Vikan

Issue

Vikan - 29.11.1973, Page 4

Vikan - 29.11.1973, Page 4
ÍY /1 j=VL_ SKARTGRIPIR UWU^r^U^l Lz. JÖLAGJÖFIN f AR Modelskartgripur er 'gjöf sem ekki gleymist. s Sigmar O.Mariusson Hverfisgötu 16a." Sími 21355 Dósturinn UM KLAUSTURLIFNAÐ Kæri Póstur! Mér leikur forvitni á svo mörgu, en hér er ég með eitt, sem ég hef mikinn áhuga á, og ef þú getur og vilt vera svo vænn að leysa úr eftirfarandi spurningum. 1. 'Hvað þarf ég að vera gömul til að komast i klaustur? 2. Hvað er reynslutiminn langur? 3. Er maður algjörlega ein- angraður frá umheiminum, meðan á reynslutimanum stendur? 4. Hvað aðhefst maður svona dagsdaglega i klaustri? 5. Get ég t.d. farið i klaustriö i Hafnarfirði og talað um þetta við abbadisina þar? Ég held það sé ekki fleira, sem mig langar tilað vita. Ég vona, að þú getir svalað forvitni minni. Vinkona min spyr, hvernig tvi- burar og bogmaður eigi saman og hvaða merki eigi bezt við tvibura. Meö kæru þakklæti,* ein, sem vill einangra sig frá umheiminum Ef þú getur oröið þér úti um 24. tbl. af Vikunni, sem út kom 13. júni 1963, geturöu þar fengið svalaö forvitni þinni um klaustur- lifnaö á isiandi. Þar birtist prýöi- leg grein meö viðtali viö prl- orinnuna i Karmelitaklaustrinu I Hafnarfirði og auk þess myndir, sem nunnurnar tóku sjálfar inni i kiaustrinu. i viötalinu segir prl- orinnan m.a. aö enn sé beðiö eftir fyrstu IslenYku nunnunni, og liklega er svo ennþá. Eti ég skal reyna að leysa úr spurningum þfnum, ef þú skyldir eiga Ohægt meö aö útvega þér þetta blaö. 1 Þaö veit ég ekki. 2. Reynslutfmi hjá Karmelita- reglunni er minnst hálft fimmta ár. 3 Já. 4. i fyrrgreindu tbl. Vikunnar er priorinnan spurö, hvernig deginum sé ráöstafaö i klaustrinu, og hún svarar orörétt: „Viö förum á fætur kl. 5.40. Klukkan sex hefst sameiginleg bænastund, siðan er ein klukku- stund I þögn til einkahugskoðunar og enn sameiginieg bæn f klukku- stund. Klukkan niu til ellefu sinnum viö ýmsu starfi innanhúss eöa úti i garöinum og ræstum klefa okkar, en klukkan ellefu er . enn sameiginleg bæn. Viö snæöum kl. 11.30. Frá þvi kl. 12.15 til 1.15 er hádegishvild, OG ÞÁ MEGUM VIÐ FYRST RÆÐAST VIÐ. Þvi næst vinnum viö til kl. 2, en þá snúum viö okkur enn til Guös i bæn. Fr.á kl. 2.30 til kl. 3 lesum viö einhver trúarrit. Loks vinnum viö I tvær stundir. Milli . klukkan 5 og 6 er þagnarstund^l hugleiöinga, og eftir þaö setjumst viö aö kvöldverði. Viö söfnumst saman til bænahalds frá kl. 7.30 til kl. 8 og lesum siöan I bibllunni til kl. 9.30. Þá göngum viö til náöa.” 5. Þú fengir áreiöanlega mjög vinsamlegar viötökur þar. Loks geturðu svo sagt vinkonu þinni, að hrútur, naut, júmfrú, vog og bogmaður séu öll talin gOÖ merki tvlburanna. ÞAÐ VAR ÞA KARL, SEM SAUP Háttvirti ritstjóri! Mér var það söníi ánægja að sjá stóðréttaropnu Vikunnar i 41. tbl. 11. okt. Þvi miður hafa oröiö mis- tök með texta á einum staö, þar sem segir, að vel liggi á þeim Pétri á Hjaltastöðum og Eysteini i Stokkhólma. Þaö hefur án efa legið vel á Pétri, en um Eystein er ekkert hægt að fullyrða, það eð myndin er alls ekki af honum. Þessi maður, sem sýpur svo vel á vasapelanum, er heiðursmað- urinn Karl 1 Hofstaðaseli. Það ermin einlæg ósk, að þetta verði leiðrétt sem fyrst. Anna Jóhannesdóttir Bólstaöarhlið, A-Hún. Viö biöjumst afsökunar á mistökunum og vonum ein- læglega, aö þaö liggi nú þrátt fyrir allt vel á þeim sem oftast, bæöi Eysteini I Stokkhólma og Karli I Iiofstaöaseli. I annan staö misritaöist nafn, þar sem stóö Undirdalsrétt I staö Undirfells- rétt, og notum viö þá tækifæriö aö leiörétta þaö lika. SVAR TIL AEO. ISR. Eins og margoft hefur veriö tekið fram, þá erum viö alltaf svolitiö á eftir sjálfum okkur hérna, þar eð Vikan er prentub nokkuð fram i timann. Þaö er óhjákvæmilegt enn sem komiö er a.m.k. Þess vegna ertu liklega endanlega dáin úr þessari eld- heitu ást eöa búin aö snúa henni upp á annan pilt, svoleiöis tekur ekki langan tima á þessum aldri. En sé enn allt viö hiö sama, þá eruö þiö bæöi meö framtaks- lausustu unglingum, sem um getur, nema þaö sé bara mis- skilningur hjá þér, aö hann sé nokkuö skotinn i þér. Tviburi og ipeyja eiga allsæmilega saman, en þaö getur oröiö stutt i sam- bandi þeirra. 4 VIKAN 48.TBL. !

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.