Vikan

Tölublað

Vikan - 07.06.1973, Blaðsíða 13

Vikan - 07.06.1973, Blaðsíða 13
Ég var ekki einn af fyrirfólkinu. Ég var aðeins hesíasveinn i um þessara miklu útreiða En fyrir mig var þetta sU legt ævintýri, og eins verða, átti ég sjálfur hve end'asleppt þa lega innfjálgi. Undir mig var að sjálfsögðu settur hestur, og þótt hann væri enginn gæðingur, var hann mjög þægilegur til reiöar. Ég haföi lært af húsbónda minum í sveitinni að reyna jafnan að ná þvi bezta úr hverjum hesti. Ekki leið þvi á löngu, áður mér hafði tekizt að fá Freyfaxa til að reisa höfuðið og taka töltspor. ( Ég var um þessar mundir áfjáður lesandi tslendingasagna og kom ekki annað til hugar en velja reiðskjóta minum hið virðulegasta nafn.) Það vakti jafnvel athygli hjá skemmtiferðafólkinu, hvað mér varð áorkað við klárinn, og stöku maður hafði orð á þvi. Vitanlega voru þetta einungis stuttar athugasemdir, og ég svaraði sem fæstu. Mér var frá upphafi ljós staöa min i þessum hópi. Ég hef sjaldan innt starf af höndum af slikri alúð sem þessa hestagæzlu, og mér var það næsta auðvelt verk. Það var einkum i þvi fólgiö að annast um töskuhestinn, sem klyfjaður var nestinu, gæta þess, að gæðingarnir rásuðu ekki frá knöpunum I áningarstaö og vera skemmtifólkinu innan handar, hvenær sem það þurfti einhvers með. Allt þetta gerði ég mér far um að inna af höndum hávaðalaust, með fámálugri hátt- vísi og jafnaðargeði. Þetta var ævintýri, og mig skipti engu máli i hvaða tón ég var á- varpaður, eða hvers konar viðmót mér var sýnt i umgengni. Ég naut ánægjunnar af ævintýrinu einn með sjálfum mér. Nestið jók ekki hvað minnst á framandleik ævintýrisins. Aldrei hafði ég augum litið þvilikar krásir, hvað þá bragðar þær. Mér hafði aldrei komið til hugar, að til væru svo margar tegundir áleggs á brauð, svo að segja i öllum regnbogans litum. Ég hafði meira að segja ekki rennt grun i áður, aö smurt brauð væri svo finn matur. Eða þá ölföngin. Og ekki var ég sizt hrifinn af ávöxtunum, bæði ferskum og niðursoðnum. Sliku hafði ég ekki einu sinni kynnzt á sjálfum jólunum — Af öllu þessu fékk ég minn skerf, en ég gætti þess að vera jafnan hófsamur. Frúrnar, sem miðluðu nestinu, létu sér annt um, að ég fengi nóg. Ég taldi þó hæfa að afþakka löngu áður en lystin var þvi samþykk. Ég sat i hæfilegri fjarlægð og borðaöi af settleik og hæversku, þótt hitt fólkið léti sig litlu skipta hnitmiðaðar matvenjur þarna úti i guðsgrænni náttúrunni. Þegar lystinni samdi ekki lengur við hæverskuna, þakkaði ég fyrir mig og tók að snúast við hestana. Hjá þeim var ég slður en svo miður min. Ég naut þess i rikum mæli aö hafa umsjón með svo glæstum gæðingum. Það var á þriðja sunnudeginum, sem ævin- týrið fékk á sig enn hugþekkari blæ. Þá kom Eygló til sögunnar. Eygló var jafnaldra mér. Hún var dóttir útgerðarmannsins, sem tekið hafði mig sem hestasvein. Það var á fiskverkunarstöð hans, sem ég hafði fengið sumarvinnuna. Hann var tvimælalaust rikasti maður bæjarins. Hann átti tvo afburða reiðhesta sjálfur, frúin átti þann þriðja, og hann hafði gefiö Eygló fannhvitan gæðing i fermingargjöf. Það eitt, að hún hafði fengið slikan grip i fermingargjöf, var nóg til þess, aö ég leit á hana öðru visi en venjulega unglinga. Annars höfðum við verið bekkjar- systkin i barnaskóla, og einnig höfðum við fermzt saman. En við þekktumst samt sára- litið. Eygló umgekkst alltaf fáa á sinu reki, og sizt börn eða unglinga af minu tagi. Eitt leyndarmál áttum við þó saman. Hún sat ætið fyrir aftan mig i skólanum, og á skrif- legum prófum sat ég jafnan þannig, að hún gat séð úrlausnir minar. Við töluðum aldrei um þetta, það var þegjandi samkomulag. Bæði vissu þó vel, að hún græddi á .þessari aðstöðu sinni. Það fékk mér góðlátrar innri ánægju, þvi Eygló var engin venjuleg telpa. Og stundum fannst mér ég verða var hlýju I augnaráði hennar, er hún leit á mig. Annars Framhald á bls. 31

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.