Vikan

Eksemplar

Vikan - 07.06.1973, Side 38

Vikan - 07.06.1973, Side 38
það er áhættuminnst að kaupa stðl semer vandaðrí en gengur og geríst Það er aldrei að vita hver þarf að sitja í honum. GÆÐIN HAFA SITT AÐ SEGJA VALHÚSGÖGN Ármúla 4 simi 82275 85375 halda uppi menningarllfi á svona staö, þar sem fiskurinn og pen- ingarnir skipta ollu? — Það er talsvert menningarlif i Eyjum t.d. blómlegt leiklistar- og tónlistarflif. Við vorum tiltölu- lega nýbúin að opna félagsheimili og höfðum þar opið hús, diskótek o.fl. fyrir unga fólkið. Menntun- arskilyrði hafa stöðugt farið batnandi, við vorum með tónlist- arskóla, stýrimannaskóla og vél-- skóla, auk skyldunámsskólanna, VI bekkur gagnfræðaskóla var i undirbúningi, og við gerðum ráð fyrir, að innan tiðar yrði hægt að tak’a stúdentspróf á staðnum. Það munar um hvert árið, sem börnin geta verið heima, og það var orð- iö minna um það siðustu árin, að unga fólkið færi að heiman. Nú, og svo má ekki gleyma iþróttalif- inu, sem alltaf hefur verið með miklum blóma i Eyjum. — Hvað gerir þú sjálfur i tóm- stundum þinum? — Eg spila golf, þegar ég má vera að, Við eigum mjög skemmtilegan golfvöll úti i Eyj- um, og tslandsmótið átti að fara fram þar nú i sumar. Það verður vist ekki af þvi. En þetta á allt eftir að blómstra aftur. — Er virkilega ekkert erfitt að vera svona bjartsýnn, Magnús? — Það þarf náttúrlega tölu- veröa bjartsýni yfirleitt til þess aö lifa á tslandi. Við þurfum að aðlagast fleiru en eldgosum. En meirihlutinn af öllu þéttbýli á íslandi er á hættusvæði gagnvart eldgosum, og mér finnst við Vest- mannaeyingar vel hafa efni á að trúa á forsjónina. Við hefðum get- aö farið miklu verr út úr þessum hamförum. Við hefðum t.d. getað orðið fyrir miklu manntjóni, ef gosið hefði byrjað sem sprengi- gos, eða ef fyrsta nóttin hefði ver- ið eitthvað i likingu við það sem siðar gerðist, þegar við máttum horfa upp á húsin brenna tugum saman sömu nóttina. Auðvitað er margt ákaflega erfitt viðureignar eins og er, og þeim erfiðleikum lýkur ekki um leið og gosið hættir. En þó að margir telji það kjána- lega bjartsýni, þá er ég sannfærð- ur um, að Eyjarnar byggjast fljótlega aftur upp jafnblómlegar og fyrr og jafnvel enn blómlegri. — Nú ég vildi svo gjarna bæta þvi við, að við erum miklu betur undir það búin að mæta ýmsum erfiðleikum heldur en forfeður okkar. Við þurfum t.d. ekki að fyllast kviða, þó spáð sé eitthvað kaldara veðurfari, viö erum orðin miklu óháðari veðrinu, hvort sem er I landbúnaði eða sjávarútvegi. Margir telja kólnandi veöurfar valda vaxandi fiskigegnd. Og hvað eldgosum viðkemur, þá jókst nú bara hreinlega fiskiriið við Surtsey hérna um árið, bát- arnir voru alla tið að veiðum þar I kring. Ég man eftir þvi, að það voru einu sinni nokkrir bátar að veiðum rétt við Jólni, litlu eyna, sem hvarf, og einn þeirra varð fyrir vélarbilun og rak undireins svo að segja inn I gýginn, svo að honum varð með naumindum bjargað. Og núna i vetur hefur orðið vart við mikinn fisk alveg upp við Eyjar, svo það er eins og fiskurinn dragist að eldsumbrot- um, af hverju sem það getur svo sem stafað. — Eigið þið hjónin hús úti i Eyjum ofanjarðar? — Já, við byggðum þar hús, sem við fluttum I fyrir 6 árum. Það er i kafi á þrjá vegu, en búið að grafa frá innganginum, svo að það má komast inn I það. Það er tiltölulega óskemmt, að visu eru gluggar brotnir og dálitið af vikri inni. — Ekki eruð þið með alla bú- slóðina hér I tveim herbergjum? — Nei, hún er mestöll i geymslu. En það fer vel um okkur hérna, betur en marga aðra Eyjaskeggja. Ég veit t.d. um 18 manns i tveimur herbergjum á einum stað, og vandræðin eru mikil viða. — Það hefur mikið verið rætt um að byggja. upp nýja höfn og nýjan útgerðarbæ einhvers stað- ar við suðurströndina. Hvernig lizt þér á það? — Mér finnst sjálfsagt að at- huga það vel, en ég vona auðvit- að, að höfnin okkar standi, og þá er að öllu leyti betra að byggja upp Vestmannaeyjar að nýju. — Þú vilt sem sagt helzt ekki verða bæjarstjóri i Dyrhólaey? — Ja, ég segi það ekki. Ef Vest- mannaeyingar byggðu þar nýjan bæ, þá mundi ég varla neita þvi, ef þeir vildu hafa mig. En það er ekki gefið mál, að við værum bet- ur sett I nábýli við Kötlu gömlu, sem alltaf má búast við að fari að gjósa. Mér datt undreins i hug, þegar ég varð var við jarðhrær- ingarnar á undan Eyjagosinu. Mér datt satt að segja ekki i hug, að það gæti gosið svona rétt hjá okkur, maður hélt, að surtur hefði létt nægilega á þrýstingnum. En það eru harla litil likindi til þess, að gos verði á þessu svæði aftur næstu aldirnar, þar sem aftur á móti sifellt er búizt við þvi, að Katla fari að rumska. — Að lokum, Magnús, ætla ég að gefa þér kost á óskaviðtali. Hvaöa mann vildirðu helzt lesa viðtal við i Vikunni? — Það er ekki erfitt val fyrir mig. Prófessór Þorbjörn Sigur- geirsson er maður, sem ég dáist að og vildi gjarna gefa fleirum kost á aö kynnast. Hann er mað- urinn á bak við þann árangur, sem náðst hefur úti i Eyjum i bar- áttunni við hraunrennslið. Talaðu við hann. Ég hringdi til Eyja, þvi auðvit- að var Þorbjörn staddur þar. Hann tók erindinu ljúfmannlega,

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.