Vikan

Tölublað

Vikan - 18.01.1973, Blaðsíða 44

Vikan - 18.01.1973, Blaðsíða 44
— Ég er búinn að fá nóg af þessu kerlingarausi. ENGIN MISKUNN FYRIR HVÍTU RISANA Framhald af bls. 9. þau komin í bæinn eða á ruslahauga hans samdægurs. Yfirvöld bæjarins eru farin að þreytast á þessu og þegar 1 fyrra vildu þau taka það ráð að skjóta dýrin. En á síðasta andartaki tókst dýravinum að verða hvítabjörnunum úti um gálgafrest. Fyrir því stóð Brian nokkur Davies, umsjónarmaður frá svokallaðri Alþjóðlegri dýraverndunarstofnun. Hann skipulagði líka björgunarað- gerðir. Þær voru á þann hátt, að dýrin voru skotin deyfi- skotum, þannig að þau féllu í öngvit, en biðu ekkert varan- legt tjón. Síðan voru þau sett í búr og flogið með þau í tveggja hreyfla flugvél fjögur hundruð kílómetra austur fyr- ir borgina, þar sem þeim var sleppt lausum út á túndruna. Þessi aðgerð reyndist óhemju fyrirhafnar- og kostnaðarsöm, og þar að auki haldlítil, þegar á reyndi. Bjarndýrin reyndust hafa áttaskyn í bezta lagi og auk þess vera meiri göngu- garpar en nokkurn hafði órað fyrir. Að fjórtán dögum liðn- um voru þau aftur komin á haugana við Churchill. Það var ekki fyrr en ísinn á flóanum var orðinn nægilega þykkur, að bæjarbúar losnuðu við þau. Og að þessu sinni bendir allt til þess, að þolinmæði yfirvald- anna í bænum sé þrotin í eitt skipti fyrir öll. Brian Davies hefur haft fleiri bjargráð fyrir birnina í hyggju, þar á meðal annars að fljúga með þá alla leið til Grænlands. En þar eð Grænland tilheyrir öðru ríki, það er að segja Danmörku, myndu milliríkjasamningar Dana og Kanadamanna þurfa að koma til áður en hægt yrði að hrinda þeim flutningum í framkvæmd. Þar að auki ligg- ur ekkert fyrir um að Danir kæri sig um fleiri ísbirni til Grænlands, og þótt svo væri, þá yrði loftbrú af því tagi óheyrilega kostnaðarsöm. Og dýraverndunarfélögin eiga ekki aðgang að gildum sjóðum. Davies hefur aukheldur stungið upp á því að bærinn Churchill komi sér upp nýtízku brennsluofnum til að eyða ruslinu, sem er hvítu risunum utan af hafísnum slík freisting. En auðvitað myndu ofnarnir og rekstur þeirra kosta sitt, og forsvarsmenn bæjarins eru á einu máli um að nokkrar byssukúlur séu miklu einfald- ari og ódýrari lausn. ÍVIÐJUM Framhald af bls. 11. súkkulaði, að það hefði getað dugað honum í marga mánuði. Hann lét öll ljós loga og reyndi að hamast sem mest við vinn- una. Um dögun, þegar þreytan bar hann loks ofurliði, hneig hann niður á stól, lagði höfuð- ið fram á borðið og andaði að sér súkkulaðilyktinni. Á þess- ari stundu öfundaði hann föð- ur sinn af því að vera dauður. Næstum þrjú ár liðu án þess að Harry sæi Alexöndru. Ein- hver kunningi sagði honum, að hún ynni enn í bókasafninu. Oft freistaðist hann til að ganga þar framhjá, ef ske kynni. að henni brygði fyrir. En hann óttaðist, að hún kæmi auga á hann og lét það því ógert. Oft sá hann hana í draumum sín- um, með þunnleita andlitið sorgbitna og svarta hárið um fölar kinnarnar og mjóu fing- urna í kjöltunni. Um morgun- inn vaknaði hann óhvíldur og horfði fram á daginn, í þungu skapi. Móðir hans hresstist dálítið. Nú þegar hún hafði hann út af fyrir sig gerði hún ekki eins miklar kröfur til hans og lét hann nokkurn veginn í friði. Aldrei minntust þau á Alex- öndru. Hann hafði jafnan verið var- kár viðvíkjandi mataræði sínu, en eftir því sem stundir liðu fram, tók hann að eta allt sem hann langaði í og fór að fitna. Þegar hann rakaði sig á morgn- ana hnykkti honum við að sjá, hversu mjög hann hafði elzt. Hann var ekki orðinn fimm- tugur en sjálfum fannst hon- um hann miklu eldri. Eftir því sem tíminn leið tók lífið að líkjast æ meir þvi sem verið hafði síðustu árin sem faðir hans lifði. Hann fór snemma á fætur og í búðina. Svo vann hann aljan daginn og fór síðan heim að kvöldi og át kvöldmatinn, sem móðir hans bjó til. Síðan sat hann og las í blaði, en hún ruggaði sér þegj- andi í gamla ruggustólnum. Þegar hún