Vikan - 19.09.1974, Side 45
Flest venjulegt fólk gerir sér þær hug-
myndir um fyrirmyndarhjónaband, að
það byggist á gagnkvæmum skilningi,
tillitssemi, kurteisi. Fyrirmyndar hjón
rifast ekld og slást — þá er eitthvað
meira en litið að. Sá frægi leikari Jack
Lemmon og fallega, skaprika konan
hans, hún Felicia Farr, lita hins vegar
ekki þannig á málið. Þeirra hjónaband
getur sannarlega ekki talist friðsamleg
sambúð, — og þó eru þau innilega ást-
fangin, og hjónabandið virðist traust.
að hann hafði unnið bug á minni-
máttarkennd sinni og óöryggi.
Felicia sýndi sjálfstæði sitt
þegar i æsku, þegar hún ferðaðist
,,á puttanum” þvert yfir Banda-
rikin aðeins 12 ára gömul. Og hún
var ekki nema 14 ára, þegar hún
vann fyrir sér sem ljósmynda-
fyrirsæta til þess að geta greitt
fyrir leiklistartlma. Hún giftist 17
ára, eignaðist dóttur og skildi við
manninn sinn. áður en hún hafði
náð tvitugsaldri. Felicia þykir
hafa góða leikhæfileika, og Jack
hvetur hana til þess að leika. En
hún setur eiginmann sinn og börn
ofar eigin frægð og frama og
kveðst ekki geta hugsað sér að
vera lengi i burtu frá þeim.
Annars vill Jack ekkert fremur
en að hún eignist sem flest börn.
— Jack dýrkar börn, segir hún.
fyrri hjónaböndum og svo eina
dóttur saman. En Jack vill meira.
Eg veit ekki, mér finnst það svo
mikil ábyrgð að fæða börn inn i
þennan heim og ala þau upp, en
ég elska Jack svo mikið, að ég
held nærri þvi, að ég veröi að upp-
fylla þessa ósk hans.
Einu siiini varð hjónaband
þeirra Feliciu og Jacks að stand-
ast þunga prófraun. Það var með-
an Jack lék i myndinni „Save the
Tiger”, þar sem hann fór með
hlutverk Harry Stoner, vel stæös
miðaldra viðskiptahölds, sem
rambaði á barmi geðveiki.
— Jack er alltaf blátt áfram
fanginn af hlutverkum sinum,
segir Felicia. Persónuleiki þess,
sem hann á að leika, verður alltaf
svolitill hluti af honum sjálfum. í
þetta sinn gekk hann of langt.
— Ég hlýt að hafa verið alveg
hræðilegur, segir Jack. Ég var
uppstökkur og viöskotaillur við
alla. Þetta gekk svo nærri mér, að
stundum gat ég ekki talað við
nokkra manneskju timunum
saman. Ég þakka guði fyrir, að
Felicia gat haldið þetta út.
Feljcia viðurkennir, að hún var
orðin dauðhrædd um hann. Hún
fórnð keyra hann til vinnu, þvi að
aksturslag hans var orðið all-
glannafengið. Og eftir þvi sem
hann lokaðist meira og meira,
skildi hún, að hann var að reyna,
hversu langt hann gæti gengið, án
þess þó að fara alveg yfir um.
Hann hætti jafnvel að leika sér
við litlu dóttur sina, sem er hans
eftirlæti.
— Mér væri sama, þó honum
væri sagt, að hann væri betri en
sjálfur Laurence Olivier, segir
Felicia. Slika reynslu vildi ég
ekki ganga I gegnum aftur. Raun-
ar færði hún okkur enn nær hvort
öðru, en mikið létti okkur öllum,
þegar heimilislifið gat aftur faliið
I fyrri skorður.
Sem betur fer fékk Jack hvert
hlutverkið á fætur öðru I léttum
gamanmyndum strax og hann
hafði lokið leik sinum i „Save the
Tiger”, og innan skamms var
hann orðinn hann sjálfur. Og
hjónabandið hefur 'aldrei verið
betra.