Vikan - 19.09.1974, Blaðsíða 8
Riki meistarans. Þarna sefur
hann einn, vinnur og hefst við.
Innanstokksmunirnir eru allir
mjög glæsilegir.
Þegar fjölskyldan er ein, snæðir
hún morgunverð i þessu
skemmtilega eldhúsi. Meistarinn
gætir vel að þvi, að morgunverð-
urinn, sem kona hans framreiðir,
sé hollur.
«
Konstantin verndar hann fyrir
ljósmyndurum, en þá þolir Kara-
jan ekki, þvi að honum finnst
hann alltaf verða glaseygur á
myndum. Eliette kona hans er
ekki á sama máli, þvi að hún er
mikið fyrir litmyndir af manni
sinum, vegna þess að þá fá „grá-
bláu augun að njóta sin svo
vel
Sé Karajan ekki I Salzburg, þar
sem tugir þúsunda tónlistar-
manna biða skipana hans, hefst
ströng megrunarganga strax að
loknum morgunverðinum. Hann
gengur I að minnsta kosti tvær
klukkustundir samfleytt og
stundum i allt að sjö klukkustund-
ir.
Á þessum göngum vinnur hann
einnig mikið. Hann veltir fyrir sér
stjórnunarvandamálunum og
hvað tónskáldin ætla sér með
þessum eða hinum tóninum I ein-
hverri sinfóniunni.
Það gefur auga leið, aö heimil-
islifið hjá heimsfrægum lista-
manni á borð viö Karajan gengur
ekki fyrir sig á venjulegan borg-
aralegan hátt. Ljósið I herbergi
hans slokknar klukkan tólf. I St.
Moritz sefur hann út af fyrir sig —
heilli hæö ofan viö konu sina. Sex
stunda svefn, jóga og langar
gönguferðir eru töfralyfin, sem
varðveitt hafa lifsþrótt Karajans.
Aður en Karajan leggst til svefns,
horfir hann ekki á Mozartmynd-
ina á veggnum hjá sér, þó að hann
eigi að stjórna tónlista hans næst,
heldur á undurfagran Corvatsch-
tindinn, sem hann segist einnig
sjá fyrir sér I svefni.
MSÍm m H •
8 VIKAN 38. TBL.