Vikan

Tölublað

Vikan - 07.06.1973, Blaðsíða 10

Vikan - 07.06.1973, Blaðsíða 10
Slökkviliðið var boðað á stað- inn klukkan fjórtán mínútur yfir níu og lögreglan kom að í sama mund. Fáeinum mínút- um síðar streymdi lögreglulið- ið inn í þingsalinn undir stjórn Lateits lautinants. Eldtungurn- ar sleiktu forsetastúkuna, en eldurinn hafði ekki breiðzt út að ráði. Aðeins nokkrum andartökum seinna dundu ósköpin yfir. Mikil sprenging varð öllum að óvörum í þingsalnum og eldur- inn breiddist út um alla bygg- inguna. Slökkviliðsmenn og lögreglur urðu að ríghalda sér í það sem hendi var næst til þess að lenda ekki í eldinum. Neistaflugið stóð í allar áttir og lýsti upp næturhimininn yf- ir Berlín. Kallaðir voru út allir slökkvi- liðsmenn á öllum slökkvistöðv- um Berlinar og varalið lögregl- unnar var fengið til starfa. Fólk tók að streyma þúsund- um saman til þinghússins — með nasistaleiðtogana í farar- broddi. — Kommúnistar bera ábyrgðina á þessu, hrópaði Her- mann Göring, löngu áður en undirbúningsrannsóknir hófust. Josef Goebbels sagði að þetta ódæði hlyti að vekja þýzku þjóðina til umhugsunar og átti með því við, að hún nú hlyti að treysta nasistum! Það varð ekki annað séð, en þeir hefðu rétt fyrir sér, að minnsta kosti hvað snerti ábyrgðina á brunanum. Lög- reglan hafði sem' sé fundið brennuvarginn í brennandi þinghúsinu. Þar fundu þeir geðveilan hollenzkan auðnuleysingja, Ma- rinus van der Lubbe, sem væfl- aðist þar um á buxunum ein- um fata. Önnur klæði sín hafði hann greinilega notað í upp- kveikju. Síðar var tilkynnt að í buxna- vösum hans hefði ekki einung- is fundizt hollenzkt vegabréf hans, heldur einnig kommúnis- tískt flugrit. Flugritið gerði málið einfaldara, einkum þeg- ar þess er gætt, að van der Lubbe var ekki meðlimur í kommúnistaflokknum. en hafði þó veitt „leynilegum hóp“ stjórnleysingja stuðning. Van der Lubbe neitaði ekki að hafa staðið að íkveikjunni, en hann var mjög ráðvilltur. Þegar hann var spurður því hann hefði gert það, svaraði hans aðeins: Mótmæli, mót- mæli! Göring lögregluráðherra hafði þegar hafið undirbúning að því „að bæla niður öfl and- stæð ríkinu“. Nafnalistar, sem gerðir höfðu verið löngu áður, voru teknir upp úr innsigluð- um kistum. Varalögregluliðið tók til starfa þegar aðfaranótt 28. febrúar. Um fjögurleytið um morgun- inn — sem seinna varð sérleg- ur „vinnutími" Gestapó — lömdu varaliðsmennirnir á hundruðum „óvina ríkisins". Vinstrisinnar, menntamenn, Gyðingar og fleiri voru færðir til kjallara lögreglustöðvanna, barðir þar sundur og saman og fangelsaðir um óákveðinn tíma. Auk þess var gerð árás á að- setur kommúnistaflokksins í Karls Libknechtshúsinu. Þar gerðu þeir sér vonir um að finna skjöl, sem staðfestu, að kommúnistar undirbyggju bylt- ingu. Lögregluárásin var samt fyrst og fremst gerð í áróðurs- skyni því að vitaskuld var eng- in slík skjöl að finna á skrif- stofu flokksins. Að álíta slíkt hefði verið herfilegt vanmat á kænsku kommúnista og starf- semi flokks þeirra. A þriðjudagsmorgninum rauk úr rústum