Vikan


Vikan - 01.08.1974, Side 37

Vikan - 01.08.1974, Side 37
Og hugrekkið hjá honum rétti við, eftir þvi sem likaminn hresstist. Hann hafði endurheimt hugrekki sitt. Hægt og bitandi stóð hann upp og gekk upp stigann. Þvi hærra sem hann kom i stigann, þvi nær færðist hann Rósu — og þvi meir dró lir hugrekkinu. Hann gekk að stigagatinu og til svefn- herbergis þeirra. Or baðherberg- inu heyröist i steypibaðinu. Svefnherbergiö var hálfmyrkv- að. Rósa haföi dregið tjöldin fyrir opna gluggana. Oti fyrir voru eit- ursveipirnir, sem veittu bæði skjól og svala. Það var likara kvöldi en morgni þarna inni. Læknirinn settist á stól og sneri sér til dyranna. Hann beið i þrákelknislegri en feiminni von. Svo kom hún inn. Hún var með handklæði um sig miðja. Hún stóð við rúmstokkinn og lauk við að þurrka sér. Hún hafði ekki litið á hann, og hann hélt helzt, að hún vissi alls ekki af honum þarna. Hann sat hreyfingarlaus, hálfhræddur við að gera vart við sig. Þá sagði hún og stóð á öðrum fæti en lyfti honum til þess að þurrka hann. — Sérðu eitthvað fallegt? Röddin var hörkuleg. Hann svaraði: — Ég verð að horfa á þig. Af þvi að þú ert svo falleg. Hún svaraði engu, en neri á sér tærnar með handklæðinu. Svarta hárið féll niður með andlitinu á henni, axlirnar voru hvitar, mjó- ar, grannar og brjóstin héngu niður þegar hún laut fram. Þögn hennar ýtti undir hugrekkið hjá honum og hann sagði: — Þú ert svo niðurdregin. Þú hefðir ekki átt að vera þarna útfrá. — Það var allt i lagi þarna út- frá. En það er verra að koma aftur i þessa rottuholu. Alltaf þarf maður að koma þangað aftur. — Ifvernig geturðu kallað það rottuholu. Þú valdir innbúið sjálf. Kostaöi næstum fimm þúsund dali. Hvergi betra i öllum bænum. — Hættu þessu grobbi. Þú ert enn að borga það niður. Fyrir suma menn — ég sagði menn — eru fimm þúsund dalir ekki nema sigarettupeningar. Hún fleygði handklæðinu á stól. Hann leit af henni og kring um sig I herberginu. Húsgögnin þarna voru öll úr kjörviði, dýr og falleg. 1 litlu timburbæjunum var ekki annað til en ódýr húsgögn. Þau hjónin höfðu fahið alla leið til Milwaukee til að finna þessi húsgögn. Veggfóðrið var af vönd- uöustu tegund. Og þarna voru fjórar enskar prentmyndir, sem Rósa hafði pantað úr einhverri listaverkabúð i New York. — Ég gerði það sem ég gat, sagöi hann og röddin var mjó og dálitið skræk. Rósa tók teppin af rúminu og skildi aðeins eftir lakið, til að hafa ofan á sér. Svo lagðist hún i rúmið og sneri sér frá honum. Aftur sat hann, án þess að geta neitt hugs- aö, og hugrekkið steig og hneig á vixl. Loksins sagði hann vesæld- arlega. — Ég er slituppgefinn. Ég verð lika að fá ofurlitinn svefn. Hún svaraði engu, og þegar hann fékk ekkert ónotalegt svar, fór hann að afklæða sig, tók af sér skóna og setti þá varlega á gólfið, til að hávaðinn skyldi ekki ónáða hana. Hann hlustaði og horfði á hana og bjóst við, að hún mundi banna honum þetta. En hún hvorki hreyfði sig né sagði neitt. Hann vissi, að hún var enn ekki sofnuð. Svo gekk hann aö rúminu og lagðist niður við hliðina á henni, og breiddi yfir sig teppið. Hún færði sig ofurlitið frá honum. Hann lá og horfði upp i loftið, en hugsaði ekki um annað en hana. Stundum fannst honum hann þurfa að afsaka það við hana, að hann skyldi vera þarna, viö hliðina á henni. En hann vissi Samvinnutryggingar vilja leggja áherzlu á að hafa jafnan á boðstólum hagkvæmar tryggingar fyrir heimilið og fjölskylduna. Sérstaklega viljum við benda á eftirfarandi tryggin'gar: Heimilistrygging • Verðtryggð líftrygging Húseigendatrygging • Slysatrygging Sjukra- og slysatrygging Allar nánari upplýsingar veitir Aðalskrifstofan, Ármúla 3 og umboðs-j menn um land allt. SAMVIIMNUTRYGGirNíGAR SÍMI 38500 Þau eru örugg og ánægð, þau eru vel tryggð. J°e‘ CINNI & I INNI 31. TBL. VIKAN 37

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.