Vikan

Tölublað

Vikan - 07.06.1973, Blaðsíða 16

Vikan - 07.06.1973, Blaðsíða 16
Kvala staður SMÁSAGA EFTIR T.G. NESTOR Tilfinningar minar voru eingöngu sálrænar og sárari en ég hafði áður fengið að reyna. Ég var svikinn úr öllum áttum. Fyrst var það hún Aine. Svo var það hann Con, sem hafði svikið samkomulagið, sem hann hafði sjálfur samið. Loksins þegar ég hafði kynnzt sorginni, var henni fleygt framan i mig.... Þriðja sunnudag i hverjum mánuði, klukkan 3-4 var sérstök helgistund. Séra O’Beirne hafði sjálfur komið þeSsum sið á — kom vist með hann með sér úr siðasta prestakallinu sinu I borginni, og sveitafólkið þarna i Cooldarra var ekkert sérlega fljótt að venjast honum. Um sunnudagsmessuna var allt öðru máli að gegna, þvi að hún var arfur frá liðnum kynslóðum. En helgistundin var nýjung og þurfti nú einmitt að vera þannig timasett, að hún rakst á ýips önnur áhugamál. Áður en séra O’Beirne kom, lögðu trúmálin fólki engar aukaskyldur á herðar — eftir messu var það jafnfrjálst og fuglar i mó. En klerkur vildi breyta þessari venju, og þegar aðsóknin varð treg að fyrstu helgistundinni, þá hélt hann ræðu yfir hausamótunum á þeim, sem ekki komu. „Getið þér ekki vakað með mér eina stund?” vitnaði hann i bibliuna og hvæsti tilvitnuninni reiðilega að áheyrendum. Héðan af, sagði hann, yrði hvert heimili að senda sinn fulltrúa. Karl faðir minn var heldur, betur niðurdreginn þegar hann lötraði kirkjugötuna heim á leið. Hann hafði lofað að heimsækja McDonnellhjónin og taka mömmu með sér. En hvernig gat hann haldið það loforð þegar presturinn hafði horft framan i hann með svip, sem sagði: — Og þú komst heldur ekki, Michael. En þá kom mamma til skjalanna og bjargaði málinu. Hún hafði hlustað vandlega og tekið eftir þegar klerkur hafði sagt, að hvert heimili yrði að senda sinn fulltrúa. Og nú hafði hún einfalda lausn á málinu. — Við sendum hann Tom. Hann getur verið okkar fulltrúi. Hanna frænka hefur augsýni- lega fundið sömu lausn, en hún átti heima i Kastalanum. Eftir mat kom Con, sonur hennar, til okkar, og svo lögðum við tveir af stað i helgistundina i kirkjunni. Það var Con, sem tók eftir hesiihnetunum. Við vorum komnir yfir háa akurinn hans Barretts og inn á engið hans McAuliffe, þegar hann kom auga á tréð. Það var alþakið þroskuðum hnetum, sem báðu um að tina sig. Það var liðið langt ár siðan ég hafði smakkað hnetukjarna og hver biti æsti upp i mér hungrið. Og sama var að segja um Con, og eftir fáeina bita vorum við sam- mála um, að eina ráöið til þess að seðja hungrið almennilega væri að safna okkur nógu mörgum hnetum og halda siðan veizlu. Við rændum svo tréð og Con klifraði upp og fleygði hnetunum niður. En meðan á þessu stóð hafði ég ekki augun af kirkjudyrunum. Fólk var að tinast inn, mest konur og svo krakkar eins og viö. Við höfðum enn tóm til að safna okkur birgðum, en veizlan gæti beðið þangað til helgistundinni væri lokið. En nú var Con kominn i æ'sing. Hann sópaði til sin helmingnum af hnetunum og fann sér stein til þess að brjóta þær. 1 hálftima sátum við þarna og hámuðum i okkur hneturnar og skildum eftir heila hrúgu af skurnum. Nú vorum við orðnir of seinir. Teningunum var kastað, kirkju- dyrnar lokaðar og enginn fulltrúi frá Kilquane né Kastalanum. En þá fór mér að liða illa og fékk súr- bragð i munnunn þar sem áður hafði verið sætabragðið af hnot- kjörnunum. En Con hló bara að hræðslunni i mér. Hann fann samstundis upp afsökun, svo