Vikan

Tölublað

Vikan - 29.11.1973, Blaðsíða 17

Vikan - 29.11.1973, Blaðsíða 17
 Péturssonar. Linda syngur vis- urnar, sem eru öllum löngu kunn- ar. En hvernig varð þetta lag til? „Ja, við Hallgrimur sömdum þetta hérna fyrir nokkru, — nei annars, maður má ekki segja svona. Hann Hallgrimur gamli hefur eflaust snúið sér oftar en einu sinni við i gröfinni, þegar við vorum að æfa þetta. En þetta er eitt af þessum lögum, sem maður gripur úr tóminu”. Það var og. Kannski hefur Hallgrimur rétt honum hjálparhönd. Lestin inikla er ljóð Tómasar Guðmundssonar og við það hefur Jón gert ágætí lag. „Þetta lag var mjög vandasamt i útsetningu og við fengum Helga Bragason til að útsetja fyrir okkur. Honum .tókst mjög vej að halda þeim einfald- leika, sém ég hafði gefið laginu i upphafi”, upplýsti Jón. „Þaðæru bæöi fiðlur og celló i þessu lagi, sem Helgi hefur útsett af miklum hagleik og við gerðum allt, sem hægt var til að fá þetta sem best út. Þeir i stúdióinu voru orðnir ansi pirraöir á okkur i' restina, sérstaklega vegna þess hve við fylgdum eftir öllum smáatriðum. Uppáhaldsblótsyrðið þeirra var „bloddy perfectionist” Og til þess aö allir skilji þetta merka blóðsyrði var hafinn mikil leit að islenzku orði, sem merkti það sama, en ekkert fannst. Nokkrar tillögur komu þó, hver annarri betri að sjálfsögðu: Helv.... fullkomnisti, helv... fullkomnunaristi eða bara fullur kommunisti. Þegar hér var komið i að leika lögin af þessari væntanlegu hljómplötu frá Litið eitt, var kominn værðarsvipur yfir alla, svo mikil' og góð áhrif höfðu lögin á mann. Þau eru flest frekar ró- leg og láta vel i eyra. Allir voru komnir i hátiðarskap, þegar Gunnar sá skyndilega aö viö svo mátti ekkibúa og... „þetta er ekki hægt strákar, við verðum að gefa verkjaraklukku með hverri plötu”. Det var nu det. Og allt i einu var kominn Mánu- dagurá segulbandið, lag sem eitt sinn var flutt af Peter, Paul og Mary. Islenzkan texta hefur Val- ur Oskarsson gert. Þetta er, að sögn, eina lagið sem Litið eitt hef- ur flutt tvisvar I röð sökum þess, hve góðar undirtektir það hlaut i fyrra skiptið. Næstslðasta lagiö á plötunni er A kvöldin, erlent lag, sem Hörður Zophaniasson hefur gert Islenzkan texta við. „Þetta lag sungum við alltaf hér I gamla daga, þegar við vorum ennþá vel klipptir og i pressuðum buxum^ hérna á „vestatimabilinu”. Á verstatimabilinu, hváði ég. „Já, viö vorum allir alltaf I vestum, maöur”. Hin vinnandi stétt.er lokalagiö á plötunni, skozkt þjóölag, sem Lárus Sólberg Guðjónsson hefur gert íslenzkan texta viö. ööur til hins vinnandi manns. Með þessari plötu er lokið ferli Litið eitt. Þau hafa ákveðið að draga sig I hlé og hugsa hver um sitt. Þau telja, að með þessari L.P. plötu hafi þau náð eins hátt og þau telja sig geta i bili. Og vist er aö L.P. plata þessi er verðugur minnisvaröi um Litið eitt. Og þaö fer ekki illa, að enda þennan pistil um Timana sem liöa og Lltið eitt, meö kvæði, sem þau syngjá á plötunni, Lestin mikla, eftir Tómas Guðmundsson. Engum er ljóst hvaðan lagt varafstaö né hver lestinni miklu ræður Við sláumst i förina fyrir það jafnt fúsir sém nauöugir bræður. VINSÆLDAKOSNING I jólablaðinu, sem kemur út i næstu viku, veröur kosningaseðill fyrir vinsældakosningu þáttarins 3M. Kosningaseðillinn mun að- eins birtast i jólablaðinu, sem er gefið út i helmingi stærra upplagí en venja er til. Skilafrestur seðla er til áramóta og úrslitin veröa kynnt I janúarmánuði. Kosið verður um bestu þljómsveitina, besta lag útkomið á hljómplötu, besta lagasmiðinn, besta söngv- . arann, bestu söngkonuna. Þegar úrslit eru kunn, verða fundnir all- ir þeir kosningaseðlar, sem inni- halda þau fimm nöfn sem hlutu fyrsta sæti, þ.e. kusu nöfnin sem hlutu fyrsta sæti. Dregiö verður úr seoiunum og verða veitt vegleg verðlaun. Lesendur eru hvattir til að taka virkan þátt I þessari vin- sældakosningu og sýna þannig á- huga sinn* i verki. Hvort slikt verður reynt áftur veltur á þátt- töku þinni núna. Það er sem sagt næsta blaö sem gildir. lagið i miklum flýti og náði þvi, að ég held, ágætlega. Ég var þó ansi linmæltur á einu orðinu, sagði alltaf gonur I staðinn fyrir konur. Ég haföi aldrei tima til að kyngja munnvatninu, en það hafði ekki svo mikið að segja og bjórinn fékk ég að launum. Fiðlarinn svingaði ofsavel i þessu, enda hafði hann fengið það sem til þurfti áöur. Hann vann svo sannarlega fyrir laununum sinum sá”. Og þaö er ekki orðum aukið, lofið á fiðlarann. Fiðluleikur á plötunni kemur mjög vel út og gefur einstaka lagi dálitinn ame- riskan country „filing”, sem er skemmtileg nýbreytni I flutningi islenzkra þjóðlaga hljómsveita á hljómplötum. „Mörgum þótti þetta aumt, þegar við byrjuðum að æfa Hæ Kalli.Ég var að reyna að spila á mandólin, sem ég hafði aldrei snert á áður”, sagði Jón, „en þetta gekk svona allt upp I lokin og mér finnst lagið bara skemmtilegt”. Gunnar hefur einnig samið lag við Heilræðavisur Hallgrims 48/TBL. VIKAN 17

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.