Vikan

Ataaseq assigiiaat ilaat

Vikan - 16.08.1973, Qupperneq 4

Vikan - 16.08.1973, Qupperneq 4
P0STURINN El bú ert afl: BYGGJA. BREYTA EBA BÆTA bá IfttB við í Lítavm. bví bað hefnp ávallt birgaO sio LITAVER Símar 32262 - 30280 oo 30480 Grensásveoi 22-24 HVAÐ ÞARF ÉG AÐ VERA GÖMUL TIL AÐ FA PILLUNA? Kæri Póstur! Ég vil byrja á þvi aö þakka þér fyrir allt gamalt og gott. Ég hef aldrei skrifaö þér áöur. Mig lang- ar aö vita hvernig krabbinn (stelpa) og drekinn (strákiir) passa saman. Svo langar mig til þess aö spyrja þig, hvaö maöur þarf aö vera gamall til þess aö geta fengiö pilluna? Ein forvitin „liú hrlfur hann, getur gert hannaö þvl, sem hann vill veröa, ef þú vilt.” Svo segir I stjörnuspá ástarinnar um krabba og dreka. Einhvcrs staöar stendur þaö skrifaö, aö stúlkur þurfi aö vera 16 ára gamlar til aö fá pilluna.En ætla má, aö einhverjir læknar skrifi lyfseöil á pilluna fyrir yngri stúlkur, fyrst þær eru byrjaöar aö sofa hjá strákum á annaö borö. SPENNANDI BtÓMYND! Kæri Póstur! Þannig er mál meö vexti, aö ég var I partýi hjá vinkonu minni. Þar.dansaöi ég viö strák, sem ég hef lengi veriö skotin I, en ég veit ekki, hvort hann er skotinn I mér. KI. hálf nlu baö hann mig aö koma fram I eldhús, og þar fengum viö okkur gos. Þar spuröi hann mig, hvort ég vildi ekki frekar koma I bló, á slöustu sýningu á Easy Rider. Ég sagöi já, þvl aö mig haföi alltaf langaö á þessa mynd. Hún var ofsa spennandi og ég gleymdi mér alveg viö aö horfa á hana. Allt I einu var hann farinn aö kyssa mig. Ég streyttist ekki á móti og þá varö hann ákafari. Svo fórum viö bara aö kyssast I bló- inu.Ég . hélt, aö ástin væri gagnkvæm. En daginn eftir hitti ég hann á götu. Hann var meö fleiri strákum og lét sem hann sæi mig ekki. Ég er alveg i öngum mlnum. Helduröu aö hann hafi ekki viljaö láta strákana vita, aö hann þekkir mig og aö ég eigi aö reyna aö ná sambandi viö hann aftur, eöa helduröu, aö þetta sé skyndiást, sem hann skammast sln fyrir? Elsku póstur þú veröur aö birta þetta bréf og svara mér, því aö ég er aö deyja úr áhyggjum. vfegdhm. Ætli strákurinn sé ekki bara feiminn. Þú veizt nú, hvernig strákar á þessum aldri eru. Þú ættir aö láta sem þú sjáir hann ekki næst, þegar þú hittir hann, þannig aö hann fái aö hafa fyrir þvi aö endurnýja kunningsskap ykkar, ef hann hefur þá áhuga á þvi. HVERNIG ER BEZT AÐ SKEMMTA SÉR I REYKJAVIK Elsku póstur! Ég er nltján ára stelpa, sem býr I Reykjavlk. Ég get ekki 'sagt, aö ég sé neitt öörúvisi en fólk er flest, er hvorki sérstaklega sæt né ljót. Ég hætti I skóla eftir gagnfræöapróf og hef nú unniö I tvö ár á skrifstofu. Vinnan er ágæt, þó að fólkiÖ á skrifstofunni sé frekar liflaust. Þegar ég flutti til Reykjavikur fyrir þremur ár- um, var ég oft einmana og þekkti fáa. Svo kynntist ég strák, sem ég var meö I rúmt eitt ár. Þaö var ágætis strákur, en samt var ég fegin, þegar viö hættum aö vera saman. Siöan viö hættum að vera saman hefur mér leiözt. Ég þekki fáa og fólkið á skrifstofunni er allt miöaldra. Ég hef gert margar til- raunir til aö fara á skemmtistaö- ina I bænum, en finnst leiðinlegt þar. t Klúbbnum er bara fólk, sem gæti veriö klippt út úr hálfs árs gömlu tízkublaði og ú voða- lega erfitt meö aö komast i sam- band við það. Ég drekk litiö og reyki ekki og hef það stundum á tilfinningunni, aö ég sé gamaldags. Ég hef oft verið að velta þvi fyrir mér aö flytja aftur (ég er frá smábæ úti á landi) en vil helzt ekki gefast upp og þar er llka allt svo leiöinlegt. Jæja póstur minn. Ég hef lesiö mörg góö ráö, sem þú hefur gefiö, þó mörg séu lika vitlaus. Eg ætla nú aö biöja þig aö ráöleggja mér, hvernig ég geti skemmt mér bet- ur hér I Reykjavík. Hvernig ég getkynnztfólki. Þetta er ef til vill undarleg bón, en mig langar samt til aö biöja þig aö hjálpa mér. Meö fyrirfram þökk Asta Einhvern tima hefur þvl veriö haldiö fram, aö Reykjavlk sé heimsins minnsta stórborg. Ekki veit ég, hversu mikiö er til I þvi, cn samt er lariö aö örla á stórborgarvandamálunum i Reykjavik. Borgin þýtur út og stækkar meö hverju árinu. Þaö er ekki lengur hægt aö labba niö- ur I bæ á góöviörisdegi sannfærö- 4 VIKAN 33. TBL,

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.