þinghússins. Adolf Hitler fór aftur til þess að líta á rústirnar og talaði klökkri röddu um „tákn að of- an“. Þinghúsbruninn varð sögu- legur atburður, einn hinn þýð- ingarmesti allrar mannkyns- sögunnar, jafnvel þótt menn gerðu sér ekki grein fyrir því þá. Milljónir Þjóðverja lágu flatir fyrir áróðrinum, sem streymdi frá skrifstofu Josefs Goebbels. Hann kvað þing- húsbrunann hafa átt að vera merki um að bylting komm- únista væri að hefjast og ein- ungis hafi tekizt að koma í veg fyrir hana fyrir snarræði nas- ista. Ekki má gleyma því að kommúnistaflokkurinn var voldugur í Weimarlýðveldinu og naut fylgis milljóna kjós- enda. Nú voru þeir dæmdir til þess að tapa fyrir nasistum, sem urðu ofan á í kosningun- um 1933, enda beittu þeir til þess öllum ráðum. Kosninga- fundir andstæðinganna voru truflaðir á allan mögulegan hátt. Venjúlega var reynt að banna þá með aðstoð lögregl- unnar, sem nasistar stjórnuðu eftir eigin höfði, en tækist það ekki réðust einkennisklæddir baráttuhópar, einkum meðlim- ir SA-hreyfingarinnar, að fundarmönnum og splundruðu samkomum. Eftirtektarvert er, að nasist- um tókst ekki að fá hinn þráða meirihluta, heldur urðu að láta sér nægja 44% atkvæða, þrátt fyrir að talið er sannað að þeir hafi beitt brögðum við at- kvæðatalninguna. Mesta kappsmál nasista var að völd kanslarans yrðu aukin stórlega, en það gerði Hitler í raun og veru að einræðisherra. En margt stóð í vegi fyrir því. Paul von Hindenburg, for- seti, var stríðshetja úr fyrri heimsstyrjöldinni og hafði ver- ið valinn á lýðræðislegan hátt. Hann var 86 ára að aldri og illa farinn af æðakölkun. Hann vildi sniðganga Hitler, því að hann áleit hann vera af lágum stigum. Hindenburg veigraði sér við að tala við Hitler nema vara- kanslarinn væri viðstaddur. En Óskar, sonur Hindenburgs, var hlynntur Hitler og hafði óbein áhrif á föður sinn, sem fylgd- ist lítið með því, sem gerðist í heiminum í kringum hann. For- setinn var valinn af þinginu og þurfti tvo þriðju hluta atkvæða til þess að vera löglega kosinn. Um það þurfti Hitler og þjóð- ernissinnaflokkur hans ekki að gera sér vonir á meðan sósíal- demókratar og kommúnistar höfðu nikkur áhrif innan þings- ins. Þinghúsbruninn veitti tæki- færi til þess að handtaka, og einangra með því, leiðtoga kommúnista auk nokkurra só- síaldemókrata. En það vantaði enn nokkur atkvæði til þess að ná tveimur þriðju hlutum atkvæða á þing- inu og veita Hitler völd til þess að stjórna öllu eftir eig- in höfði. Ringulreið ríkti í stjórnmál- um. Til þess að fá einhvern botn í ástandið er nauðsynlegt að líta á það frá sögulegu sjón- armiði. Þýzka ríkið var í raun- inni myndað af ungri þjóð, sem hafði orðið til eftir sigurinn yfir Frökkum 1871. Áður hafði land- ið verið skipt í fjöldamörg lít- il konung- og hertogadæmi, sem voru lauslega tengd hvert öðru. Vilhelmska keisaradæmið leið undir lok eftir ósigurinn í heimsstyrjöldinni 1914—1918. Framhald á bls. 43. SíflAN LAGOIST ALLT í RIÍST 10 VIKAN 23. TBL.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.