Vikan - 14.11.1974, Blaðsíða 8
konur eigi þaö á hættu, aö þeim
verði ruglaö saman viö lystinudd-
konurnar, en á þvi er lltil sem
engin hætta. Fólk gerir sér grein
fyrir muninum á þessu tvennu og
til enn frekari aögreiningar hefur
orðinu „visindalegt” veriö bætt'
framan viö nudd, og þá þarf eng-
inn aö vera i vafa um, viö hvaö er
átt.
Sviinn Engstrom, sem hefur
veitt Strombergnuddskólanum
forstööu i tuttugur ár, er meðal
þeirra, sem getiö er i skránni um
forstöðumenn háskóla i Kali-
forniu, og hann nýtur mikillar
virðingar fyrir starf sitt. Hann
leggur áherzlu á, aö þaö er eldra
fólk, sem einkum þarf á nuddi aö
halda, en ekki unglingar og ungt
fólk. I kennaraliöi Stromberg-
skólans eru læknar, hjókrunar-
konur, sálkönnuöir og nuddmenn
og nuddkonur. Námiö tekur 4
mánuöi — alls 200 kennslustundir
— og kostar 295 dollara. Aö prófi
loknu þarf nuddfólkið ekki aö
kviða atvinnuleysi.
Þaö er einkennilegt að sjá
þarna i Strombergskóianum
nemendur allt frá 18 ára aldri og
upp i sextugt i sama námi, en
þess ber aö geta, aö þeir eldri
eiga ekki i neinum erfiðleikum
meö að fá vinnu aö prófi loknu —
sizt erfiðara en þeir yngri. 57 ára
nýútskrifaöur nuddmaöur vinnur
til skiptist á þremur hvildarheim-
ilum fyrir gamalt fólk. Hann tek-
ur frá 10 dollurum fyrir 40 min-
útna nudd og hefur meira en nóg
að gera.
Hjá blaösölunum á götunum er
hægt að velja úr miklu úrvali
„heitra” timarita og blaöa, og i
smáauglýsingum þessara blaöa
er ýmislegt fróðlegt aö finna.
Sumir auglýsingadálkarnir eru
merktir meö nektarmyndum.
Dæmi um auglýsingar: 24 ára
og vel vaxinn karlmaöur býður
frúm og nýskildum konum upp á
morgunmök. — Hjálpið mér og
manninum minum! Viö þurfum á
ungri, laglegri og kynþokkafullri
stúlku aö halda til aö búa hjá okk-
ur. — Hvit kona óskar eftir vel á
sig komnum svörtum manni.
Maöurinn minn ætlar aö taka
myndir og horfa á — Ung hvit
stúlka óskar eftir lesbiskum vin-
konum. Litarháttur skiptir ekki
máli. — Berjandi ástmey: Æðis-
gengin stúlka tekur aö sér að
tuska til þurfandi pilta og stúlkur.
— Aðeins fyrir kátar stúlkur:
Huggulegur hvitur maöur, 33 ára,
stórkostlegur likami, allur vel á
sig kominn, óskar eftir vel sköp-
uöum stúlkum, sem þykir gott aö
fá hroll. — Hvitur maöur, 37 ára,
hreinlegur og heiöarlegur, veitir
karlmönnum á aldrinum 21-50 ára
munnþjónustu. A leiöinni i vinn -
una? I matarhléinu? Hvenær sem
er. Engin fikni- eöa deyfilyf. —
Sendiö 3 dollara og Anette sendir
yöur rakar og notaöar buxurnar
sinar.
Eins og sjá má er nóg aö velja
úr svo fólk þarf ekki að vera aö-
geröarlaust þess vegna. Og ekki
má gleyma atvinnuauglýsingun-
um, þar sem nuddstofurnar aug-
lýsa stööugt eftir nýjum stúlkum
og bjóða 800 til 1000 dollara á viku
i laun. — o —
Oliukreppan hefur ekki ein-
vöröungu oröiö til ills. Til dæmis
hefur hún oröiö til þess, að i Los
Angeles eru strætisvagnagjöld
oröin lægst i heimi. Til þess að
draga úr menguninni og fá’fólk til
þess að spara bensinið og skiija
bilinn eftir heima og nota i stað
þess almenningsvagna, aö
minnsta kosti i og úr vinnu, voru
gerðar,miklar og róttækar breyt-
ingar á strætisvagnakerfinu.
