Vikan - 19.09.1974, Blaðsíða 33
„Welcome to Salde’s Crazee
Nite!”. Eitthvað á þann veg mun
hljómsveitin heilsa islenskum
aheyrendum, þeg'ar hún kemur
hingað upp eftir nokkrar vikur.
Slade hafa nú verið á röltinu
nokkuð lengi eða á þriðja ár.
Margir hafa velt þvi fyrir sér
hvað þaö er, sem haldið hefur
þeim á floti þetta lengi. Sumir
hafa nefnt til bjór, mjög fáir tón-
listarlega hæfileika eða hæfni til
að semja góð lög. Raunin er sú að
þeir eru ,,performers” eins og
það heitir á ensku — skemmti-
kraftar — og ekkert annað. Þeir
ná tökum á áheyrendum sínum
sem engir aðrir geta náð. En það
er gefið mál, að þeir þurfa að
vera eitthvað meira en venjulegir
skemmtikraftar til þess að fylla
stærstu hljómleikahús i Bretlandi
og Bandarikjunum viku eftir
viku, mánuð eftir mánuð og jafn-
vel ár eftir ár. Þeir i Englandi eru
farnir að kalla það „Sladisma”.
Þegar aðdáendur i Englandi fara
á Slade konsert, er það kallað að
fara á „litrika orgiu af Sladisma”
Hvort hljómleikar þeirra hér
heima verða eitthvað i likingu viö
það, skal ósagt látið, en væntan-
lega sitja islenskir poppaðdá-
endur fast við eigið heygarðshorn
hvaö slikt snertir. Hljómsveitin
Nazareth átti erfitt uppdráttar i
Laugardalshöllinni i ágúst s.l. Þó
var allt gert til þess að æsa liðiö
upp. Þá er bara eftir að ganga úr
skugga um að Slade getiö hið
ómögulega. Að fá islenska
poppaðdáendur til að sleppa sér á
konsert er erfitt. Ef Slade geta
ekki fengið okkur til að standa
upp og sleppa fram af okkur
beislinu, þá geta það engir.
Noddy Holder er sagður mikill
sölumaðurog erþvifleygt.að þar i
sé að finna hæfileika þeirra t
Slade til þess aö ná sambandi við
áheyrendur. Hann hefur lag á þvi
að lofa hinu ómögulega eða
a.m.k. hinu illmögulega. „Við
ætlum að hafa stripplingakeppni
hér i kvöld” sagði hann eitt sinn á
hljómleikum. „Dave ætlar að
taka þátt þvi hann er viss um að
vinna”. Svona yfirlýsingum er
tekið meö miklum fagnaðarlátum
áheyrenda, þ.e.a.s. hvatningar-
hrópum frá karlkyninu en
ánægjupiskri frá kvenkyninu. En
það gerist aldrei, en einhvern
veginn eru langflestir sannfærðir
um aö það gæti alveg eins gerst.
Prógrammið hjá Slade er mjög
fjölbreytt. Þeir spila ekkert frek-
ar lög eftir sjálfan sig, — gera sér
væntanlega grein fyrir þvi að til
eru betri lagasmiðir en þeir eru.
You will never walk alone hið al
kunna fótboltalag þeirra Eng-
lendinga er mjög vinsælt hjá
Slade, svo og nokkur góð lög frá
Janis Joplin eins og Move Over
Baby og fl. Gamlir góðir rokkarar
frá Slade eins og Goodbuy t’Jane
og Mam Were All Crasee Now eru
fastir liðir á dagskránni og vekja
alltaf jafnmikla hrifningu. Þegar
Slade flytja sitt prógramm hérna
vænta lega i Laugardalshöllinni
er vist, að þeir munu gera allt sitt
besta til þess að hressa landann.
Hitt er annað mál að svo virðist
sem hin svokallaða Slade mania
séliðin hjá að mestu. En það mun
vænta lega engu skipta með að-
sóknina, — Slade eru Slade og Is-
lendingar eru Islendingar og past
til þess að sjá fræg nöfn þó þeir
•hafi ekki hugmynd um fyrir hvað
þau standa.
Noddy Holder upphafsmaður Sladeisma i heiminum.
38. TBL. VIKAN 33
á hljómplötum er skipt jafnt á
milli þeirra. Ef að birtur er texti
eftir Bernie I einhverju blaöi og
greidd er þóknun fyrir, þá fær
Elton helminginn. Ef lag eftir
Elton er spilað af einhverjum og
textinn ekki notaður, þá fær
Bernie engur að siður helminginn
af þóknuninni. Af þessu má sjá að
þeir sem kunna að raða saman
orðum i útlöndum þurfa ekki að
kviða framtiðinni, a.m.k. ekki ef
þeir hafa einhvern eins og Elton
John til þess að semja lög við
textana.
edvard sverrisson
3m
niúsik með meiru