Vikan - 01.08.1974, Page 23
mig drqymdi
APPELSINA OG LIKAMSARAS.
Kæri draumráöandi
Mig langar til að biðja þig að ráða fyrir mig þessa
tvo drauma.
Fyrri draumurinn var á þessa leið:
Mér f annst ég vera inni í klef a á skipi og þar kemur
inn strákurinn, sem ég er með, og heldur hann annarri
hendinni fyrir aftan bak. Ég spyr hann, hvað hann sé
með, sem ég megi ekki sjá. Þá rétti hann fram
hendina og sagði: ,,Þetta er handa þér, elskan mín!"
Hann var með appelsínu f hendinni.
Hinn draumurinn var á þessa leið:
Mér fannst ég vera næturvörður á hóteli. Þangað
koma nokkrir menn og þeir fóru að berja mig. Hótel-
stjórinn frétti þetta og segir við mig: ,,Svona er að
vera að ráða kvenfólk í karlmannsvinnu."
Með f yrirf ram þökkum f yrir birtinguna og ráðning-
una.
Fyrri draumurinn getur verið fyrir tvennu. Þú átt
langt lif við góða heilsu fyrir höndum og þér finnst þú
geta þakkað piltinum það að einhverju leyti. Eins get-
ur verið, að þið verðið sameiginlega fyrir einhverju
fjárhagslegu happi.
Seinni draumurinn hefur ekki eins augljósa merk-
ingu. Líklegast er hann fyrir einhverjum vandræðum,
sem þú lendir í á vinnustað eða í skóla, en vonandi
tekst þér aðgreiða fram úr þeim á tiltölulega auðveld-
an hátt, enda er ekki óliklegt, að vandræðin séu þau,
að þú verðir sökuð um eitthvað, sem þú berð enga
ábyrgð á.
Svar til Bjargar J.
Vist getur það verið, að þessar tölur séu númer á
happdrættismiða, sem miklar likur eru á, að vinni. Þó
þarf það ekki að vera og haltu áfram að líta í kringum
þig og athuga, hvort númerið er ekki á einhverju öðru.
Of víðar og stuttar buxur.
Kæri þáttur!
Ég ætla að biðja þig um að ráða fyrir mig þennan
draum, sem mig dreymdi í nótt sem leið.
Mér fannst ég vera að ganga upp Laugaveginn og
það var óvenju margt fólk á ferli allt í kringum mig.
Allt i einu sá ég X (vin minn) koma gangandi ásamt
bróður sínum á móti mér. X var mjög breyttur, hafði
stækkað m jög mikið og var kominn með þykka svarta
barta. Hann heilsaði mér ekki, en tók bara utan um
mig og sagði ekkert, þó að ég talaði og talaði í sífellu.
Næst man ég, að við vorum tvö að ganga upp Lauga-
veginn, en bróðir hans hafði farið niðureftir. Nú brá
svo við, að svo til ekkert fólk var lengur í kringum
okkur, en við héldumst í hendur og hélt ég alltaf í báð-
ar hendurnar á honum.
Næst man ég, að við vorum komin inn í fataverzlun
og vorum að skoða gallabuxur. Ég var að hugsa um að
kaupa buxur, en fann engar passlegar á mig. Þá tók X
einar buxurnar og sagði, að þær myndu áreiðanlega
passa og fara mér vel. Ég keypti jáær undireins, en
þegar ég fór að skoða þær betur, sá ég að þær voru
mjög illa saumaðar, allar skakkar og skældar og líka
var auðséð, að þær yrðu allt of stuttar og viðar á mig,
því að ég er svo löng og mjó. Samt hafði X verið æstur
í að ég keypti þær.
Nú varð draumurinn ekki lengri.
Með fyfirfram þökk fyrir birtinguna og von um
góða ráðningu.
J.Á.
Svo er að sjá sem X eigi góða daga framundan og
ekki er ómögulegt að honum græðist nokkuð fé. Lík-
lega takið þið upp fyrra samband ykkar og verðið fyr-
ir það að þola eitthvert baktal og jafnvel kunningja-
missi, sem getur orðið ykkur erf itt. Gættu þess þá vel
að láta ekki misskilning ykkar á milli verða til þess að
upp úr sambandi ykkar slitni.
TVEIR DRAUMAR UM GULLMUNI.
Kæri draumráðandj!
Viltu vera svo vænn að ráða þessa tvo drauma f yrir
mig.
Fyrri draumurinn er á þessa leið:
Ég var að fara að gæta barna fyrir konu, sem ég
þekki, og þegar ég kem til hennar, réttir hún mér
bómullarhnoðra og segir við mig, að ég skuli ekki
fletta honum í sundur fyrr en ég sé komin heim. En
um leið og hún segir þetta við mig veltur hringur úr
gulli út úr bómullinni. Hringurinn var með stórum
rauðum steini. Þessu næst réttir konan mér gullarm-
band og gullúr á mosagrænni ól. Svo tekur hún af sér
annað úr, sem var á hvítri ól, og segir að ég megi eiga
þetta. Þá bendir hún mér út um stof ugluggann og úti á
tröppum stendur nágranni hennar með öll húsgöngin
hennar. Ég spyr hana af hverju hún sé að gefa þetta
allt, en hún sagðist ætla að fara að endurnýja alla inn-
anstokksmuni hjá sér. Síðan gekk hún út í eitt hornið á
stofunni. Þar stóð jólatré og í kringum það voru
jólapakkar. Hún og stelpurnar hennar seth zt niður
hjá trénu og fóru að taka upp pakka. Ég spurði þá,
hvort þær ættu ennþá jólatré og jólagjafir og konan
sagði, að þær tækju þetta upp svona smám saman.
Þessi draumur varð ekki lengri, en hinn var svona:
Mér fannst ég vera stödd úti á landi með vinkonu
minni og rétt hjá okkur fannst mér vera aragrúi af
fólki.
Svo fannst mér vinkona mín ganga upp á hæð eða
hól þarna og ég gekk svolítið á eftir henni. Þá sé ég
eitthvað glitra á jörðinni og tek það upp. Ég sé að það
er gullarmband og hleyp til vinkonu minnar og spyr
hana hvort hún hafði týnt því. Hún kveður nei við því.
Þá verður mér litið niður fyrir mig og se ég þar, að á
jörðinni við fætur mér liggur gullúr. Ég tók það upp.
Svo göngum við áfram upp á hólinn og á leiðinni
fann ég enn einn skartgrip úr gulli. Mig minnir að það
hafi verið hálsmen, en ég er ekki alveg viss um jáað.
Með fyrirfram þakklæti
Ein sem sjaldan lætur síg dreyma
öll þín áform virðast muna ganga óvenju vel á
næstunni og þú eignast marga nýja vini. Það er ekki
ólíklegt, að það gerist einhvers staðar úti á landi,
þangað sem þú ferð i atvinnuleit.