Vikan


Vikan - 19.09.1974, Blaðsíða 4

Vikan - 19.09.1974, Blaðsíða 4
ihlutunarrétt um, hvernig námiö fer fram, þjálfast nemendurnir mikiö i éjálfsnámi og verða fær- ari um að bjarga sér sjálf i opnum skóla, þar sem kennarinn er fyrst og fremst leiðbeinandi en ekki prédikari og stjórnandi, eins og bekkjarkennslan krefst iðulega að hann sé. Sama barnið getur átt hægt með lestur, en erfitt með stærðfræði. Opinn skóli viður- kennir þetta og veitir þessu barni tækifæri til að nema hverja grein fyrir sig með þeim hraða, sem þvi er eðlilégt. í bekkjarkennslunni er yfirleitt mjög erfitt að gera undantekningar frá meðalvegin- um. — Stór hluti nemendanna þarf tiltölulega litið af tima kennar- ans, og hann fær þvi aukinn tima til að sinna þeim nemendum, sem hafa meiri þörf fyrir leiðsögn. Sé um sérstaklega seinfæra nem- endur að ræða leysir opni skólinn ótrúlega vel þau félagslegu vandamál, sem hjálparbekkirn- ir — tossabekkirnir — hafa skap- að, þvi að enginn veitir þvi sér- staka athygli, þó að átta ára barn sé að vinna verkefni, sem ætlað er sjö ára börnum. Og öfugt: Dug- legur sjö ára nemandí getur sem hægast unnið verkefni, sem talin eru betur við hæfi eldri nemenda, án þess nokkurt hinna barnanna reki augun i hað. Þau þurfa meira að segja ekki að vita það sjálf. t opnu kerfi er lika mun auðveldara að veita nemendum nauðsynlegan aðlögunartima að skólanum en mögulegt er i hóp- kennslu. — En hafið þið ekki rekið ykkur á einhverja vankanta á opnum skóla? — Við byrjuðum að koma þessu kerfi á haustið 1972, svo að van- kantarnir — ef einhverjir eru — eiga kannski eftir að koma frekar i ljós en orðið er. Ennþá hef ég ekki fundið neitt i opna kerfinu, sem ég álit ekki mjög bætandi frá bekkjarkennslunni. Hegðunar- vandkvæði eru eitt mesta vánda- mál bekkjarkennara, og það hef- ur komið i ijós, að þau verða miklu minni i opna kerfinu, auk þess sem þau eru auðveldari við- fangs i opnum skóla, þvi að alltaf er hægt að taka nemendur út úr, ef þörf krefur. — Verður samt ekki mikill ys og þys, þegar tökunum á börnun- um sem hópi er sleppt? — Hér er rekinn mikill áróður fyrir þvi, að börnin virði vinnufrið hvers annars, og þeim gengur nokkuð vel að skilja nauðsyn þess. En þar fyrir hafa börnin fullt leyfi til að hreyfa sig eins mikið og þau þurfa, og þau mega tala saman og hjálpa hvert öðru að vild, ef þau trufla ekki aðra. Auðvitað er sjaldan alveg þögn, en ysinn verður sjaldan meiri en eðlilegur vinnukliður. — Er ekki hætta á, að ófram- færnir nemendur einangrist við það, að gömlu bekkjartengslin eru rofin? — Vist getur verið hætta á þvi, en ég held sú hætta sé sizt minni i hefðbundnu bekkjarkerfi. Þar er hver einstaklingur einangraður við sitt borð. Hérna vinna allir meira og minna saman — jafnvel þó að nemendur séu að vinna að ólikum verkefnum sitja þeir við sama borð. Og alltaf öðru hverju vinna nemendur sameiginleg hópverkefni, þannig að opið kerfi býður einangrunarhættunni sizt frekar heim en bekkjarkerfið. „Með þvi að hafa frumkvæði og svolítinn ihlutunarrétt um, hvernig námið fer fram, þjálfast nemendurnir mikið i sjálfsnámi.” Úr miðbænum I Reykjavik. Mikil áherzla er lögð á skapandi starf i opna skólanum I Fossvogi. Vel gerð eftirliking af Alþingis- húsinu. — Veldur það ekki óhjákvæmi- legu losi á börnunum, að þau eiga enga stofu út af fyrir sig i skólan- um ? — Hver hópur á sér afdrep i heimakróknum, sem við köllum svo, en hann er u.þ.b. fjórðungur af stofu að stærð. Þangað fara börnin, þegar þau koma i skól- ann, og umsjónarkennari hópsins spjallar við þau i tuttugu minútur eða þar um bil. Hver kennari er sjálfráður um það, hvernig hann ver þessum tima, sem hann fær til að fylgjast með námi umsjón- arhóps sins. Sumir lita yfir heimaverkefnin — aðrir lita á, hve langt nemendurnir eru komn- ir i námsgreinunum og hlusta á það, sem börin hafa að segja. Að þessari samverustund i heimakróknum lokinni fer hvert barn á það starfs- svæði, sem það hyggst starfa á i fyrri námslotu dagsins, Hesturinn hefur verið tekinn rækilega fyrir. Kári virðir verkið fyrirsér. 4 VIKAN 38. TBL.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.