Vikan


Vikan - 22.05.1974, Blaðsíða 29

Vikan - 22.05.1974, Blaðsíða 29
Grasalæknirinn framhald af bls. 13 ARRID Arrid extra dry svitaspray sér fyrir óskum allra: Þurrt spray meö ilmi (rautt lok), þurrt spray án ilmefna (blátt lok), fyrir viö- kvæma húö (grátt lok). Kaupið Arrit svitaspray strax í dag. aiui-jierspir t'\'»>i> v itfodorant - 1 ' ÍHll-|M'lNpÍ (It’mlora i&GRAHS vitm i:\TKA 1)R) OaiiNSCENTffi anii-|M*rs|)iniiii JOCMKÍ Umboösmenn Kristjánsson h/f simar 14878 — 12800 — Já, auðvitað, sagði hann. — Og Indiána-rótarmeðalið hefur aldrei brugðizt, en aftur á móti hafa önnur meðöl.... — Á ég að fara úr öllu ....? — Já, vitanlega. Þar sem ég er doktor i læknavisindum, áuk margs annars, verð ég að hafa al- gjörlega frjálsar hendur. Ef þú þorir ekki að leggja þig algjör- lega i minar hendur væri það kannski betra. að ég .... — Æ nei, farið þér ekki! æpti Effie.og dró hann til sin aftur. — Þér vitið, að ég ber fullt traust til kunnáttu yðar, og veit, að þér munduð ekki .... — Mundi ekki hvað? sagði hann og leit enn niður á hana. — Æ, prófessor Eaton, ég erekki annað en ung stelpa. — Nú jæja, sagði hann. Ef þú ert reiðubúin til að leggja þig al- gjörlega i minar hendur, get ég haldið áfram með rannsókn mina. Að öðrum kosti .... - Æ, ég var bara að striða yður. prófessor Eaton, sagði Effie og þrýsti hönd hans. — Auðvitað treysti ég yður. Þér eruð svo sterkur maður og munduð aldrei fara að neyta aflsmunar við veik- byggða unga stúlku eins og rhig. Ef þér ekki gættuð min. mundi ég hlaupa burt með sjálfa mig. — Vitanlega, sagöi hann. — Ef þér nú viljið halda áfram að fara úr.... — Það er ekki annað eftir en þetta, prófessor Eaton. Eruð þér viss um, að þetta sé allt í lagi ....? — Að sjálfsögðu. — En mér finnst bara ég vera svo ...ber. — Það er ekki nema eðlileg til- finning, sagði hann og reyndi að hugga hana. — Ung stúlka, sem hefur aldrei reynt .... — Reynt hvað? — Já .... eins og ég var að segja — Þér gerið mig eitthvað svo ... skritna. Eruð þér vissum ...? — Alveg hárviss. Mér hefur aldrei liðið svona áður. Það er rétt eins og .... — Leggðu þig algjörlega i min- ar hendur, stúlka min, og ég lofa þér þvi, að ekkert skal .... En nú var hurðinni hrundið upp fyrirvaralaust og Burke, bróðir Effie kom inn. Burke var lög- regluþjónn þorpsins. — Er maturinn til, Effie? sagöi Burke, þar sem hann stóð i dyrunum og varð aö venja augun i sér við hálfrökkrið i stofunni. — Klukkan er orðin korter yfir tólf og .... Burke þagnaði i miðri setningu og glápti á þau Effie og Eaton prófessor. Effie rak upp vein og ýtti prófessornum frá sér. Hann stóð upp og svo stóð hann þarna hjá sófanum og leit fyrst á Burke og siðan á Effie. Hann vissi ekki, hvað hann átti til bragðs að taka. Effie seildist eftir flikunum, sem hún hafði fleygt frá sér. Prófesorinn laut niður, tók ein- hverja flik og fleygði i hana. ■ Snögglega fannst Eaton prófessor sem stofan væri orðin albjört. — Ja, nú dámar mér .ekki! sagði Burke.og gekk hægt yfir gólfið. Skammbyssuhylkið hans hékk á hægri mjöðminni og dinglaði með hverju skrefi sem hann gekk. — Ja, nú detta mér allar dauðar lýs úr höfði! Eaton prófessor steig fyrst i annan fótinn og siðan i hinn. Hann var milli Effie og bróður hennar og alveg i vandræðum með, hvernig hann ætti að hreyfa sig úr stað. Hann óskaði þess eins að vera kominn eins langt burt frá Effie og mögulegt væri. Og hann vonaði að þurfa ekki að horfa á hana fyrr en hún væri orðín al- klædd aftur. Burke steig fram og ýtti prófessornum frá. Hann leit fyrst á Effie og siðan á grasalækninn, en gaf ekkert til kynna, hvað hann hefði i hyggju að gera. Prófessorinn steig nú i hinn fót- inn og Burke bar höndina að skammbyssuhylkinu og þreifaði eftir skeftipu, sem stóð upp úr. Effie smellti lásnælu i og tók sér stöðu milli þeirra. Hún var nú ekki alklædd enn, en þó sið - samlega. — Hvað ætlarðu að gera Burke? sagði hún. — Það fer nú allt eftir þvi, hvað prófessorinn ætlar að gera, sagði Burke og fitlaði enn viö skamm- byssuna. — Hvað ætlar prófessor- inn að gera? — Ég ætlaði nú ekki að opinbera trúlofun okkar og komandi gift- ingu alveg strax, sagði prófessor- inn, — en úr þvi að við ætlum mjög bráðlega að gifta okkur, ætti Bróðir Effie að fá að vita um það fyrstur manna. — Þakka yður fyrir að segja mér það, prófessor, sagði Burke. — Og það ætti helzt ekki að drag- ast neitt verulega. Effie hljóp til prófessorsins og faðmaði hann að sér. — Er þér virkilega alvara, prófessor Eaton? Ó, ég er svo hamingjusöm, að ég kann mér engin læti. En hversvegna ságðirðu mér ekki strax, að þú vildir virkilega eiga mig? Er þér virkilega alvara, prófessor Eaton? — Já, þú getur bölvað þér uppá, að honum er alvara, sagði Burke. — ó, ég er hamingjusamasta stúlka i öllu Rawleyþorpi, æpti Effie og þrýsti -kinninni að gúmmiflibba prófessorsins. — Framhald á bls. 37

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.