Vikan - 17.10.1974, Side 30
um, sagði hann seinna, hefði hann
vel getað orðiö Werther og séð
fyrir sér.
í október, stuttu eftir brottför
Goethes, fremur maður nokkur
sjálfsmorö af ást. Það er hinn ein-
mana Jerusalem, maðurinn I
Werther-búningnum. Hin tilbeðna
haföi rekið hann frá sér i eitt
skipti fyrir öll. Hann fór til Kestn-
ers og fékk lánaöa byssuna hans á
þeirri forsendu, að hann þyrti að
ferðast hættulega leið. Kestner
var kallaður til hins deyjandi
manns og sagði Goethe frá at-
burðinum I bréfi.
Þessi atburöur veröur Goethe
meira en sorgaratburður.
Reynsla hans I Wetzlar verður að
,'sögu og Jerusalem gaf honum
’hugmyndina að sögulokunum.
læmur endir eins
og skáldið hafði
reyndar þegar
látið sér detta i
hug. Þvi aö hann
hafi sjálfur oft látið hvarfla að
sér aö fremja sjálfsmorð i Wetzl-
ar og látið „hárbeittan hnif liggja
við rúmstokkinn hjá sér. (Þvi
segir hann frá i Skáldskap og
sannleika).
I febrúar og marz skrifar hann
söguna um Werther. Fjórar til
fimm vikur — meiri tima þurfti
hann ekki. Lauslega samin og
stutt saga, sem er mjög litið frá-
brugðin raunveruleikanum.
Hann breytir næstum hvergi út
frá staðreyndum: Werther á
frænku i Wetzlar, er að byrja
starf þar, venur komur sinar i
amtmannshús og elskar stúlku,
sem heitir Lotte. f sögunni er lika
einn einasti koss, sem sannar, að
Goethe er langt frá þvi að vera
raupsamur af rithöfundi að vera.
Brottför Goethes frá Wetzlar er
breytt i burtför Werthers úr þess-
um fagra heimi. Til þessa þurfti
skáldið aðeins frásögn Kestners
af sjálfsmorði Jerusalems. Hann
setúr bréf Kestners næstum orð-
rétt i söguna. Og hann hlifir les-
andanum ekki við liffærafræði-
legri hlið sjálfsmoröingjans i
smáatriöum, svo og heilaslettun-
um, sem leka úr höföi hans.
Aö öðru leyti er sagan barn sins
tima, sem hneigðist mjög að ýkt-
um tilfinningum. Þannig segir
unnusti Lotte, sem heitir Albert i
sögunni, við Werther vin sinn á
trúnaðarstund þeirra: „Elsku
vinur”, og Werther veinar, þegar
Albert tekur sér i munn nafn
skáldsins Klopstock. Reyndar
veinar hann hvnær sem tækifæri
býöst, þegar Lotte veitir honum
ekki sérstaka athygli eitt sinn,
heldur ræöir áfram viö vinkonur
sinar, eftir deilu, sem kom upp
vegna spurningarinnar, hvort
slæmt skapferli væri synd eða
veikleiki og af öðrum sárasak-
lausum orsökum. Og oft hjálpar
Lotte honum með þvi „aö leyfa
honum að gráta út við hönd slna”.
Hjörtu sundurkramin af hvers
konar sársauka skipta höfuömáli
i bókinni, og öðrum hugsunum er
tæpast fyrir að fara hjá persónum
hennar. Stúlkan hefur engan á-
huga á andliti unga reiða manns-
ins, sem kennir heiminum um hve
illa er komiö fyrir sér, heldur
veitir hún hinu dreymna, „fórn-
arlambi viðkvæmra tilfinninga”
alla athygli sina.
Ekki að undra á þessum tim-
um, þegar jafnvel stöndugir fjöl-
skyldufeður brynntu músum yfir
sólarlaginu.
c
ilfinningasemi
Werthers er einnig
timanna tákn. Þó
gerir Goethe sér
ljóst, að hann hefur
ekki samið neina
nútimaskáldsögu, heldur hefur
honum tekiztað aðlaga skáldskap
sinn tiöarandanum. ,,....það væri
slæmt”, segir hann seinna, „ef i
lifi hvers og eins kæmu ekki fyrir
atvik, sem gerðu það að verkum,
að þeim þætti sem Werther væri
skrifaður fyrir þá eina”.
Þegar hann hefur lokið við sög-
una, finnst honum eins og hann
„hafi gert allsherjar skriftir”:
„Kátur og reifur og tilbúinn til að
hefja nýtt lif”. En Lotte og Kestn-
er, sem gengin eru i hjónaband
og búa i Hannover, eru ékki eins
kát. Skáldið hefur lýst Lotte allt
of nákvæmlega, jafnvel þó að
hann hafi skrifaö um Lotte S. i
stað Lotte Buff og gert blá augu
hennar að svörtum. t Wetzlar sjá
systkini Lotte systur sina i sorg-
arleiknum Werther, sem sagt er
að hafi i raun og veru gerzt. Og
Kestner kvartar yfir þvi, að hann
og kona sin fái ekki stundlegan
frið fyrir bókmenntasinnuðu
ferðafólki.
<3
oethe svaraði: „Ef
þið gætuð gert ykk-
ur grein fyrir þús-
undasta hluta þess,
sem Werther er
þúsund hjörtum —
mynduð þið ekki kvarta yfir ó-
þægindunum, sem þið verðið
fyrir!”
En Goethe varð lika fyrir óþæg-
indum. Einkum þótti lýsing
sjálfsmorösins ógeðfelld. Kirkjan
leit á sjálfsmorð sem synd, sem
ekki varð fyrirgefin. Goeze höfuö-
prestur I Hamburg hafði uppi
mikiö andóf gegn Þjáningum
Werthers unga, og guðfræðideild-
in við háskólann 1 Leipzig fór
fram á, að bókin yrði bönnuð.
