Vikan


Vikan - 22.05.1974, Blaðsíða 14

Vikan - 22.05.1974, Blaðsíða 14
I <)f hár blóðþrv'stingur — Þegar ég f'ór i læknisskoðun i vinnunni, var mér sagt að blóð- þrýstingurinn hefði hækkað. Mér finnst þetta svolitið uggvekjandi, hvað getið þér róðlagt mér? Ég hefi aldrei á ævinni fengið höfuð- verk, svo ég get ekki skilið hvers- vegna blóðþrýstingurinn hækkar. — Það er yfirleitt ekki samfara háum blóðþrýsting, að fá höfuð- verk, sagði ég konunni. — Siðustu rannsóknir hafa einmitt leitt i ljós, að fólk með of háan blóðþrýsting kvartar ekki um höfuðverk: raun- ar er höfuðverkur algengari hjá fólki með eðlilegan blóðþrýsting. Það sama er að segja um blóð- nasir og hljóm fyrir eyrum. Jafn- vel svimi orsakast sjaldan af of há- um blóðþrýsting, nema þá að þessi hái blóðþrýstingur sé kominn á hættulegt stig og yfirlið eru jafnvel tiðari hjá fólki með eðlilegan eða of lágan blóðþrýsting. Mörg einkenni, sem áður hafa verið skrifuð á háan blóðþrýsting, eru oftast af ein- hverjum öðrum orsökum. Of hár blóðþrýstinur kemur oft i ljós við rannsóknir, eins og yðar tilviki. Ég sagði henni, að það væri eðli- legt, að blóðþrýstingurinn hækkaði með aldrinum. Hann er næstum helmingi hærri hjá fullorðnu fólki, en hjá börnum. Svo fer töluvert eftir þvi hvernig fólk er búið undir rannsókn á blóð- þrýstingi. Hann er hærri ef viö stöndum upprétt og sitjum. heldur en þegar við liggjum út af. Blóð- þrýstingur er hærri rétt eftir mál- tiðir, eftir mikla hreyfingu og sömuleiðis ef fólk verður fyrir andlegu álagi. Blóðþrýstingur er svo breyti- legur hjá heilbrigðu fólki, hvað þá, ef um sjúkleg einkenni er að ræða, að það þarf að rannsaka hvern ein- stakling sérstaklega, til að vita hvort blóðþrýstingur sé alltaf of hár. Það þarf, til dæmis, ekki annað, til að hækka blóðþrýsting, en að fara i fyrsta sinn til rann- sóknar. Þá getur verið um stundarfyrirbæri að ræða. Og eftir að fólk er komið á sextugs aldur, er yfirleitt hægt að búast við háum blóðþrýstingi. Þetta virðist fara nokkuð eftir lifnaðarháttum, þvi að hár blóð- þrýstingur er yfirleitt hærri hjá fólki i vestrænum velferðarrikjum, — en i einstökum tilvikum virðist of hár blóðþrýstingur ganga i erfð- ir. Áður en hægt er að segja nokkuð um yðar tilfelli, þá verður að gefa sér tima til að rannsaka það ná- kvæmlega: taka blóð- og þvagsýni og röntgenmyndir af hjarta og brjóstholi.... — En hvað með læknisaðgerðir? — Aðgerðir við of háum blóð- þrýsting hafa tekið miklum fram- förum á siðustu tuttugu árum, sér- staklega hvað lyflækningar snert- ir. En það verður að finna það sem hæfir hverjum einstakling. En eitt er að minnsta kosti örugglega hægt að ráðleggja öllum, sem hafa of háan blóðþrýsting og það er að hætta að réykja. Það er ekki lengur lagt svó mikið upp úr sérstöku mataræði, eins og saltlausum mat, en það er nauðsynlegt að koma i veg fyrir offitu. Með góðu sam- starfi við lækni sinn, ætti sjúk- linngur, með of háan blóðþrýsting, að ná góðum árangri. URIDAGBOK LÆKNIS Grasalæknirinn__________________ framhald af bls. 13 höndunum og skaui fram öxlun- um. Prófessorinn hallaöi sér að henni og tók i hönd hennar. Ilann hélt i Itana i nokkrar sekúndur. en sleppti henni siðan og lagði eyrað að hrjóstinu a henni. til þess að hlusta hjart- slúttinn. Meðan hann var að þvi. lagaði Effie nokkra lokka. sem höfðu fallið niður á gagnaugun á henni. Hann leit upp setn snöggvast. Kannski vildirðu annað ... Auðvitað. prófessor. sagði Effie með ákafa. Hann beygði sig nær. eltir að hún hafði losað um blússuna og hlustaði. Hjartslátturinn i henni hamaðist i evranu á honum. Eftir stundarkorn rétli prófessorinn úr sér. losaði hnút- inn á hálsbindinu sinu og þerraði svitann af errivörinn á handarbakinu. l>að var heitt þarna inni og engin loftra-sting, þar eð dyrnar voru lokaðar — Kannski var ég búinn að segja þér .... — Nei, nei! Þér hafið ekkert sagt mér, sagði hún með ákafa, spennti greipar og horfði niður á sjálfa sig og hélt niðri i sér andan- um. — En blessaður segiö' þér mér það. prófessor. Kannski. sagði hann og fitlaði við blússuna. kannski vildirðu vita, að rótarmeðalið er einasta hjálpræðið til góðrar heilsu. svona almennt tekið. sem nú er á markaðnum. ()g auk lækningamáttarins, hefur það i sér kraft. sem ílestar konur óska sér. miðaldra og eldri. Með öðr- um orðum þá vekur það nýjan mátt i vissum kirtlum. sem þarf að endurnýja. Ég er viss um. að jafnskjótt sem þú finnur hjá þér vnginguna, sem rötarmeðalið veldur. muntu aldrei vilja vera án þess að hala það við höndina. Yfirleitt get ég sagt það. án þess að ýkja. að .... Effie lagði frá sér blússuna. — Viljið þér þá. að ég fari úr .... — Já. gerðu það. flýtti hann sér að segja. — Nú. eins og ég sagði áðan .... — Og úr þessu'í Hessu lika? Prófessorinn hallaði sér að henni°6kleip hana ofurlitið. Effie skrikti og strauk hendi yfir brjóstið. rétt eins og hún væri að slétta úr blússunni sinni. Ekki vænti ég. að þér séuð með eitt glas til i vasanum. prófessor Eaton? — Það er ég hræddur um ekki, en úti i bilnum er nóg af þeim. Ef ég má, ætla ég að skjótast út og — Nei! flýtti Effie sér að segja um leið og hún tók i handlegg hans og dró hanri niður i sætið hjá sér. — Æ. prófessor Eaton, þér megið ekki fara frá mér! — Gott og vel, sagði hann og kom sér aftur fyrir við hliðina a henni. — Og nú. eins og ég sagöi. þá er i rótarmeðalinu alveg yfir- náttúrlegur kraftur til endur .... - Á ég að fara úr þessu lika. prófessor Eaton? Framhald á bls. 29

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.