Vikan - 19.09.1974, Qupperneq 37
rækna óbeit hennar á Indiána-
stúlkunni vildu ékki láta afneita
sér. Hún stóð upp, fór I slopp og
stakk fótunum i inniskó. Siöan
gekk hún niður.
Jennie var i eldhúsinu. 1 stað
þess að leggja á borð fyrir Rósu,
hafði hún sett matinn á eldhús-
borðuð. Stúlkan sagði: — Ef þú
vilt éta, geturðu gert það hérna.
Ég vil ekki fá stofuna útsvinaða.
Ég er nýbúinn að vera þar með
ryksuguna.
Rósa þaut upp: — Þú ert rekin!
Jennie hló bara og hysjaði upp
um sig buxurnar. — Nei, ekki
aldeilis! Þú hefur hér ekkert að
segja lengur.
— Ég skal ná mér niðri á þér,
rauðskinnan þin. Rósa hellti 1
bollann og bar hann inn i stofuna.
Þar sat hún svo og hafði ekki aug-
un af stignum, og var á verði gegn
öllum heimsóknum. En enginn
kom,og svo leið fram yfir hádegi,
án þess að neitt birti yfir. Grám-
inn smaug gegn um öll hennar
bein og sálina með. Hún sat þarna
I hyldjúpu harmahafi.
Þá hringdi siminn, en hún geröi
ekki svo mikið sem snúa augun-
um frá birtunni úti fyrir. Siminn
hringdi aftur. Hún bölvaði og
sagöi: — Lofum honum að
hringja. En hann hélt áfram og
argaði I öllum taugum hennar.
Lofum henni Jennie að taka hann,
sagði hún við sjálfa sig!
Stúlkan kom inn i stofuna og
Rósa leit á hana. Þetta var eins
konar sigur yfir stúlkunni. Jennie
horföi á hana með sýnilegum við-
bjóði i augnaráðinu, og sagði: —
Þú . . . . ó, guð minn. Ég ætlaði
ekki að svara, en ég hugsa, að
þetta sé læknirinn til að fá að
vita, hvaða matvörur hann á að
koma með.
Hún gekk letilega að simanum
og stöðvaði hringinguna. Rósa
heyrði hana segja: — Já, hún er
hérna.
Jennie leit á Rósu. Það er til
þín.
— Hver er það?
— Karlmaöur'. Ætlarðu að tala
við hann eða ekki?
Rósa fór aftur að horfa út um
gluggann. — Nei, það ætla ég
ekki. Hún gat sér þess til, að þetta
væri enhver nágranni, sem ætlaði
að fara að hugga hana i þessum
lasleika hennar.
— Hann segist verða að tala við
þig. Stúlkan hélt á tækinu, reiðu-
búin til að skella þvi á.
— Ekki nema ég viti, hver það
er.
Stúlkan lét boðin ganga i sim-
ann og sagði síðan við Rósu: —
Það er Neil Latimer.
Hún stóð upp og greip báðum
höndum i gluggann, sér til stuðn-
ings. — Leggðu ekki á! Sloppur-
inn bylgjaðist um hana, þegar
hún flýtti sér að gripa simann.
— Neil! kallaði hún. — Neil, ert
þetta þú?
Hún varð glöð og vongóð þegar
hún heyrði röddina hans. — Hvað
er þetta, Rósa? Ertu nú orðin of
góð til að tala við mig?
— Nei, nei. Ég hef bara verið
veik.
Dálitil þögn. — Það var leiðin-
legt. Atti ég nokkra sök á þvl?
— Já, alla. En hvar ertu?
— í Fleming. Var alveg að
koma. Má ég koma og hitta þig?
— Já. Og svo sagði hún honum,
hvernig hann ætti að komast
þangaö, en bað hann að gefa sér
tém til að klæða sig.
Hún lagði frá sér simann og hló
jfsalega. Nú fór um hana alla ein-
hver fiðringur af fjöri og dugnaði.
Hún var ekki nokkurn skapaðan
hlut veik. Hann var kominn, eins
og hann var búinn að lofa. Og
hann hlaut að vera orðinn laus,
annars hefði hann ekki komið.
Hún þaut upp stigann og upp i
baðherbergið. Þar fleygði hún af
sér sloppnum og fór undir steyp-
una. Hún varð að vera ilmandi og
falleg, þegar hann kæmi. Hann
var kominn! Hann hafði þá alltaf
elskað hana! Það var bara stolt-
inu I henni að kenna, að hún hafði
ekki skilið það.
Hún fór i kápu og þaut í snjón-
um út aö stignum. Þegar hún
staðnæmdist, lafmóð af æsingi, sá
hún bil beygja út af veginum.
HANSA-húsgögn
HANSA-gluggafjöid
HANSA-kappar
HANSA-veizlubakkar
Vönduð íslenzk frctmleiðsla.
Umboðsmenn um allt land.
Bogmanns-
merkið
Geitar-
merkið
22. des. —
20. ian.
21. jan. —
19. febr.
20. febr. -
20. mari
Vogar-
merkið
24. sept. —
23. okt.
Þú átt vangoldin bréf,
heimsóknir, simhring-
ingar og margt annaö
sem viöheldur kunn-
ingsskap. Taktu þig nú
á og komdu þessu i
betra horf. Þú færð
óvænta frétt á föstu-
daginn.
Dreka-
merkið
24. okt. —
23. nóv.
Þú lendir i rimmu við
kunningja þinn eins og
þú hafðir gert ráð
fyrir. Upp úr helginni
skeður ýmislegt sem
þú getur fljótlega
fengið botn i. Settu
óskir þlnar skýrt og
skýlaust fram.
23. nóv. —
21. des.
Þessa viku skaltu vera
á verði og leggja ekki
út I neinar nýjar fram-
kvæmdir. Viöræður
við yfirboðara þina
gætu þýtt eitthvað
stórt fyrir þig, en
vertu varkár, það er
númer eitt.
Gættu aö framkomu
þinni, reyndu að vera
sem alþýölegastur, án
þess að vera uppá-
þrengjandi. Leiðréttu
strax misskilning sem
komiö hefur fram
vegna hreinskilni
þinnar, en segðu ekki
of mikið.
Fyrir marga fædda
milli 12.og 19. verður
vikan nokkurs Eonar
sæluvika. Feröalag,
brúðkaup, trúlofun
setur^ef til vill mestan
svip á dagana. Þú
þarft að koma af mikl-
um bréfaskriftum.
Nágranni þinn er helzt
til hávaðasamur og
mun hann trufla þig
nokkuð. Mál sem rædd
verða á fundi bráölega
vekja þér mikla furðu
og reiði. Þér berst
óvænt hjálp I þvi sam-
bandi.
38. TBL. VIKAN 37