Vikan - 14.11.1974, Page 9
SEXNUDD i VATNSRÚMI
„Sexnudd í vatnsrúmi — rómverskt, franskt,
sænskt og japanskt nudd — samfaranudd — vara-
nudd — já, ekkert er til, sem þar er ekki auglýst
opinskátt. Kaupmannahöfn og Stokkhólmur eru
eins og kirkjur hjá þvi, sem þarna fer fram, en
kanarnir segja þó, að þaðan komi þeim hugmynd-
in”. Sjá siðari grein "Ake Egnell um Hollywood á
bls. 4-8.
VOGARSKALAR ASTARINNAR
„Vogarskálar ástarinnar eru sjaldan i jafnvægi.
Nær undantekningarlaust vegur ást annars
aðilans meira en hins. Oðrum megin er sá, sem
elskar, hinum megin sá, sem elskaður er”. Sjá
könnun fyrir ástfangna á bls. 32-33.
AKÆRÐ FYRIR
HIRÐULEYSI
” Stuttu eftir að Anni kom á næturvaktina, leit
hún inn til slösuðu stúlkunnar, sem henni þtítti lita
eðlilega út, þótt hún væri að visu i svolitlu upp-
námi. Niu stundum siðar var Gabriele Kruger lát-
in. Anni Stauber, 24 ára að aldri, var ákærð fyrir
hirðuleysi I starfi.” Sjá grein á bls. 17-19.
KÆRI LESANDI:
Húsaleiga hækkar stöðugt i
takt við verðbólguna, og eng-
inn er öfundsverður af þvi að
þurfa að taka húsnæði á leigu.
Vikan ákvað að kanna litils
háttar leigumál á
Stór-Reykjavikursvæðinu, og
þótt ekki sé hægt að segja, að
niðurstöður þeirrar könnunar
hafi komið mjög á óvart, eru
þær engu að siður fróðlegar.
Upphæðin, sem rennur skatt-
frjáls i vasa húseigandans, er
eidíi svo litil, en upphæðin ein
segir ekki allt. Réttur leigj-
andans — eða öllu heldur rétt-
leysi — er umhugsunarverður,
en einum viðmælenda okkar
varð að orði: Enginn er jafn
réttlaus og sá, sem leigir. Með
eftirfarandi tilvitnun viljum
við vekja athygli á efni blaðs-
ins á siðum 14-16:
,,Hjón með 10 ára dóttur
auglýstu nokkrum sinnum
eftir2ja til 4ra herbergja ibúð.
Þeim bárust allmörg svör við
auglýsingunum, og gegn svo-
felldri leigu: 2ja herbergja á
25.000 til 35.000 krónur á mán-
uði, 3ja herbergja á 25.000 til
40.000 krónur á mánuði og 4ra
herbergja á 35.000 til 60.000
krónur á mánuði.
Sömu aðilar kunnu að segja
frá ýmsu, sem þeir höfðu
reynt i leigumálum. Eitt sinn
leigðu þau ibúð i kjallara.
Húseigandi ákvað að setja
aukaútidyr á kjallarann og
braut i þvi skyni gat á kjall-
aravegg. Meðan gatið stóð op-
ið gerði stórrigningu með
þeim afleiðingum, að flaut inn
i kjallaraibúðina og innbú
leigjendanna stórskemmdist.
Bóta var krafist fyrir innbúið,
sem var óvátryggt, en kom
fyrir ekki. 1 annað skipti
leigðu þau ibúð, sem sögð var
vera með sérhita, en komust
að þvi, að nokkur herbergi i
kjallara hússins, sem voru
leigð einstaklingum, fengu
hita gegnum hitalögn ibúðar-
innar. Þau fengu enga leið-
réttingu á þessu og var sagt
upp húsnæðinu, þegar þau
kvörtuðu”.
VIKAN útgefandi: Hilmir h.f. Ritstjóri: Kristín Halldórsdóttir. Blaða-
menn: Matthildur Edwald, Trausti Olafsson, Þórdís Arnadóttir. útlits-
teikning: Þorbergur Kristinsson. Auglýsingastjóri: Sigríður ólafsdóttir.
Ritstjórn, Auglýsingar, afgreiðsla og dreif ing í Síðumúla 12. Símar 35320 —
35323. Pósthólf 533. Verð í lausasölu kr. 150.00. Áskriftarverð kr. 1.500.00
fyrir 13 tölublöð ársf jórðungslega eða 2.925.00 kr. fyrir 26 tölubloð hálfsár-
lega. Áskriftarverð greiðist fyrirfram. Gjalddagar: nóvember, febrúar,
maí, ágúst.
Vikan
46. tbl. 36. árg. 14. nóv. 1974
BLS. GREINAR
2 Sól, tungl og stjörnur. Sagt frá
spánska málaranum Joan Miró.
4 Hollywood, háborg vona og vöh-
brigða. Síðari hluti greinar eftir
sænska blaðamanninn Ake
Egnell.
14 Rán um hábjartan dag? Fjallað
um leigumál í .Reykjavík. ,
17 Löng næturvakt. Sagt frá þýskri
hjúkrunarkonu, sem hlaut dóm
fyrir vanrækslu I starfi.
28 Hinn nýi Caine, sagt frá kvik-
mynda leikaranum Michael
Caine.
32 Vogarskálar ástarinnar. Könnun
fyrir ástfangna.
SÓGUR:
20 Gatsby hinn mikli, framhalds-
saga, annar hluti.
26 Að f inna sjálfa sig, smásaga eftir
Vigdis Stokkelien.
30 Heim til pabba, sakamálasaga
eftir Sven Sörmark.
34 Franski arfurinn, framhalds-
saga, áttundi hluti.
24 SS, svolítið um sjónvarp. Viku-
dagskrá og kynning efnis.
10 Jólagetraun, annar hluti.
42 Endhús Vikunnar í umsjá Drafn-
ar H. Farestveit.
44 Gömulföt — nýtt tískufyrirbrigði,
þáttur í umsjá Evu Vilhelmsdótt-
ur.
46. TBL. VIKAN 9