Vikan - 07.06.1973, Blaðsíða 32
SVARTSTAKKU R
— Það er nú alveg sama,
hversu ákveðinn hann verður,
hann fær enga hjálp. Jafnmikið
og í húfi er, verður hvert land
fullkomlega eigingjarnt. Sýnilega
eru frönsku yfirvöldin ekki nógu
fróð um málið, annars hefði þau
haldið Mathews á einhverri tylli-
sök, og mútað honum eða neytt
hann til að afhenda upp-
lýsingarnar, — þeir eru enn á þvi
stigi, að þeir þora ekki að ganga
ofhratt til verks, af hræðslu við að
setja allt út um þúfur. En
samtimis hljóta upphaflegu
þýzku kaupendurnir að vera aö
reyna að ná sambandi við
Mathews - lika mennirnir sem
myrtu Leber en létu sér sjást yfir
Mathews . . .Þú veizt eitthvað
Georg, sem hlýtur að gera þetta
spennandi.
— Spennandi, þó,þó. Hvað
kallarðu þá þetta, sem geröist i
nótt?
— Það var nú bara milliréttur.,
og ég er að hlakka til
aöalréttarins.
— Með blásýru, kannski?
— Æ, reyndu nú að vera dálitið
hress.
— Það skyldi ég vera, ef ég væri
bara ekki hræddur um, að Wright
mundi vilja flá mig lifandi, um
það leyti sem málinu er lokið.
— 0, skíttmeðþaö. Það er sagt,
að það sé fljótlegur dauðdagi,
enda þótt það sé kannski dálitið
sárt. Verrell stóð upp. — Eigum
viö aö labba yfir á Hótel Aumale?
— Hvern skrattann dugar þaö,
ef lögreglan er það á höttunum?
— Afgreiðslumenn i
gistihúsum, eru ekki betur
launaðir - ef ekki verr - en
starfsbræður þeirra í Englandi.
Hnefafylli af frönkum getur oft
gert þá ótrúlega minnuga.
— En hr. Wright sagði, að
kostnaðurinn okkar mætti
ekki . . .
— Gleymdu þvi alveg. Ef við
veröum búnir með okkar slöasta
skilding, get ég alltaf fundið ein-
hvern, sem á ofmikla peninga og
saknar þess ekki þó hann verði af
með eitthvað svolitið af þeim.
Georg svaraði dræmt:
Vinnuaðferöirnar þinar standa að
ýmsu leyti framar okkar
vinnuaðferðum.
Afgreiðslumaðurinn i Hotel
Aumale var fjörutiu og þriggja
ára gamall en leit út fyrir að vera
tiu árum eldri. Konan hans var
alltaf að hriðast i honum, tvö
börn hans á unglingsaldri
fyrirlitu hann, og unga stúlkan i
tóbaksbúðinni, þar sem hann
keypti vindlingana sina, sagðist
vera hrifin af honum, en hún
þurfti bara miklu dýrari gjafir en
hann mundi nokkurntima hafa
efni á að gefa henni.
Forstjórinn kom gangandi yfir
forsalinn. — Hvar er skráin yfir
pantanir fram i timann?
— Ég er ekki alveg búinn með
hana, herra, sagði Blondel.
— Hversvegna ekki?
— Ég hef bókstaflega ekki haft
neinn tima til þess, eins og . . . .
— Þú hefur aldrei tima til að
gera verkin þin. Forstjórinn
stikaði burt.
Afgreiðslumaðurinn hugsaði
sér sjálfan sig meö hnif i annarri
hendi, læðast þegjandi aftan að
forstjóranum, á dimmri
stormnóttu, og kafreka hnifinn i
bakið á honum.
— Góðan daginn.
Blondel hrökk viö, þvi að hann
hafði ekki heyrt neitt fótatak
nálgast borðið sitt. Rétt eins
og ósjálfrátt var hann búinn að
meta finu fötin á Verrell, sterkar
hendur hans og andlitið, sem bar
með sér kæruleysislega afstöðu
tii heimsins og alls, sem I honum
var. — Góðan daginn herra. Get
ég eitthvað hjálpað yður?
— Það er ég ekki alveg viss um.
