blóðið í stríðum straumum, Japanir sökuðu flóttamennina um skemmdarverk og háls- hjuggu þá og pynduðu til bana. Engu betur fóru Japanir með eyjarskeggja, svívirtu og myrtu konur og börn. Fjölmargir skátar voru drepnir af því að Japanir villtust á búningi þeirra og einkennisbúningi her- manna. Aðeins einum bandarísku hermannanna á Gúam tókst að sleppa við að verða drepinn eða fangaður af innrásarliðinu. Her- maður þessi, George Tweed að nafni, faldi sig í frumskógin- um nyrzt á eynni, bjó þar í helli og lifði á kókoshnetum, kröbbum og músum. — Það sem bjargaði mér var að ég hafði móttökutæki hjá mér, sagði hann frá síðar. — Ég gat hlustað á fréttirnar frá Bandaríkjunum. Ég naut líka hjálpar fólksins í nágrenninu, sem hataði Japanina eins og hverja aðra pest. Án þessa sam- bands við umheiminn hefði ég sennilega brjálazt í einverunni. 39. TBL. VIKAN 43

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.