Vikan - 07.06.1973, Síða 26
1. HLUTI
SUMAR
GETRAUN
VIKAN efnir nú til nýrrar sumargetraunar og eru óvenju-margir og
glæsilegir vinningar i boði. Við höfum valið þá i sambandi við
sumarleyfisferðir, útilegu, veiðiskap og sitthvað fleira. Við bjóðum
ferð til Mallorka fyrir tvo með úrvali, veiði i Hrutaf jarðará og uppi-
hald i Staðaskála, veiðiáhöld og útileguútbúnaður ýmiss konar. Þá
er einnig reiðhjól frá Fálkanum, kvöld fyrir tvo á Hótel Esju og
námskeið i afslöppun og snyrtingu hjá Heilsulindinni. — Getraunin
verður i fimm blöðum. Þegar öll fimm blöðin eru komin — ekki fyrr
— sendið þið lausnirnar til VIKUNNAR, PÓSTHÓLF 533,
REYKJAVÍK og merkið umslagið ,,Sumargetraun”. Haldið öllum
seðlunum saman, þar til keppninni lýkur. Takið þátt i þessari glæsi-
legu og skemmtilegu sumargetraun okkar.
VIKUNNAR
FERÐ TIL MALLORKA fyrir tvo
með ferðaskrifstofunni ÚRVAL er
aðalvinningurinn í sumargetraun-
inni að þessu sinni. Mallorka er að-
einsl/30 hluti íslands að stærð. Þeir,
sem þar hafa dvalið hafa það á til-
finningunni, að eyjan öll iði af líf i og
fegurð. Sagt er, að hver og einn
ferðalangur geti fundið sér eitthvað
við sitt hæfi.
VEIÐI í HRÚTARFJARDARÁ og
uppihald fyrir tvo í Staðaskála í
Hrútafirði ereinn af aðalvinningun-
um í getrauninni. Staðaskála er í
rauninni óþarft að kynna. Þar er
hægt að fá veitingar allan daginn,
góð þjónusta, matur og gisting.
Einnig er hægt að fá tjaldstæði á ár-
bökkunum fyrir neðan með góðri
snyrtiaðstöðu. Bensínafgreiðsla er
þar ennfremur og verzlun,
DBS-REIÐHJÓL er einn af aðal-
vinningunum í getrauninni okkar.
Hér er um vandað og nýtízkulegt
reiðhjól að ræða. Það er framleitt í
Noregi en fæst hér á landi í Fálkan
um. Það er með gírskiptingu og er
mjög svipað -að útliti og Chopper-
hjólin brezku. Stýrið er hátt og sæt-
ið langt. Norðmennirnir kalla þetta
hiól TOMAHAWK