Vikan

Tölublað

Vikan - 07.06.1973, Blaðsíða 35

Vikan - 07.06.1973, Blaðsíða 35
Ég var með tár i augunum og sáran verk i kinninni. En verri var þó skelfingin, sem greip mig. Ég var óttasleginn. Bragðið okkar hafði mistekizt og nú yrðum við að gjalda synda okkar. Einhver hlaut að hafa séð okkur og verið nógu andstyggilegur til að segja frá hnotuátima okkar. Nú þurftum við að afplána tvær syndir — skróp frá helgistundinni og svo undanbrögðin. Hvort tveggja var dauðasynd að mati ungfrú Hartnett, en það fyrr- nefnda tók þó út yfir allan þjófa- bálk. Ungfrú Hartnett var ofsalega trúuð og þessi trú hennar var myrk og skuggaleg, rétt eins og hún hefði erft alla synd og iðrun alls mannkynsins. Aldrei sá ég hana brosa. Næst komst hún ofur- litlum votti af velvild, þegar hún iagði höndina á öxlna á Aine. Nú sat hún aftur fyrir innan borðið og kreppti fingurna um prikið. Con var nógu nærri mér til þess að geta gefiö mér oln- bogaskot. Og þetta olnbogaskot sagði: — Stattu þig 'nú og sviktu mig ekki. — Þögn! Röddin i henni kæfði suðuna, sem var tekin að heyrast i bekknum, eftir barsmiðina. En svo lagðist þessi þrúgandi þögn yfir allt aftur. Ungfrú Hartnett stóð upp og ávarpaði bekkinn. — Hér höfum við fyrir okkur tvo óhlýðna lærisveina eins og þá, sem sofnuðu meðan meistari þeirra pindist 7 grasgarðinum. Þeir gátu heldur ekki vakað eina stund. Eina stund — það var allt, sem hann fór fram á — og þessir tveir hérna brugðust. — En það þótti þeim ekki nóg, heldur þurftu þeir að bæta annarri synd ofan á vanræksluna. Það er tii tvennskonar fólk, sem ég hef andstyggð á: eigingjarnt fólk og lygið fólk. Og þessir hérna eru sekir um hvort tveggja. Þeir verða að hljóta refsingu fyrir það. Og i skólanum minum vil ég hafa börn, sem hafa gott af refsingunni. Ég vil ekki hafa börn i skólanum, sem vanrækja kristi- legar skyldur og bera fyrir sig syndsamlegar afsakanir. Hún þagnaði og gekk fram fyrir borðið með prikið á lofti. Hún stanzaði snöggvast fyrir framan mig og sagði svo: — Réttu fram höndina! Ég rétti frant þá hægri, afþvi að hún var seigari. Hún var sigg- gróin eftir erfiðisvinnu, svo að ég hélt hún mundi þola höggið betur. Þrisvar steig og féll prikið og sár verkur fór um lófann og fingurna. Ég fann, að fingurnir dofnuðu og einusinni, þegar fingur- broddarnir krepptust ósjálfrátt, fann ég sáran verk i hnúunum. En hún hafði enn ekki lokið verkinu. — Komdu með hina! skipaði hún. Það voru óskráð lög hjá skóla- systkinum minum, að ekki mátti kveinka sér við neina refsingu. Að gráta þótti ræfilsháttur, og að æpa merki um ragmennsku. Ég beit þvi á jaxlinn, kreppti fingurna fast inn i lófann og herti upp hugann þegjandi. Þetta var dýrkeyptur sigur og hver taug i höndunum á mér æpti á tjáningu, þó ekki væri nema rétt sem snöggvast. En ég herti upp hugann og horfði siðan á Con sæta sinni refsingu eins og sannan Spartverja. Ungfrú Hartnett fleygði frá sér prikinu og leit á okkur. — Svipúrinn á henni var eins og á sánkti Pétri i húsagarðinum, og þar brá ekki fyrir neinum snefli af meðaumkun. — Ég ætla að spyrja ykkur báða aftur: Hversvegna fóruð þið ekki " á helgistundina? Röddin i Con var