Vikan

Tölublað

Vikan - 18.01.1973, Blaðsíða 9

Vikan - 18.01.1973, Blaðsíða 9
ísbjörn vagar út úr flugvélinni, sem notuð var til að flytja bangsana frá Churchill. Brian Davies, helzti forsvarsmaður bangsanna. Þetta gerðist í Churchill, smáborg i kanadíska fylkinu Manítóba, norð- ur við Hudsonflóa. Síðan þá standa yfir svo heiftúðlegar deilur milli bæjaryfirvalda þar og náttúru- verndara, að belzt minnir á hunda- slríðið hér í Reylcjavík á dögunum. Yfirvöldin hafa gefið dýraverndur- unum tveggja vikna frest til að uþp- hugsa ráð sem dugi til að bægja bjarndýrunum frá bænum, og ef að slíkt ráð finnist ekki, verði bangs- arnir miskunnarlaust skotnir, hvar Á kortinu sést hvar Churchill er við Hudson- flóann, og örin sýnir hvert flogið var með birnina. sem til þeirra sést. Bæjaryfirvöldin rökstyðja mál sitt með þeirri fuil- yrðingu, að dýrin séu mönnum liættuleg. Og það er víst eitlhvað til i þvi. Ekki líður svo ár þar um slóð- ir að hvitabirnir greiði ekki atlög- ur að fólki, særi það meira eða minna og drepi stundum. Kona hafnarstjórans tók fyrst eft- ir liáskanum: þegar hún snemma morguns var komin fram á gang á leiðinni til að sópa snjóinn frá úti- dyrunum, heyrði hún mikinn blást- ur og urr gegnum bréfarifuna. Kennarinn frétti það frá börnun- um, sem voru yfir sig æst þegar þau komu i skólann. Á leiðinni þangað höfðu þau tekið eftir einhverjum livitum skrimslum. Öskukarlarnir urðu hins sama varir þegar er þeir hófu hringferð sína um staðinn til að liirða það, sem safnazt hafði fyrir i sorptunn- unum. Hvítabirnirnir voru komnir, rétt einu sinni! Náttúruverndararnir færa fram á nióti, að livítabirnir séu ein þeirra fjölmörgu dýrategunda, sem nú eru i bráðri útþurrkunarhættu. Nú eru í hæsta lagi um sex þúsund ísbirnir í heiminum, og alþjóðasamkomu- lag liefur náðst um friðun þeirra. Því samkomulagi hefur meira að segja að miklu leyti verið hlýtt, svo að hvitabirnirnir eru upp á siðkast- ið farnir að gerast gæfir og óhrædd- ir við menn. Það sem laðar bangsana að Churchill eru sorpliaugar staðar- ins. Þessi gamla bækistöð loðdýra- veiðimanna er einmitt i þjóðbraut isbjarnanna, sem þeir efalaust liafa þrætt í óræðan aldur löngu áður en nokkurt mannkyn upphófst i'Ame- ríku. Á sumrin halda birnirnir til inni í landi, og færa sig á haustin út á Hudsonflóann, þegar hann leggur, og herja þá á selina við önd- unaropin. En stundum, þegar þess- ir hvítu risar koma út að strönd- inni, er isinn á flóanum enn ekki orðinn bjarnheldur, svo að þeir verða að doka við um stund. Á ])ess- um biðtíma sverfur gjarnan að þeim sultur, því að á ströndinni er heldur fátt til fanga. Dragast þeir þá gjarn- an að sorphaugunum, en livíta- björnum verður um flest annað frekar brugðið en matvendni. En þar sem þeir vegna friðunarinnar eru að mestu hættir að óttast mann- fólkið, er þeir farnir að ganga á það lagið að leita inn í bæinn sjálfan, hvaðan matarlyktin úr eldhúsum bæjarbúa angar lokkandi á móti þeim. Þeir snudda við húsdyr, mölva glugga, ryðjast inn og liafa jafnvel komizt upp á lagið með að opna kæliskápa. Mannskapurinn i Churchill hef- ur að vísu vanizt bjarndýrunum að vissu marki og lcann á þeim lagið nokkuð svo. Þegar dýrin láta siá sig í bænum, eru þau fönguð og flutt langt í brott. En venjulega eru Framhald á bls. 44. 3. TBL. VIKAN 9

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.