svo var komin í rúmið stalst hann til að kveikja sér í vindli, alveg eins og faðir hans hafði gert, því að hún hafði alltaf kvartað yfir reykj- arlyktinni. Hann átti bágt með svefn og brátt tók hann að nota svefntöflurnar, sem lækn- irinn ráðlagði honum. Á öndverðu fjórða ári eftir skilnað þeirra Alexöndru dó móðir hans. Hún hafði þjáðzt af kvefi nokkrar vikur. Hún hafði háan hita og það varð að flytja hana á sjúkrahús. Hit- inn þaut ýmist upp eða niður og gamla konan streittist við að lifa. Presturinn kom til að þjón- usta hana. Svo dó hún í svefni eina nóttina. Eftir jarðarförina fór Harry heim, einn síns liðs. Hann gekk hægt um svefnherbergið henn- ar. Honum fannst hver smá- hlutur þarna inni tilheyra ein- hverjum, sem hann gat varla munað. Honum fannst allt í einú rétt eins og hún væri bú- in að vera dauð einhvern óra- tíma. Hann fór út að ganga. Áður en hann gæti áttað sig á því, hvert hann var að fara, var hann kominn í götuna þar sem bókasafnið var. Hann var dauðhræddur um, að Alexandra kynni að sjá hann — í fyrsta sinn í rúm þrjú ár, og einmitt á greftrun- ardegi móður hans, svo að hann tók til fótanna og flýtti sér heim. Næstu dagana var hann allt- af að hugsa um Alexöndru. Hann sárlangaði til að fara til hennar, en óframfærnin hélt aftur af honum. Hann skoðaði sjálfan sig í speglinum og harm- aði hvað hann var orðinn fyr- irgenginn. Hann ákvað í ör- væntingu sinni að megra sig og svo burstaði hann hárið þann- ig, að það huldi að mestu vax- andi skallann á honum. Þegar hann hafði lokað búð- inni um kvöldið, tók hann á sig krók á heimleiðinni, til þess að fara framhjá bókasafninu. Þar leyndist hann svo i litlum garði handan við götuna. Þeg- ar hún kom út og lagði af stað heimleiðis, vissi hann, að hann elskaði hana og hafði alltaf elskað hana. Eitt kvöldið þegar hann stóð svona undir trjánum, varð löng- unin að sjá hana feimninni og hræðslunni yfirsterkari. Þegar hún kom út úr bókasafninu, gekk hann yfir götuna og kail- aði í hana. Þetta var einkennileg stund. Hún virtist ekkert hissa á að hitta hann þarna, en honum hnykkti við breytingunni, sem á henni var orðin á þessum þremur árum. Hún sýndist miklu eldri en hann mundi hana og allur æskusvipur gjör- samlega horfinn. Hann fór að skjálfa, því að hann vissi mæta- vel, að sjálfum hafði honum mikið farið aftur og nú gæti hún séð spegilmynd af sinni eigin afturför í andlitinu á hon- um. Þau gengu svo áleiðis heim saman, eins og þau höfðu svo ótal sinnum gert hér áður fyrr. Hann gætíi þess vel að ganga ekki of þétt upp að henni. Fyrst þögðu þau alveg, en svo fóru þau að tala ofurlítið saman. Hún var orðin yfirbókavörður. Og hann minntist eitthvað á hljómleika, sem hann hafði sótt nokkru áður. Þau staðnæmdust við húsið þar sem hún bjó. Hann var í þann veginn að kveðja hana og stynja því upp, hvort þau ættu að hittast aftur. — Viltu fá þér tesopa? spurði hún lágt. Sem snöggvast kom hann uop engu orði — það var rétt eins og hann yrði máttlaus af eintómri þakklátsemi. Þau gengu hægt upp-stigann. Hann settist í litlu stofunni hennar meðan hún hitaði á katlinum. Allt virtist óbreytt. Bækurnar í skápnum og plöturnar úti í horni, myndirnar af látnum for- eldrum hennar og litla gips- myndin af Beethoven á arin- hillunni. Meira að segja var þarna þessi þægilegi ilmur af púðrinu hennar, og hann hall- aði sér aftur á bak og lagði aftur augun. Á þessu hrifning- araugnabliki fannst honum hann vera kominn þangað sem hann ætti heima og hefði allt- af átt. Hún kom inn með tekönnu og setti tvo bolla á litla borðið. Hún hellti varlega í bollana og fyllti disk með möndlukexi. Það hafði hann ekki smakkað árum saman. — Þykir þér enn góð græn- metiskássa? spurði hann hóg- lega. Hún hristi höfuðið. — Nei, ekki lengur, sagði hún. Hendur hennar, hvítar og fingramjóar fitluðu við teboll- ann. — Ég kæri mig heldur ekki 44 VIKAN 3.TBL.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.