Vikan


Vikan - 19.09.1974, Blaðsíða 5

Vikan - 19.09.1974, Blaðsíða 5
sem stendur i fjörutiu til fimmtiu minútur. Siöan fara börnin út i friminútur, ef gott er veður, en sé eitthvað að veðri koma þau öll saman á sal, þar sem þau hvila sig. Yfirleitt spjalla ég þá við þau stundarkorn — þau syngja mikið á salnum og stundum eru þar myndasýningar. Eftir hvildina fer hver inn i sinn heimakrók til umsjónarkennarans og þaðan i seinni námslotu dagsins á starfs- svæðunum. Þegar þeirri lotu lýk- ur, kveðja börnin kennarann i heimakróknum, og skóladeginum er lokið. — Verðið þið ckki að takmarka fjölda barnanna á starfssvæðun- um? — Jú, i hverri grein er tæpast rúm fyrir fleiri en 24 börn i einu, en takmörkunin kemur af sjálfu sér, þvi að börnin læra frá upp- hafi, að sé eitthvert starfssvæði fullskipað, verða þau að velja sér aðra grein, þangað til rúm er fyr- ir þau á hinu svæðinu. En beinni skipulagningu höfum við ekki þurft að beita, nema i bakstrin- um, sem héfur verið mjög vinsæl grein, jafnt af drengjum og stúlk- um, en enginn munur eftir kynj- um er gerður i neinni námsgrein. — Er ekki hætta á, að börn, sem vanizt h#fa bekkjarkennslu og hefja nám i opnum skóla, eigi við erfiðleika að striða? — Yfirleitt tekur það þau dálit- inn tima að venjast fyrirkomu- laginu, og i fyrstu halda þau, að frjálsræðið sé svo mikið, að þau gera litið annað en hringsnúast. En eftir nokkra daga hafa þau áttað sig á skipulaginu, og þá á það ekkert siður vel við þau en börnin, sem vanizt hafa opnum skóla frá upphafi skólagöngunn- ar. — Ileldurðu, að opinn skóli eigi eftir að ryðja sér meira til rúms i framtiðinni? — Ég vona það, vegna þess að ég held að vinnubrögð af þessu tagi séu mjög bætandi fyrir skól- ana. Ekki þarf það þó að vera ná- kvæmlega á sama hátt og hérna i Fossvoginum. Það er lika rétt að taka fram, að við höfum ekki varpað hópkennslunni algerlega fyrir róða. Við höfum kennslu- króka, sem hægt er að taka nem- endur inn i i hópum, þegar verið er að kynna nýtt námsefni og nýj- ar aðferðir, t.d. i stæröfræði. A þann hátt getur hópkennslan komið að góðu haldi i opnum skóla og á þá fyllzta rétt á sér. En ég held það sé mikið átriði, aö börn fái þjálfun i sjálfsnámi og venjist þvi að hafa frumkvæöið. Með þvi verða þau miklu hæfari til að takast á við verkefnin, sem biða þeirra siðar á lifsleiðinni — hvort sem um er að ræða frekara nám eða störf á almennum vinnu- markaði. Það verður að gera skólann likari þvi lifi, sem er utan skólaveggjanna, og á það leggur opni skólinn áherslu. Tról. Unnið er af kappi, þó að ekki sé skylda að sitja allan timann við borðið sitt. 38. TBL. VIKAN 5

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.