Vikan - 22.05.1974, Blaðsíða 39
skrifa Alexis, það geri ég ábyggi-
lega, ef ég má.
— Ö, já, gerðu það.
Kirby og Olga viku af stignum
út á grasbalann. — Manstu eftir
dansleiknum á sextánda afmælis-
deginum minum? Mér finnst óra
timi siðan.
— Er það, mér finnst eins og
þaö hefði skeð i gær.
— Drottinn minn, ég er oröinn
svo miklu eldri núna. Hún virtist
kát. Maöur og kona gengu fram
hjá þeim, sennilega þjónustufólk
og þau héldust i hendur. — Mér
fannst svo gaman þá. Og manstu
hvaðmamma hafði mikinn áhuga
á aö tala við þig. Ó, ég vildi óska
að ég gæti gefiö þér eitthvert brot
af Livadia, til að taka með þér til
minningar.
— Það hefur þú gert, myndina
af ykkur Tatiönu, sem var tekin
hér. Ég ætla aldrei að farga þeirri
mynd, það máttu vita. Ég á lika
danskortiö þitt, það minnir mig
lika á Livadia.
Hún nam staðar og hann sneri
sér að henni. Hún var svo elsku-
lega barnaleg að hann gat ekki
stillt sig um að segja: — Þú ert
yndislegasta og fegursta stór-
hertogaynjan i veröldinni: ég hefi
verið mjög lánsamur, Olga, að
hafa fengið að kynnast þér.
Hún titraöi og þrýsti höndunum
upp að andlitinu. — Við verðum
að fara inn, sagði hún vandræða-
lega, — þau fara að undrast um
mig.
— Já, það er rétt, sagöi hann.
En hún stóð kyrr og sagði: —'
Ég veit ekki hvað við gerum, viö
hérna á Livadia, þegar þú ert far-
inn og viö vitum að viö eigum
aldrei eftir aö sjá þig framar.
Éinasta þrá hans, var að vefja
hana örmum og þrýsta henni að
brjósti sér, en eina huggun hans
var aö svara henni brosandi.
— Ég lofaði að koma i brúð-
kaup ykkar allra, er það ekki
rétt? Og þafö ætla ég aö gera, þaö
verður ekki hægt að halda mér
burt frá þvl. Ég veit líka að það
verður haldinn stórkostlegur
dansleikur, þegar þú veröur tutt-
ugu og eins árs. Ég vona að þú
bjóðir mér? En ég vara þig, ég
kem þótt ég verði ekki boðinn.
Augu hennar ljómuðu. — Ætl-
aröu virkilega aö koma til okkar i
heimsókn aftur? Mamma og
pabbi eru ekkert ógnvekjandi,
þau bjóða þér ábyggjilega heim,
ef þú kemur aftur til Rússlands.
Það er bara....
. — Það er bara það, að ég noti
mérekkiof mikiðaf þvi, Olga. Ég
kem örugglega einhverntima,
Olga.
— Ö, andvarpaði hún; — ég er
ánægð, vegna þess að ég veit að
þú svlkur ekki gefin loforö. Ég er
hamingjusöm, ég á svo yndislega
fjölskyldu og ég á þig fyrir vin. Þú
mátt ekki gleyma aö kveðja mig á
morguni
— Hann og Karita fóru daginn
eftir. Alexandra tók á móti hon-
um I stofu sinni. Henni létti
kannski við brottför hans.
— Það hefur verið okkur mikil
ánægja aö hafa yöur hjá okkur,
Ivan Ivanovitch, sagði hún. —
Þér hafiö verið svo góður við
BRÖTTFÖR: 15. júní, 6. júlí, 3. 17. og 31. ágúst og 14.
september.
MALTA er orðin vinsæll ferðamannastaður — en laus við hið
mikla flóð ferðamanna, sem einkennir svo marga staði.
Tryggið far áður en það verður um seinan
MALTA ER PARADÍS FERÐAMANNSINS
MALTA hefur upp á margt a8 bjóða fyrir ferðamanninn:
★ Milt og þægilegt loftslag
ÍC Góð hótel, þjónusta og víðkunna gestrisni
Gæði í mat og drykk
if Baðstrendur lausa við alla mengun
if Glaðværð og skemmtanir við allra hæfi
Hagstætt verðlag
Férðamiðstöðin hf.
Aðalstræti 9 — Símar 11255 og 12940