Vikan - 28.09.1972, Síða 18
SHEILA TRUÐI
Á ÁSTINA
En það geri ég ekki, segir Coral Atkins,
sem i sjónvarpsþáttunum um Ashton-fjölskylduna
er gift David ....
Sheila Ashton - Coral Atkins,
skrapp til Noregs, þar sem
sjónvarpsþættirnir um Ashton-
fjölskylduna, eru mjög vinsælir,
eins og annarstaðar á
Norðurlöndum.
Hún er smávaxin og kvik og við
fyrstu sýn virðist hún feimin,
þangað til hún litur út undan
mikla ljósa hárinu og horfir i
augu manns. Augnaráðið er
alvarlegt og hún gefur greinagóð
svör við öllum spurningum.
Hún er i engu frábrugðin þvi
sem maður sér hana á sjón-
varpsskerminum, þar sem hún er
gift svarta sauðnum i Ashton-
fjölskyldunni, kvennagullinu
David. Þau voru neydd til aö gifta
sig. Hann hafði ekki fengiö neina
sérstaka menntun, en svo gekk
hann i herinn og hækkaði i tign i
flughernum. Börnin þeirra tvö
voru send út i sveit, vegna
flugárásanna á borgina: David
stundar ljúfa lifið milli árásar-
ferðanna, en Sheila dregur fram
lifið i ömurlegri ibúð þeirra
hjóna. Henni finnst hún utangarös
I fjölskyldunni. Liver-
poolmállýzkan hennar bendir lika
til að hún komi úr öðru umhverfi.
Blaðamaöur hitti Coral Atkins i
Sarpsborg. Hún var þar vegna
enskrar viku i Sagahuset, þar
sem hún var aðalaðdráttaraflið i
nokkra klukkutima. Brezki
fáninn blakti fyrir utan vöruhúsiö
og lifgaði upp á umhverfiö.
Blaðamenn, ljósmyndarar og
aðdáendur flykkjast i kringum
hana. Hún gefur eiginhand-
aráritanir og svarar spurningum
og er sérstaklega aölaðandi. Hún
er i rósóttum músselinskjól, sem
liggur þétt að likamanum, litið
förðuð og eins og áður var um
getið, þá er hún i engu frábrugðin
Sheilu Ashton.
Sjálfsagt er lika til þess ætlast.
Hún segir að þessi kjóll sé
reyndar lir kvikmyndinni. Hann
18 VIKAN 39. TBL.