Strætisvagnagjöldin voru lækkuð
stórlega og nýjum vögnum bætt
við, og árangurinn varð sá, aö
fjárhagur strætisýagnamið-
stöövarinnar vænkaöist mjög. Nú
kostar ekki nema 25 sent að taka
strætisvagn frá Los Angeles til
Hollywood, Beverly Hills, Bur-
bank, Glendale, Pasadena og
annarra útborga. t Los Angeles er
hægt aö fara fram og aftur fyrir
25 sentin, og vilji fólk skipta um
vagn, kostar það ekki nema 10
sent aukalega. Aður en oliukrepp-
an skall á, kostaði rúman dollara
að aka frá Hollywood til Los
Angeles. Nú iðrast yfirvöld þess
sárlega, að hafa lagt niður spor-
vagnana. Og þetta á ekki aöeins
viö um Los Angeles. Viða annars
staöar hefur borið á þvi, að
meiri rækt sé lögð við almenn-
ingsvagnaþjónustu. Eftir að hafa
verið á göngu i 35 stiga hita er lika
hreinasta unun að koma inn i
svalan strætisvagn, þar sem loft-
ræstik^rfiö er fullkomið.
Bandarikjamenn hafa ætið lagt
sig i lima viö aö vera þægilegir i
viðmóti viö viöskiptavini sina, og
i öllum verzlunum og á öllum
veitingahúsum eru gestirnir
kvaddir með: Have a nice day,
nema á föstudögum, þá er kveðj-
an: Have a nice holiday.
Sums staðar eru skilti, sem
gestur i Hollywood kemst ekki hjá
að taka eftir, þvi aö þau eru svo
algeng. Þau eru aðallega á úti-
dyrarúöunni á kaffihúsum, bönk-
um og vöruhúsum. Þar stendur:
Berfættum bannaöur aðgangur!
og • Bannað aö bera mat inn i hús-
ið! Unglingarnir ganga sem sé
oftast nær berfættir, og i annarri
hendinni halda þeir á kókflösku
og popkornspoka, eða hamborg-
ara i hinni. Þaö er seinlegt aö
þrifa upp pappirspoka og ham-
borgarabréf, og berir fætur bera
enn meiri óhreinindi inn af göt-
unni en leðursólar.
1 öllum borgum eru margs kon-
ar hljóö, og öll höfum viö heyrt i
sirenum ameriskra lögreglubila,
slökkviliösbila og sjúkrabila i
sjónvarpsmyndum; En þeir gefa
frá sér fleiri hljóð, sem sjaldnast
heyrast i kvikmyndunum. Þau
eru ekki brúkuö, nema þegar
sjúkrabilarnir og slökkviliðsbil-
arnir nálgast fjölfarin gatnamót.
Þá hvin óskaplega I sírenunum,
og sá, sem ekki hrekkur I kút viö
þau hljóö, er áreiöanlega heyrn-
arlaus.
Annars gengur umferðin hægt
og reglulega, allir sýna fótgang-
andi vegfarendum tillitssemi, svo
og hver öörum og umferöarlög-
reglunni. Þegar ekiö er inn i
Hollywood, gefur lika aö lita
skilti, þar sem sagt er frá þvi, aö
meö ökuhraöa bllanna sé fylgzt I
radar og allir vita, aö þaö er gert.
t villuhverfinu Beverly Hills eru
gatnamót, þar sem sex akvegir
mætast. Þar eru enginn um-
ferðarljós, og þó er mjög sjald-
gæft, aö þar veröi slys. Allir nema
staöar, lita hver á annan, aka fá-
eina metra I einu og gefa hver
öörum merki um, hvort óhætt sé
aö halda áfram.
Ég vil ljúka þessari grein meö
þvi að segja frá setmngu, sem
krotuö var meö svörtu tússi á sæt-
iö fyrir framan mig i strætis-
vagni, sem ég tók einu sinni. Þar
stóö: „Rikir negrar hjálpa ekki
fátækum negrum. Hvers vegna?
Þeir hafa selt peningunum sál
sina.'*
En ætli rlkir hvítir menn hjálpi
fátækum hvltum?
8 VIKAN 46. TBL.