„Bókanefnd saxneska kjörfust-
ans” fór að bón guöfræöideildar-
innar, og var bókaútgefendum
hótað refsingu fyrir að gefa bók-
ina út. En þrátt fyrir þaö gefur út-
gefandi Goethes i Leipzig bókina
út i þremur stórum upplögum
strax fyrsta árið.
Þjónar kirkjunnar reyndu að
kaupa upp allar italskar þýðingar
bókarinnar, en brátt uröu þeir að
gefast upp viö það, þvi að bókin
var prentuð I svo mörgum eintök-
um.
En áhrif Werthers urðu einnig
sorgleg. Skáldkonan Elise von
Hohenhausen missti einkason
sinn eftir að hann haföi lisið bók-
ina. Hann skaut kúlu gegnum höf-
uö sér. ,,Ó, þið menn, sem guð
Hinn ógæfusami Jerusalem.
hefur gefið góðar gáfur”, hrópar
hún að Goethe, „þið áhrifamenn
mannkynsins. Gúð mun refsa
ykkur fyrir það hvernig þið notið
hæfileika ykkar.”
Arásum sem þessari virðist
Goethc ýmist hafa tekið með hægð
eða óskammfeilni. Til dæmis
skrifar hann rithöfundinum
Benjamin Constant de Rebecque:
,,Ef til eru þvilikir heimskingjar,
að þeim verði illt af bókinni, þá —
sama er mér!” Samt fer hann
þann 3. desember 1777 á fund eins
fórnarlambs sins eftir að tvisvar
sinnum haföi verið hrópað á hjálp
hans bréflega. Fórnarlambið var
25ára sonur predikara, og Goethe
fékk hann ofan af sjálfsmorðs-
þenkingum sinum.
Goethe fær slæma útreið i bók-
menntatimaritum. Maður, sem
ekki hefur hemil á tilfinningum
sinum og þjáningum, er langt frá
þvi að vera hetja, úrskurða i-
haldssamir gagnrýnendurnir,
sem leita aö „fræðslu” i hverri
skáldsögu. Meira að segja snill-
ingurinn og heimspekingurinn
Lichtenberg, sem var vinur
Kestners, segir Werther vera ó-
þolandi sambland raggeitar og
viðundurs.
Hið sama er álit Lessings, og
hann hyggst skrifa And-Werther.
Og hinn virðulegi óðasmiður
Klopstock spyr: „Er Goethe ekki
búinn að skjóta sig dauðan?”
Nær allir komast gagnrýnend-
urnir að þeirri niöurstöðu, aö
Werther liggi i hverju taugaveikl-
unarkastinu af öðru, en sé þó þess
á milli fær um að skrifa sæmileg
bréf.
Werthersögurnar, sem uröu til
á eftir bók Goethes, eru næstum
allar sama marki brennd
Werther særist litillega við sjálfs-
moröstilraunina, nær sér aftur og
verður gamall og feitur með Lotte
sinni. Nicolai, æðsti prestur bók-
menntanna i Berlin, skrifaði sögu
i þeim dúr og kallaði hana Gleði
Werthers unga. Goethe svarar
honum með kvæði, þar sem hann
lætur Nicolai ganga örna sinna á
gröf Werthers og segja:
„Góðan dreng við grátum hér,
er gröf sér kjósa vann.
Háttur minn — að hægja sér,
viö heiminn sættir mann.”
En þrátt fyrir allt hafði tiðar-
andinn betur en gagnrýnin. Bók-
menntaheimurinn og einkum þó
æskan fundu I Werther nýja hetju,
hetju, sem var haldin sömu til-
finningaseminni og hún sjálf. Og
brátt fara að koma út sögur, sem
eru eftiröpun Werthers, en fæstar
njóta þær langvarandi vinsælda.
En fleira var apað eftir en sagan
ein. Upprunaleg gröf hins ógæfu-
sama Jerusalems varð til dæmis
með timanum ekki nærri eins vin-
sæll viðkomustaður aðdáenda
Werthers og gröfin, sem gestgjafi
einn i Garbenheim sagði vera
raunverulegan legstað þessa
fræga sjálfsmorðingja...
oethe hagnaðist
lika sjálfur á
Werthersbomb-
unni. Ot á bókina
fær hann loks stöðu
við sitt hæfi við
hiröina i Weimar. Þegar hann
kemur þangað, tekur ungi hertog-
inn á móti honum I Wertherbún-
ingi.
En þarna verður Werther einn-
ig á vegi Goethes. Ung kona
fremur sjálfsmorð, og Werther
finnst i fórum hennar.
Og Werther fylgir honum enn.
Eftir mörg ár kemur Lottchen að
heimsækja hann i Weimar — þá
virðuleg eldri kona. Hún hefur al-
ið tólf börn og er orðin ekkja fyrir
sextán árum. Aldurinn er farinn
að setja mark sitt á hana, hún tin-
ar meö höfðinu. Samt eru allir,
sem hitta hana, hrifnir af, hve
hún er ern andlega.
En Goethe er djúpt snortinn.
Þvi eldri sem hann verður, þeim
mun erfiöara veítist honum að
horfast i augu við forgengileik-
ann. Þess vegna sýnir hann Lott-
chen aðeins tilhlýðilega kurteisi
og er þeirri stundu fegnastur,
þegar hún fer frá Weimar. Hann
vill verða hundrað ára og ætið
ungur.
Goethe lézt 22.3 1832 i Weimar
— 82 ára að aldri.
30 ViKAN 42. TBL.