Vikan


Vikan - 28.09.1972, Blaðsíða 29

Vikan - 28.09.1972, Blaðsíða 29
RENSJÖHOLM Tramhald af bls. 21. — Þú sa'gðist ætla að synda, sagði hann. — Hversvegna gerðir þú það ekki'? — Ég geri.það. Það var svo gaman að tala við frænku þina. — Mér finnst hundleiðinlegt að tala við hana. — Svei, Claes! Gabrielle ýtti góðlátlega við honum með fætinum. — Það eina sem er skemmtilegt við hana, er að hún er með stelsýki. — Claes, sagði húnJákveðin i bragöi. — Þetta er ekkert fyndið. Maður talar ekki svona við þá, sem ekki eru i fjölskyldunni. Og sem ekki vita hvort þú ert að gera aö gamni þinu eða talar i alvöru. — Jæja, heldurðu að'ég sé að gera að gamni minu? Hann var gleraugnalaus og dökku augun voru gljáandi, sakleysisleg barnsaugu. Hann stóð upp og stökk i laugina, svo hún næði ekki til hans. — Það er margt annað, sem ég gæti lika sagt um þig, Gabrielle frænka, — ýmislegt! kallaði hann um leiö og hann synti i burtu. Ég hugsaöi til bræðra minna. sem áttu það til að vera óþolandi á Claes aldri, þótt þeir heföu ekki notað annan eins orðaforða og Claes, svo ég kippti mér ekki upp við þetta. Ég hristi höfuðið og leit brosandi á Gabriellu, en mér brá, þegar ég sá svipinn á henni. Hún var náföl undir sólbrunanum. Hún stóö svo snöggt upp, að hatturinn datt af henni. — Nú er ég búin að fá nóg af þessum óþekktarormi, san- narlega meira en nóg, sagði hún með hálfkæfðri rödd og fór. Hattinn skildi húr. eftir og hann lá á grasinu eins og stórt, hvitt blóm. Hún varð þess ekki vör að hún haföi misst hann. Framh. i næsta blaöi SHEILA TRCIÐI A ASTINA Framhald af bls. 19. mina fyrrverandi eiginmenn. Já, Peter, sá siðari, ók mér einmitt á flugvöllinn i gæri Hann er faðir Harrys, sem er fimm ára og býr hjá mér. Ég vona að ég geti búið drengnum gott heimili og veitt honum skemmtilega æsku, að minnsta kosti betri en ég átti. — En er þá ekki rangt að skilja þá feðga aö? — Peter Whitehead er kvik- myndaleikstjóri. Hann tekur heimildakvikmyndir út um allan heim og hann skrifar sjálfur handritin Hann var allt siðastliöið ár i Marokkó, en við Harry bjuggum i Manchester, Hvorki þér né Ajax þurfið sjálfvirka þvottavél til að fá gegnhreinan, hvítan þvott því Ajax er sjálft sjálfvirkt Ajax er blandað efnakljúfum og því óháð orku þvottavéla /• Með Ajax - efnakljúfum verður Þvotturinn gegnhreinn og blæfallegur. Ajax er gætt sjálfvirkri Þvottaorku og hreinsimætti, sem óhreinindin fá ekki staðizt. Ajax er kjörefnið í stórÞvottinn - gerir hverja flik leiftrandi hvíta. Ajax er lika tilvalið í fínni Þvotta, t. d. orlon og nælon, sem gulna Þá ekki. Ajax er rétta efnið, ef leggja Þarf í bleyti, og við forÞvott. Notið Þá Ajax og horfið á óhreinindin hverfa. 39. TBL. VIKAN 29

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.