einfalda og frumlega, að enginn hefði getað rengt hann. Og hann var að minnsta kosti ekkert hræddur við afleiðingarnar. Úr þvi að þetta tiltæki okkar var jafn- skemmtilegt og raun var á, var vissulega tilvinnandi að taka af- leiðingunum. Við getum alltaf sagt, að l)Hja hafi dottið ofani skurð, sagði hann. Eða þá, að hún Nonie gamla galdranorn hafi gengið þvert fyrir okkur, svo að við hefðum ekki þorað að halda áfram Þetta siðarnefnda var alveg snilldarlegt. Nonie gamla var talin hafa ,,illt auga” og fólk forðaðist hana eftir megni. En þrátt fyrir allar fullyrð- ingarnar hjá Con, leið mér illa. I’abbi kæmi heim frá Rathfarra og spurði um helgistundina. llverjir voru þar, og væri ég viss um, að presturinn hefði séð mig? Ég taldi upp alla, sem ég hafði séð fara inn i kirkjuna og það virtist honum nægja. .......Allt kvöldið var ég fullur kviða. Hann vakti mig af svefni, og hann var það fyrsta, sem ég fann til þegar ég vaknaði. Hann elti mig i ákólann og brosandi smettið á Con gat litið létt honum af mér. Con gekk á undan mér upp steintröppurnar og ég heyrði hann undirbúa afsakanir okkar, þegar hann talaði við Tomasheen I)unne. — Varst þú við helgistundina, Tomasheen? — Já, en ég sá þig þar ekki. Ég var á leiðinni, en hún Nonie gekk þvert fyrir mig. Og hann Tom — hann var með mér. Hún Nonie! Tomasheen dró snöggt að sér andann og gapti, og hræðslan skein út úr augunum. Hæ, Eric! kallaði hann til stráks fyrii’ framan okkur. — Heyrðirðu þetta? Húri Nonie gekk þvert fyrir framan hann Con. Eric var engu minna hræddur en Tomassheen. Hann leit á Con rétt eins og hann væri hræddur um, að hann mundi gufa upp þá og þogar. — Gvöð! sagði hann og greip andann á lofti. Ég var eini strákurinn af fimm krökkum i minum bekk. Hin voru Aine Sheenan, systurnar Myra og Brigid Doohan, og svo Peg More. Þær höfðu þegar þyrpzt kring um Evrópukortið. Það var föst venja á mánudagsmorgni — fyrst var landafræðin og siðan, þegar þeir seinlátu voru komnir, þá kallaði ungfrú Hartnett upp öll nöfnin. Aine var gáfnaljósið i bekknum og nú var hún að hjálpa Doohan- systrunum með þvi að rekja feril Dónár Systurnar eltu fingurinn á henni með augunum og hlustuðu með athygli á skýringarnar sem fylgdu. ..Dóná er lengsta á i Evrópu, næst eftir Volgu. Hún kemur upp i Svartaskógi og rennur inn i Austurriki gegn um skarð i fjöllunum. Þetta skarð er kallað Karpatahliðið. Áin remmur á landamærum Tékkóslóvakiu og l ngverjalands og rennur áfram unz ...” Ég öfundaði Aine. Hún var uppáhald allra. Þegar presturinn kom i skólann, var hún vön að syngja sáim fyrir hann og hann brosti af ánægju. Gott, gott! sagði hann þá. Nú veit ég, hversvegna kórinn syngur svona vel. Það er a’fþvi að þú stjórnar honum. Aine var eftirlætisbarnið hennar ungfrú Hartnett. Það var Aine, sem merkti við i skrópa- bókina, þegar ungfrúin kallaði nöfnin upp. Hún vökvaði geraniurnar i glugganum og sat alltaf fremst þegar námsstjórinn kom iheimsókn. Þar var hann vis til að taka eftir henni og svörip hennar vorualltaf greið, stuttorð og rétt. Hún var lika uppáhaldið mitt. Hún sagði mér ýmislegt af fólkinu sinu, hvislaði leyndarmálum að mér, svo sem eins og nafnið á kærustunni hans bróður sins, og hversu mikið pabbi hennar græddi á markaðnum, og hversu virðulega ég hafði tekið sakra- mentið skólabarna-sunnudaginn. Stundum þegar við sátum saman Framhald á bls. 34 16 VIKAN 23. TBL.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.