Vikan - 22.05.1974, Blaðsíða 25
Sjómannsbuf f
ca. 600 gr. nautakjöt í bitum eða
sneiðum
8—10 hráar kartöflur
4 gulir laukar
3— 4 msk. smjör eða smjörliki
1—2 gulrætur
4— 5 dl. vatn
1— 2 kjötkraftsteningar
2— 3 lárviðarlauf
10 hvit piparkorn og 10 svört
piparkorn
steinselja
Flysjið og skerið laukinn i báta og
steikið i dál. feiti á pönnu. Skerið
kjötið i bita, saltið og piprið eftir
steikingu. Kartöflurnar flysjaðar
hráar og skerið i sneiðar ásamt
gulrótunum, þó ekki of þunnt.
öllu blandað i eldfast form eða
pott ásamt piparkornunum, setjið
lárviðarlaufin saman við og hellið
yfir sjóðandi soði og er kartöflu-
lagið haft efst og neðst. Setjið lok
á eða álpappir og látið þétt að.
Setjið siðan i ofn við 225 gr. i ca. 45
minútur. Setjið siðan beint á
borðið og stráið klipptri steinselju
yfir.
Franskur lambakjötsrétt-
ur
ca. 1 kg. frampartur
1 tsk. salt og nýmalaður pipar
ca. 200 gr. smár laukur
2 dl. þurrkaðar hvitar baunir
Til suðu:
1 1/2—2 ltr. vatn
1— 1 1/2 msk. salt
10 piparkorn svört og hvit
3—5 negulnaglar
1 lárviðarlauf
2— 3 hvitlauksbátar
1 msk. olia og 1 msk. edik
1 ds. tómatar
ca. 1 dl. tómatkraftur
ca. 1 tsk. oregano (eða annað
jurtakrydd)
Látið baunirnar liggja i bleyti i
ca. 8 klst.
Látið siðan sjóða næstum meyrar
istórum potti með kryddinu, hvit-
lauk, oliu og ediki i ca. 45 minút-
ur. Aætlið að baunirnar þurfa lika
að sjóða með kjötinu. Hellið vatn-
inu af.
Steikið kjötið og látiö sjóða i mjög
litlu vatni i ca. 1—1 1/4 klst. Steik-
ið smálaukinn i sama, og látið
krauma i ca. 1/2 tima.
Skerið siðan kjötið i bita og setjiö
yfir baunirnar ásamt lauknum.
Siið soðiö yfir og setjiö tómata
saman við, kjötkraftstening og
kryddið. Látið krauma saman i
ca. minútu. Bragðið til og aðgæt-
ið, að baunirnar séu orönar meyr-
ar. Kryddiö meira, ef þörf gerist
og ef til er hvit- eða rauðvin,
skemmir ekki að setja 1—2 msk.
af þvi.
21. TBl. VIKAN 25