Vikan

Tölublað

Vikan - 08.03.1973, Blaðsíða 32

Vikan - 08.03.1973, Blaðsíða 32
Skuggagil Þaö var dauf birta af kertaljósi á tröppunum. Ég þaut upp stigann, enn berfætt, og var fegin þvi, þvi að ég gat gengið hljóðlaust um, og ég fór að athuga herbergin. Ég hafði enga hugmynd um, hvert þeirra mundi iiggja að Ibúð Pollýar frænku, en ég ætlaði að halda áfram að leita þangað til ég fyndi hana - eða Polly kæmi aftur, - hefði þaö þá verið hún, sem gerði þessa dynki. Ennþá hélt ég, að það væri hún. Eg opnaði hverjar dyrnar eltir aðrar en fann ekki annaö en snyrtileg, loftgóð herbergi, en enginn maöur var i neinu þeirra. Þá kom ég aö dyrunum i endanum á ganginum. Ég stanzaði, en aöeins augnablik, þvi að ég haföi ákveðið, að nú væri tfmi til kominn, aö ég hitti Polly frænku og sæi herbergin, sem hún lokaði sig inni i. Ég seildist til og sneri lásnum og þegar dyrnar opnuðust, gat ég fundið þennan einkennilega þef, sem gefur til kynna, aö það hafizt einhvér viö. Ilmefni, dauf matarlykt og meira að segja fannst mér þarna votta fyrir vindlingareyk. Ég lokaði á eftir mér og gekk gegn um setustofuna, sem var miklu stærri en min. Ég hélt kertinu hátt til þess að fá sem bezt útsýni yfir stofuna. Þarna voru falleg húsgögn, flest dökkrauö, jafnvel teppiö, sem var á gljáfægðu gólfinu. Stólar og setbekkir voru fóðraðir fallegu damaski, og þarna voru margar bækur og 'timarit. öll hugsanleg þægindi voru þarna. Ég gekk út setustofunni og inn i svefnherbergið. Fyrst leit ég á rúmið, sem tekiö hafði verið ofan af en var autt. Þung ilmefna- stybba var þarna. Ég gekk yfir aö skrifborðinu, og sá þá ástæöuna. Þarna stóðu mörg ilmvatnsglös, en flest tapþalaus. Polly frænka virtist ekki neitt hirðusöm. Ég opnaöi dyr, þvi aö ég var að leita að einhverjum öðrum útgangi úr þessari ibúð. En þar var ekki annaö en baðherbergi og svo fata- skápar, fullir af dýrum fatnaði, og' sumt af honum virtist aldrei hafa veriö notaö. Af einbúa aö vera, virtist Polly frænka ekki vera neitt nizk. Það sást bezt á þessum dýru ilmefnum og svo fatnaðinum. Hún virtist hafa allverulegar tekjur. Fleira upplýsti þetta mig ekki um Dolly frænku og nú fór ég aö veröa hrædd um, að hún færi að koma. Ég fór gegn um ibúðina, lokaði mig úti, lagði hurðina varlega aftur og gekk að stiganum við endann á langa ganginum. Ég var ekki komin nema nokkur skref þegar ég heyrði létt fótatak og brakið i silki. Ég sá blaktandi skuggana frá kertaljósinu. Ég fór inn um dyrnar á næsta herbergi, opnaði og slökkti á kertinu minu. Ég skildi dyrnar nægilega opnar til þess að geta grillt i hvern, sem kynni aö fara framhjá, enda þótt ég þættist viss um, að þaö gæti enginn annar verið en Polly frænka. Mig langaði afskaplega til að sjá framan I hana. Ég haföi nú ekki tekið alvarlega þetta, sem Bridey sagði, aö Polly væri alls ekki gömul. Þessvegna var ég ekki undirbúin viðbrigðin af aö sjá Polly frænku i fyrsta sinn, Kertaljósið lýsti vel á andlitið á henni og ég sá, að hún var mjög fögur kona. Andlitið var sporöskjulagað meö reglulegum dráttum, með stór augu, sem virtust stara beint fram fyrir sig. Hún var með svart hár, sem náði niöur fyrir mitti og hún var i rauðum taftkjól, sem skrjáfaði við hverja hreyfingu likamans. Vöxturinn var grannur og fallegur. Allt virtist bera vott um fagra konu, nema hreifingarnar. Hún