Verrell athugaði afgreiðslu-
manninn. Fötin hans fóru illa og
gljáðu, og allur maðurinn bar það
með sér aö vera þvi vanari að fá
spark en blómvendi.
— Ætlar herrann aö fá
herbergi? spurði Blondel og var
sýnilega hissa. •
Verrell tók veskið sitt upp úr
brjóstvasanum. Hann opnaði það
og tók upp átta fimmhundruð-
frankaseðla, og fitlaði við þá með
fingrunum Blondel starði á hann
hungruðum augum. — Ég er að
leita að hr. Marshall, sagði
Verrell.
Blondel sleikti hvitar varirnar.
Hann . . .við höfum . . Hann
þagnaði og án þess að gera sér
það ijóst, starði hann á simann,
sem næstur var á afgreiðslu-
.borðinu.
Verrell hélt áfram: — En svo
vil ég heldur ekki láta neinn vita,
að ég sé að forvitnast um hann.
Hann hætti að fitla við seðlana og
hélt þeim kyrrum.
Blondel haföi fengið mjög
ákveöanr skipanir, I fyrsta lagi
frá lögreglunni og auk þess frá
húsbónda sinum. En i huganum
minnti hann sjálfan sig, á að
hvorki lögreglan né húsbóndinn
mundi borga honum þúsundir
franka til þess að gera eins og
honum var sagt. Hugsa sér hvað
unga stúlkan i tóbaksbúðinni yröi
fljót aö endurskoöa afstöðu sina,
ef hún yröi þess vör, að hann hefði
stórfé til að eyða, til að fara meö
hana á staöi, sem hann hafði
hingað til ekki þekkt nema sem
draumsýnir. En ef hann nú tæki
við peningunum, hvað mundu þá
lögreglan og húsbóndinn . . . .?
Verreil hafði ekki augun af
manninum og valdi einmitt rétta
augnablikið til þess að opna
veskið aftur og taka upp tvo
fimmhundurðfranka seöla i
viðbót. Hann bætti þeim rólega
við þá átta, sem fyrir voru og
fitlaði svo við þá meö fingrunum.
Blondel sá forstjórann koma út
úr skrifstofunni sinni sem var
handann við forsalinn, rétt
hinumegin við lyftuna. — Café
Angers, klukkan sex herra, sagði
hann lágt.
Verell stakk penirigunum I vasa
sinn. Hann sagði upphátt, þegar
forstjórinn var kominn innar
heyrnmáls: — Ég skal þá segja
vini minum að skrifa ykkur og
staöfesta þessa pöntun upp á
ágústmánuð . . .
— Þakka yður fyrir herra.
Verrell sneri sér við og gekk út.
Hann labbaði siðan eftir Rue d’
Aumale og kom I kaffihús við
enda götunnar, þar sem hann
settist niður við eitt borðið, undir
stórri sólhlíf. Hann bað um
sitrónusafa og meðan hann beiö
eftir honum, horföi hann á
umferðina. Honum fannst
heimurinn dásamlegur staöur.
Hvers var hægt að óska sér betra
en að vera I Paris i sólskini, og
nægur spenningur beið manns,
rétt handan við næsta horn?
Café d’ Angers var miklu
fremur bar fyrir þá, sem ætluðu
sér að drekka svo að um munaði,
en kaffihús, þar sem menn fengu
sér rétt eitt glas fyrir mat. Það
var dimmt og skuggalegt, og
veggirnir svo óhreinir, að ekki
varð með góðu móti greint,
hvernig þeir hefðu upphaflega
veriö á litinn. Eigandinn, sem af-
greiddi við skenkiboröið, sem lá
meðfram öllum veggnum. leit .út
fyrir að vera lymskur og rudda-
legur og reiðubúinn til að hafa af
gestunum, eftir þvi, sem tækifæri
byðist. Einhverjir langferða-
bflstjórar voru þarna að kasta
teningum og æptu upp við hvert
kast, fjórir menn aðrir voru að
spila, og miðaldra, vesældarleg
hjónaleysi sátu við eitt borðið og
Blondel, sem leit út eins og fiskur
á þurru landi, sat við annað borð.
Verrell kom inn, gekk að
barnum og bað um einn Cinzano.
Eigandinn glápti á hann og áttaði
sg fljótt á rikmannlegum
32 VIKAN 23. TBL.