Vikan


Vikan - 19.09.1974, Side 15

Vikan - 19.09.1974, Side 15
r HVER ERT ÞU UTLA STÚLKA? an ákveðinni röddu. — Ég er búin aö prófa mörg nöfn, en það virðist ekkert passa við mig. — Það hefur bara verið af þvi að þú varst ein að reyna aö rifja þetta upp. Eigum við aö reyna saman? — Allt i lagi. — Jane? varfyrsta uppástunga Betty. — Nei. — Susan? Amy? Linda? Telpan hristi höfuðið. Það var sama hvaða nafn Betty nefndi, telpan hristi alltaf höfuðið. Einu sinni eða tvisvar grunaði Betty að hún væri „heit”, þvi telpan brosti aðeins. Jim reyndi að hjálpa.Hann kom með gamaldags nöfn eins og Ara- minta, Belinda og Cordelia. Loks sagði Betty: — Ég gefst upp. En eitthvað verðum við að kalla þig svo þú verður að velja þér nafn. Það var eins og telpan hefði verið að biða eftir þessu tækifæri, þvi hún sagði ákveðin: „Rebekka”. — Nei, komdu sæl Rebekka. Ég er Betty og þetta er Jim. Rebekka laut höfði alvarleg og sagði: — Komið þið sæl. Betty ákvað að hamra járnið meðan það væri heitt og sagði: — Reyndu nú aö muna eitthvað meira, vina min. Attu mömmu og- pabba? — Ég held það, sagði telpan án þess að lita á hana. — Bræður og systur? — Ég er ekki viss. — Allt i lagi, en manstu hvað mamma þin og pabbi heita? — Ég man ekki eftirnafn þeirra, en ég held að mamma min heiti Pamela. — En pabbi þinn? Manstu nokkuð hvað hann heitir? — Nei. — Það voru nú meiri vandræö- in að þú skulir ekki muna eftir pabba þinum. — Ég man eftir pabba . . . , ságði hún hvassri röddu en þagn- aði skyndilega, eins og hún hefði talaö af sér. Fjölskylduerjur? hugsaði Betty. Hún gat hafa lent i rifrildi viö móður sina, faöirinn dregið taum móðurinnar og barnið hlaupið aö heiman . . . — Manstu hvort þú varst ánægð heima . . . — Ó, já. Ég held það aö minnsta kosti. — Kom þér og foreldrum þin- um vel saman? — Já, já. Þetta virtist kollvarpa fyrri kenningu Bettý. Þetta gat lika verið fyrirsláttur hjá telpunni. — Ég held, sagði Betty, að úr þvi viö getum ekki fundið út eftir- nafn þitt verðum við að hringja I lögregluna i borginni og athuga, hvort lýst hefur verið eftir litilli stúlku, sem heitir Rebekka. — Ó, nei. Ekki gera það. — Geturðu munað hvort eitt- hvað var aö heima? — Nei, sagði hún og augu henn- ar fylltust tárum. En hún virtist staðráðin i að fara ekki að gráta. — En viltu ekki fá að vita hver þú ert og hvar þú átt heima? sagði Betty bliðlega. Telpan kinkaði kolli. — Þá held ég að ég hringi. Telpan leit út um gluggann meðan hún reyndi að muna hvar hún hefði lagt frá sér kápuna. Hún vildi ekki vera vanþakklát, en hún vissi að það gat enginn sett sig i spor hennar. Ef hún hlypi út og gripi kápuna sina, myndi hún strax nást. Og hún vildi ekki fara i felur á ný. Henni leið nógu illa þótt henni væri ekki kalt I ofanálag. Hún vildi vera i öryggi og hlýju. Og hún vildi ekki vera heima — og þó vildi hún vera þar. Tárin urðu henni yfirsterkari og hún fann hvernig þau runnu niður kinnar hennar. Hún skalf og hún fann, hvernig konan tók utan um hana. — Svona, svona Rebekka min. Ekki gráta. — Ég er ekki Rebekka. Mamma heitir Rebekka en ég heiti Pamela. — Og pabbi þinn? — Pabbi heitir Bob. — Geturðu munað eftirnafn ykkar? Hún tautaði eitthvað og Betty endurtók það: — Andrews? Pamela kinkaði ákaft kolli. Jim kraup fyrir framan hana: — Jæja Pamela Andrews, getur þú sagtmér,hvernig stendur á þvi að sæt litil stúlka eins og þú, hleypur aö heiman og þykist hafa misst minnið? Mamma þin og pabbi hljóta að vera aö deyja úr hræðslu. Ef þú hugsar þig um finnst þér þetta þá hafa borgað sig? — Ég held það. — Jæja þá. Segðu mér þá allt saman. Rödd hans var blið en uppörvandi. Pamela þurrkaði sér um aug- un. Hún vissi ekki hvernig hún ætti að fara að þvi að segja þeim allt. Þetta hljómaöi svo bjánalega en innst inni vissi hún að þetta var alls ekki bjánalegt. — Pabbi er á spitala. — Jæja, vina min, sagði Betty. — Er hann mikið veikur? — Nei, honum er að batna. — Já, ég skil. — Eiginlega var hann ekki mjög veikur, þegar hann fór á spitalann. — Ég skil . . . sagði Betty undr- andi. — Ég á systur og bróður, sagði Pamela til að skipta um umræöu- efni, — Jæja? — Bróðir minn er fimmtán og systir min er niu. Hún er mjög falleg. — Já, einmitt það. — Við fengum að heimsækja pabba á spitalann fyrir þremur dögum. — En gaman. Var hann ekki ánægður að sjá ykkur? Pamela fór að hágráta á ný. Jim settist við hliðina á henni: — Nú skulum við reyna aö komast til botns i þessu vina min. Attu við að pabbi þinn hafi ekki verið ánægöur að sjá ykkur? — Hann getur ekki séö okkur, þvi hann er blindur, muldraði Pamela ógreinilega. — ó .. . sagði Jim og beiö kvið- inn eftir þvi að heyra meira. — Hann hefur alltaf verið blindur. Hann hefur ekki séð neitt okkar, ekki Alan, ekki Jenny og ekki mig. Hann hefur meira að segja aldrei séð mömmu. 38. TBL. VIKAN 15

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.