Vikan

Tölublað

Vikan - 18.01.1973, Blaðsíða 48

Vikan - 18.01.1973, Blaðsíða 48
ISILFRUDUM BURBARSTÓL UG HVITUM MERCEUES Guru Baba og kona hans eru setzt á aðra vogarskálina, en verið er að stafla búntum af peningaseðlum á hina. Hjónin setja sig í bænarstellingar, um leið og vogarskálin með þeim lyftist. Nirankari nefnist einn af óteljandi sértrúar- flokkum í Indlandi, og nefnist leiðtoginn Guru Baba. Hann segir allt fjármagn á jörðu eign Guðs, og lætur svo lítið að veita því sjálfur viðtöku fyrir hönd hins almáttka. Þeir hafa Jesúm og Múham- eð í jafnmiklum hávegum, og biðja knéfallandi jafnt til Búdda og Jehóva í kirkjum, hofum og pagóðum. Hér er um að ræða nýjan trúflokk ind- verskan, sem kallast Niran- kari. Raunar telja áhangendur trúarflokksins sig tilheyra öll- um trúarbrögðum veraldar jafnt, á þeim forsendum að kenningar þeirra allra séu í eðli sínu eins. Téður trúar- flokkur telur nú um fimm milljónir meðlima. Nú fyrir skömmu héidu Nirankari mestu trúarhátíð sína til þessa. Hún fólst meðal annars í því, að á Ramlila- torgi í Nýju-Delhi tóku tvö hundruð og fimmtíu þúsund safnaðarmeðlimir þátt í fjölda- leikfimi, en lásu þess á milli upp úr kvæðum og heimspeki- ritúm, sungu guðrækileg ljóð og vógu að lokum leiðtoga sinn og konu hans á móti peninga- seðlum, unz jafnvægi fékkst. Þetta hefur leiðtoginn, Baba Gurbachan Singh Ji Marharai, sjálfsagt tekið upn eftir leið- toga fsmaelíta, Aga Khan, en hann hafði nú skíra gull og gimsteina til mótvægis við sinn akfeita skrokk. Þessi serimon- ía borgar sig áreiðanlega fvrir hinn fróma leiðtoga, því að sameiginlega vega þau hiónin — frúin nefnist Kulwant Kaur — um hundrað og siötíu kíló. Á vogina á móti þurfti um sex bundruð og fimmtíu þúsund rúpíur, áður en vogarskálin, s°m þau hiónakornin sótu í, hófst frá jörðu. Sú upphæð mundi samsvara rúmum níu milljónum íslenzkra króna. Þessu fjármagni höfðu áhang- endur trúarflokksins skotið saman, og hafa þó að jafnaði ekki nema sem svarar sex þús- und krónum í árstekjur. Leiðtoginn, sem í daglegu tali er kallaður Guru Baba, er náfrændi spámanns að nafni Baba Boota Singh, sem stofn- aði trúflokkinn. Hann hefur ekki ennþá gefið hinum trúu og fórnfúsu áhangendum til kynna, hvernig hann ætli að verja fjármagninu, sem safnað- ist. En geta má þess að leiðtog- inn hyggur á langar utanlands- reisur til að boða framandi þjóðum fagnaðarerindi sitt, og eitthvað koma þau ferðalög til með að kosta. Þá verður ekki annað sagt en Guru Baba lifi í vellystingum praktuglega, sef- ur til dæmis í rekkju, sem gerð er úr skíra silfri. Nirankari vex stöðugt fylgi. Þeir telja sig alþjóðlega hreyf- ingu. Grundvallarkennisetning- ar þeirra eru: Líkami, sál og eignir hvers meðlims tilheyra Guði, ritningar og spámenn allra trúarbragða eru metnir jafnt, enginn má sæta misrétti fyrir sakir trúarskoðana, hör- undslitar, uppruna, mataræðis eða klæðaburðar. Ekki virðist lúxuslifnaður spámannsins draga neitt úr virðingu Nirankari fyrir hon- um, þvert á móti ýta þeir held- ur undir óhófið en hitt. Ind- verskir tilbiðjendur hans gáfu honum nýlega silfraðan burð- arstól, sem hann notar til að láta bera sig út í bílinn sinn, þegar hann skreppur í ökuferð. Billinn, sem er hvítur Merced- es 280 SL, er gjöf frá velunnur- um spámannsins í Cinsinnati í Bandaríkjunum. ☆ 48 VIKAN 3. TBL.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.