Vikan - 22.05.1974, Blaðsíða 20
7
JÓHANNA
RÓBERTSDÓTTIR
Yorstulka
Vikunnar
í Evuklasóum
SUNNU.
Jóhanna Róbertsdóttir er 21 árs aö aldri,
næstelzt af fjórum dætrum Guðbjargar Jó-
hannesdóttur og Róberts Þóröarsonar, loft-
skeytamanns, Borgarholtsbraut 58 i Kópa-
vogi. Hún geröi hlé á skólagöngu eftir lands-
próf, sem hún lók i Hagaskóla, en ætlaöi þá i
fósturnám, þegar hún heföi aldur til.
Meöan Jóhanna var i gagnfræðaskóla vann
hún á sumrin á barnaheimilinu i Reykjadal i
Mosfellssveit og hélt þvi áfram eftir aö
skólanum sleppti, þangaö til fyrir rúmu ári,
aö hún hóf störf i Landsbankanum. Þar vinn-
ur hún i gjaideyrisdeildinni og segir starfiö
mjög skemmtilegt og samstarfsfólkiö gott.
Hins vegar er hún ekki ánægö meö vinnutim-
ann þar á sumrin, en yfir sumarmánuöina er
svo mikið að gera i gjaldeyrisdeildinni, aö
starfsfólkið er iðulega ekki búiö aö ljúka
dagsverkinu fyrr en undir kvöldiö.
— Og. um helgar rignir alltaf, segir Jó-
hanna, svo að sumariö týnist i svona vinnu.
Þess vegna ér ég aö hætta þarna bráðlega og
ætla aö rækta grænmeti austur i Biskups-
tungum i sumar. Ég og kunningi minn, sem
er nýútskrifaður úr Garöyrkjuskóla rikisins,
höfum tekið fjögur gróðurhús á leigu þar og
ætlum aö rækta grænmeti bæöi úti og inni.
Svo þegar uppskerutimanum lýkur I haust,
ætlum við að bregða okkur til Flórida eftir
sumarauka.
Jóhanna hlakkar mikiö til sveitalifsins og
garðyrkjunnar, kveðst una borgarlifinu illa á
sumrin. Framtiöin er annars nokkuö óráöin.
Þegar Jóhanna var yngri var hún síteiknandi
og hafði áhuga á alls kyns listrænu dútli. Um
eitt skeiö ætlaöi hún aö leggja fyrir sig aug-
lýsingateiknun, en þessa stundina eru blóma-
skreytingar efstar á blaöi, og þær hyggst hún
gjarna læra siöar meir.
— Annars hef ég áhuga á svo mörgu, segir
Jóhanna, það er aldrei aö vita, hvaö veröur
ofan á.
Fyrstu verðlaun: Mallorkaferð með
aC si
1.
Myndskreyttur bómullarbolur og þvegnar
flauelsbuxur mðö baggysniöi frá IN WEAR.
2.
Tweedpils og blússa frá CACHAREL
VESTI frá ALVARSEN
3.
Stuttur velourkjóll frá ANNE GIERMANN
DESIGN
4.
Léttur sólkjóll úr bómull frá IN WEAR
Klossarnir eru frá DIIANELLA