Vikan - 07.06.1973, Side 49
— lig tek þennan hérna, hann
er svo vinalegur!
— É'g skil ekki hvernig þú get-
ur slitið svona göt á sokkana!
— Talaðu ekki við mig í þess- ’
um tón, ég er ekki maðurinn
þinn!
— Þessi bíll væri ágætur í
kappakstur, hann liggur svo vel
í beygjunum!
er til valda, fengu bráðlega
ástæðu til þess að iðrast þess.
Flokkarnir voru bannaðir og
einstakar stofnanir innan þeirra
voru sameinaðar nasistahreyf-
ingum.
Á meðan þessu fór fram var
jafnframt unnið að réttarhöld-
unum, sem áttu að sanna, að
kommúnistar væru ábyrgir fyr-
ir þinghúsbrunanum.
Réttarhöldin yfir Marinus
van der Lubbe og „öðrum
brotlegum" áttu að verða mik-
ill áróðurssigur nasista en urðu
mikið siðferðislegt áfall.
„Aðrir brotlegir“ voru for-
maður þingflokks kommúnista,
Ernst Torgler, og þrír landflótta
búlgarskir kommúnistar, Dimi-
trov, Popov og Tanev. Torgler
gaf sig fram við lögregluna af
sjálfsdáðum, þegar honum barst
til eyrna sá orðrómur, að hann
hefði átt að hafa skipulagt
þinghúsbrunann.
Búlgararnir þrír voru hand-
teknir af þeirri ástæðu einni,
að sagt var að þeir hefðu hegð-
að sér á „vafasaman hátt“. Það
gerðist eftir að þjónn, sem af-
greiddi þá á kaffihúsi í Berlín,
sagði að þeir litu út eins og
samsærismenn.
Dimitrov var staddur í Mún-
chen, þegar þinghúsið brann —
fjarvistarsönnun hans varð
ekki haggað, þó að nasistar
gerðu allt sem þeir gátu til
þess. Þess vegna var allt kapp
lagt á að sanna á hann undir-
búning glæpsins.
Þessum mönnum var haldið
í varðhaldi í fimm mánuði áð-
ur en sjálf réttarhöldin hófust,
Nasistar höfðu þegar hreinsað
til í lögreglunni, en réttarkerf-
ið var enn tiltölulega óspillt
enda hafði meirihluti dómara
verið skipaður í embætti fyrir
fyrri heimsstyrjöld.
Hálfblindi geðsjúklingurinn,
Marinus van der Lubbe, hélt
fast við þann framburð sinn,
að þetta hefði verið „hans“
íkveikja. Hann var stoltur af
brunanum og reiddist, ef nokk-
ur leyfði sér að efast um að
hann hefði staðið einn að hon-
um. Það var þó ekki hægt að
ganga fram hjá þeirri stað-
reynd, að van der Lubbe var
haldinn íkveikjuæði og skórti
auk þess á að geta talizt hafa
eðlilega greind og því ótrúlegt
að hann hefði getað komið af
stað slíkum stórbruna á eigin
spýtur.
Búlgarinn Dimitrov varð að-
alpersóna réttarhaldanna. Hann
var stórgáfaður og snillingur í
kappræðum enda tókst honum
hvað eftir annað að láta ákær-
MIDAPRENTUN
Látið prenta ails konar aðgöngumiða, kontrol-
númer, afgreiðslumiða og fleira á rúllupappír.
Eina prentsmiðjan á landinu, sem prentar
slíka miða. Höfum einnig fyrirliggjandi og
útvegum með stuttum fyrirvara ýmiss konar
afgreiðslubox.
LEITIÐ UPPLÝSINGA
HILMIR HF
Síðumúla 12 - Sími 35320
23.TBL. VIKAN 49