jafnskýr og örugg og áður. — Hún Nonie Hines gekk þvert fyrir framan okkur. A veggnum, milli kortanna af Evrópu og Bretlandseyjum hékk mynd af hinu Helga Hjarta. Ég var vanur að lita ósjálfrátt undan, ef augun i mér ætluðu að staðnæmast við þann hluta veggjarins. Mér var meinilla við þessa mynd þar sem hver dráttur lýsti kvölum og pislarvætti. Þarna var andlitið Krists hins krossfesta með útréttar hendur þar sem sáust hin hroðalegu naglasár. Myndin dró nafn sitt af hjartanu, sem var utan á fötunum. Og yfir hjartanu var litill kross og kóróna úr silogandi blossum. Ungfrú Hartnett ýtti okkur báðum að myndinni. — Krjúpið þið! sagði hún. — Krjúpið þið frammi fyrir þessari mynd. Og svo liggið þið á hnjánum þangað til-þiö hafið sagt satt frá. Þegar þið horfið á hið Helga Hjarta, munuð þið kannski iðrast verka ykkar. Og við Con krupum báðir. Að baki okkar var kennslunni haldið áfram. Ungfrú Hartnett fór með krakkana að Evrópukortinu og ég heyrði Brigid lýsa rennsli Dónár. Svo jók kennarinn við lýsinguna hjá Brigid og talaði um hagræna þýðingu þessarar samgöngu- æðar, og svo, hvernig áin hefði i aldaraðir gefið rithöfundum og tónskáldum innblástur. Þekkti nokkur eitthvert slikra lista- verka? Hafði nokkur heyrt um tónlist i sambandi við ána? Þab hafði Aine. Hún hafði heyrt nefndan mann að nafni Strauss og lék oft ,,Dóná svo blá” á slag- hörpuna hennar mömmu sinnar. — Gott! sagði ungfrú Hartnett. Og hún sagði þetta i þeim tón, að hún hafði aldrei efazt um, að Aine gæti svarað. Smámsaman fóru fingurnir á mérað rétta sig úr kreppunni. Ég- gat nú rétt úr þeim, en brátt leituðu þeir i sömu stellingar sem barsmiðin og sársaukinn höfðu komið þeim i. En nú kom annar verkur i staðinn. Hnén á mér voru sáraum á steingólfinu. En nú gat ég þolað sársáukann. Og ég gat huggað mig við einn sigur. Ég hafði sýnt, að ég var engin kreista. Ég hafði haldið samn- inginn mínn við Con. Og þetta nægði til að láta ekki bugast. Og Helga. Hjartað starði stöð- ugt niður á okkur. Enda þótt ég reyndi að forðast það, fann ég, að einhvern veginn dróst ég að hryggðinni og kvölunum, sem virtust elta mig um allt. Ég vissi vel, að ég átti að iðrast þess, sem ég hafði gert, en ég gat ekki sam- ræmt miskunn og rét.tlæti hins krossfesta Krists refsingunni, sem ég hlaut i hans nafni. Og afþvi að mér var ómögulegt að iðrast, þá greip mig nú gremja gegn þeim, sem hafði kjaftað frá okkur. Þvi að einhver hafði kjaftað frá — það eitt var vist. Það hefði getað verið presturinn. Þaðan sem hann kraup á upphækkaða knébeðnum, hefði hann getað séð út um gluggann. En það var nú ekki nema rétt aðeins hugsanlegt og mjög Svo óliklegt. Kannski hefði það lika getað verið hann Jackeen, safnaðarfulltrúinn. Hann kraup aldrei um leið' og söfnuðurinn. Sem kirkjuvörður gekk hann næstur prestinum, hann lagði á altarið og rétti hin heilögu ker og klæði. Hann naut ýnnssa forréttinda og átti sér- stakt sæti i skrúðhúsi. Stundum kom hann út i opnar dyrnar aftan til i skrúðhúsinu, hallaði sér upp að dyrastafnum og horfði i áttina til Kilquane meðan hann tottaði pipuna sina. Það hefði þvi getað verið Jackeen. Einu sinni hafði hann klagað Brigit