virtist vera slyttisleg og óviss um Sjjlfa sig, og þegar hún var kornin framhjá mér, hélt hún áfram eftir ganginum og ég tók eftir þvi, að hún slagaöi dálltið. Ég taldi hana vera svo sem hálffertuga - áreiðanlega ekki eldri. Ég gat ekki séö, að hún liktist nokkra vitund móður minni en annars 'var það ekkert undarlegt, þvi að náfrænkur þurfa ekki endilega að vera likar. Það má vera undarlegt, hugsaði ég með mér, aö svona fögur kona skulj helzt vilja vera á ferli á nóttunni, þegar enginn sér hana og lifa lifi einsetumanns, en vilja samt eiga svona skrautlegan fatnað og kaupa rándýr ilmefni og yfirleitt láta’allt eftir sér en útiloka sig samt frá öllu mannlegu samfélagi. Var þetta sjúkdómur? hugsaöi ég meö mér. Eða geöveiki? Eða bara einhver afskapleg hræðsla viö fólk? Kannski lika óslökkvandi hatur. Jæja, ég haföi þá aö minnsta kosti séð Polly og var ekkert hrædd viö hana framar, þvi að vissulega virtist hún sauð- meinlaus. Nú haföi ég ekkert ljós lengur. en ég þurfti ekki annað en ganga eftir beina ganginum, sem lá að stiganum. 1 stiganum var eins og áður, dauft ljós, sýnilega haft þar hennar vegna og nætur- flakks hennar. Ég fór beinustu leið aftur i herbergið mitt og fór i rúmið og nú alls óhrædd. Nú var stóra húsið algjörlega þögult. öllu næturflakki var lokiö. En ég velti þvi fyrir mér, hvort einhversstaðar hér innanhúss - kannski örskammt frá mér - væri einhver, sem sæti um lif mitt. Er. ég vildi ekki hugsa um það. Ég hafði losnað viö eitt hræðsluefniö úr huganum, sem sé Polly frænku. Ég var ekki lengur hrædd við hana. Ég hafði séð hana. Hún var manneskja, alveg eins og ég. Ég stundi syfjulega og hugsaði um Mike, og ást hans á mér. Það nægði til aö róa og hugga mig. Ég var fljót að sofna. 17. kafli. Ég vaknaði þegar Bridey barði að dyrum og sagði henni hálf- sofandi að koma inn. - Góöan daginn, ungfrú! sagði hún glaöklakkalega og kætin i henni fyllti herbergið. Hún bar morgunverðarbakka og nú var hún oröin leikin i þvi. - Og nú er fint veður. Og það ætti það lika sannarlega að vera eftir þessa hræöilegu dembu, sem hélt fyrir mér vöku mestalla nóttina. - Ekkert heyröi ég, varö ég að játa. - O, þessar llka þrumur og eldingar. Ég hélt, að himinninn ætlaði aö hrynja yfir okkur. Ekki skil ég, hvernig þér hafiö getaö sofið fyrir þvi. Hún setti bakkann á rúmið, stóð siöan meö hendur á siðum og horfði á mig glettnis- lega. En nú skil ég það. Augun i yöur eru bliðleg og ljómandi. Er það ungi maðurinn yðar. Ég brosti og minntist gær- kvöldsins. - Rétt til getiö, Bridey. - Og er það alv.ara? Engar efasemdir eða vafi? - Nei, engar Bridey. En þá mundi ég eftir öllum hryllingnum, sem ég haföi orðið fyrir og ég fann alveg, að ég fölnaöi upp. - Er eitthvað aö, ungfrú? flýtti Bridey sér að spyrja. - Nei, ekkert, sagði ég og hristi af mér hræðsluna. Ég ætlaöi ekki aðfara aö segja henni, hvað fyrir mig kom i gærkvöldi. Aö minnsta kosti ekki fyrr en ég var búin aö tala viö móður mina. - Það er verst, að þú skyldir vera að koma upp meö matinn, Bridey. Ég ætlaði einmitt að borða meö móöur minni i dag, sagði ég, þvi að mér lá á að segja henni frá þvi, sem gerðist. kvöldinu áður. - Já, en hún móöir yðar er veik, sagði Bridey i samúðartón. Frú Voorn er inni hjá henni núna. 32 VIKAN 10. TBL.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.