Doohan fyrir að brosa um messuna, og ungfrú Hartnett hafði látið hana standa allan daginn i skammarkróknum við ofninn. Við krupum þarna, við Con. Minúturnar urðu að klukku- timum. Hádegisverðarbjallan hringdi óg skólasystkinin okkar ruddust út i einum hrærigraut. Viö heyrðum i þeim inn um dyrnar og háVaðinn táknaði frelsi þeirra. Aine hitaði te handa ungfrú Hartnett, lagði á borðið og sneiddi niður brauðið. Hún var farin fyrir ævalöngu þegar kennarinn sagði, að við mættum fara lika. Ég átti erfitt um gang. Fæturnir á mér voru dofnir og grútlinir og það var bara af gömlum vana, að ég tók mjólkurflöskuna og rúgbrauðs- sneiðarnar upp úr skólatöskunni minni frammi i forstofunni. Ég var ekkert svangur. Ungfrú Hartnett haföi rekiðqllt hungur á flótta — hún og svo sá, sem hafði sagt eftir mér. Fyrir neðan tröppurnar út að leikvellinum biðu Aine og Brigid okkar. Það var Con, sem Aine sneri sér að. ■ ■„ — Ég sá hann Jackeen vera að tála við ungfrú Hartnett i morgun. Það hlýtir að vera hann, sem sagði eftir þér. Hann hefur gert það fyrr — ekki satt, Brigid? Brigid kinkaði bara kolli. En svo gekk hún til min., greip hendurnar á mér og skoðaði þær. Hún strauk bólguna með fingrunum og það dró sviðann úr eymslunum. — Mér þykir leitt, að þér skyldi vera refsað, sagði hún. — Meiddi hún þig mikið? Ég hristi höfuðið. Það var harðtroðinn moldar- stigur við skólahúsið og við endann á honum rauðleitur moldarblettur þar sem strákarnir söfnuðust saman. Þeir voru að biða eftir þvi, að við Con kæmum og þegar við komum, stjórnuðu þeir Tomasheen og Eric heilli hrið af ftóðglósum og ónotum. Ég hafði nú búizt við innilegri mót- tökum, þar sem dáðzt væri að karlmennsku okkar og okkur sýnd samúð, eins og ástatt var fyrir okkur. En nú sem fyrr varð Nonie okkur til falls. Það sem hafði hafizt sem aðdáun gagnvart yfirnáttúrulegum kröftum, var nú orðið að hlátursefni við nánari kynni. — Hvernig ltður þér, Nonie? sagði Tomasheen háðslega. — Þú mundir hlaupa heila milu af þú sæir hana. Það var gott, að það skyldi komast upp um þig. Þannig var haldið áfram að kvelja okkur. Maturinn minn var ósnertur, en við hlið mér stóð Con og lét sér hvergi bregða. Hann lauk við sinn eigin mat og byrjaði siðan á mlnum. Þessi harðskeytti o'g viljasterki félagi minn fyllti mig aðdáun. Hann óttaðist ekkert og engan — nema hann Pedar, pabba sinn. Pedar var harður og strangur maður. Hann ætlaðist til, að sonur hans hagaði sér á nákvæmlega sama hátt og hann sjálfur hafði gert. Hann heimtaði skilyrðis- lausa hlýðni, fullkominn heiðar- leik og sannsögli. Það var nú erfitt fyrir strák á þessum aldri að hlýða öllum reglunum, sem Pedar hafði sett, og ef Con linaðist einhvern tima i öllum stráksskapnum og hrekkja- brögðunum, þá var það afþvi að hann minntist Pedars. Bjallan hringdi og frelsinu var lokið. t einfaldri halarófu gengu krakkarnir inn i kennslustofuna. Við Con aftastir i röðinni. Ég var að vona, að refsingunni yrði ekki haldið áfram eftir hádegisverð og settistfeiminn i sætið mitt. Brigid brosti til min, mér til hug- hreystingar. En Aine leit frá mér 23. TBL. VIKAN 35

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.