Vikan


Vikan - 14.11.1974, Síða 14

Vikan - 14.11.1974, Síða 14
um hábjartan dag? Húsaleiga hækkar stöðugt i takt við verð- bólguna, og enginn er öfundsverður af þvi að þurfa að taka húsnæði á leigu. Við ákváðum að kanna litils háttar, hvað kostar að leigja á Stór-Reykjavikursvæð- inu, og okkur til halds og trausts höfðum við húsnæðisauglýsingarnar i Visi. Húsa- leigan er mörgum þyrnir i augum og ekki sist fyrir þá sök, að engum blandast hug- ur um, að með henni rennur stórfé i vasa húseigenda (leigusala), sem hvergi kem- ur fram á opinberum plöggum og er þvi skattfrjálsar tekjur. Upphæð húsaleig- unnar ein sér segir litið um húsaleigu- mál, a.m.k. ekki ef marka má orð eins viðmælenda okkar, sem augiýsti eftir ibúð á leigu: Enginn er jafnréttlaus og sá, sem leigir. húsnæðisins, sem leigja á. Þá kom einnig i ljós, að húsnæðið er sjaldnast til leigu nema i tiltölu- lega stuttan tima, svo að væntan- legir leigjendur mega fljótlega taka sig saman i andlitinu á nýjan leik og fletta Visi i von um að „detta niöur á Ibúð”. Rétt er að taka það fram, aö viö fórum einföldustu leiðina i hús- næðisleitinni, þ.e.a.s. kynntum okkur aðeins skilmála um þaö húsnæði, sem upplýsingar voru veittar um i sima, en létum vera að senda tilboð I leiguibúöir upp á von og óvon. Upplýsingarnar hér á siöunni eru þvi áreiðanlega til- tölulega sakleysislegar, hvað snertir verð á leiguhúsnæði, þvi að væntanlega er leiga á Ibúðum og ööru húsnæði, sem gera þarf tilboð I, allmiklu hærra, þvi að yfirleitt mun tfðkast aö hæstbjóð- andi hljóti þær. Þeir eru fáir, sem ekki hafa einhvern tima á ævinni þurft að taka ibúð á leigu og hafa þá staðið augliti til auglitis við sjálft húsa- leiguokriö, þetta hvimleiða fyrir- bæri þjóðlifsins, þar sem hvaö skýjastkemur fram, hve náunga- kærleikurinn er af skornum skammti hjá mörgum. Af ein- hverjum ástæðum hafa yfirvöld ekki látið máliö til sin taka að neinu marki, enda mun ekki heiglum hent að kveða niður þennan afspyrnuljóta draug vel- megunarþjóöf élagsins. En hvað ætli það kosti þá að taka fbúð á leigu á þessum siðustu og verstu timum? Smáauglýsing- arnar I VIsi hafa veriö kallaðar slagæð borgarinnar I gamni, en öllu gamni fylgir nokkur alvaraog þegar efnalltið fólk, sem ekki er búið að „koma undir sig fótun- um”, setur saman bú og hefur leit að húsnæði, bregöur það oft á það ráð að leita i auglýsingadálki Vis- is, sem hefur að yfirskrift: Hús- næði I boöi, þar sem auglýstar eru til leigu Ibúðir af öllum möguleg- um stærðum og gerðum. Og I þennan auglýsingadálk leituöum við á Vikunni einnig til þess aö fala okkur upplýsingar um, hvað það kostar að taka húsnæði á leigu um þessar mundir. Við rák- um okkur fljótlega á það, að verö- ið er ærið misjafnt, og virtist það ekki ævinlega fara eftir kostum Lltiö kjallaraherbergi miösvæðis milli Sjómannaskólans og Iön- fckólans til leigu frá næstu mánaðamótum. Uppl. I sima ■■kl. 5-7. Stærö: Liðlega 3x3 m, eöa 10 fer- metrar. Leiga á mánúði: Leigusali hugð- ist leigja á 4.000 krónur, en mun hærri upphæð hafði verið boðin, svo að likindi voru á 5—6.000 króna mánaöarleigu. Fyrirframgreiðsla: Hálfsárs- leiga. Leigutimi: Eitt ár, möguleiki á framlengingu. Annað: Sér inngangur og aðgang- ur aö sturtu. Meiri áhersla lögð á að fá reglusaman leigjanda en háa greiöslu. Hcrbergi til leigu i Arbæjar- hverfi. Æskilegt að leigjandi taki aö sér ræstingu. Uppl. I sima « Stærð: 8 fermetrar Leiga á mánuði: 3.000 krónur, eða ræsting á iþúð. Fyrirframgreiðsla: Engin. Leigutimi: Óákveðinn. Annað: 1 kjallara I fjölbýlishúsi. Hafnarfjöröur. 3ja-4ra herbergja ibúð til leigu frá 1. nóv. Leigist með isskáp og ljósum, litil fyrir- framgreiðsla. Uppl. i sima ■■■ kl . 6—10 e .h. Stærð: Rúmir 100 fermetrar. Leiga á mánuði: Lágmark 20.00C krónur. Fyrirframgreiösla: Samkomu- lag. Leigutimi: Eitt ár. Óframlengj- anleet. Hafnarfjöröur. Tveggja her- bergja ibúð til leigu. Tilboð óskast. Uppl. i sima dag og næstu daga. Stærð: Rúmir 70 fermetrar Leiga á mánuði: Samkomulag. Fyrirframgreiösla: Æskileg. Leigutimi. 6 mánuöir. Möguleik- ar á framlengingu. Annað: ibúðin er I raðhúsi. Leigusali kvaöst lítið kunnugur verði á leiguhúsnæöi og taldi, að leigutakar væru betur að sér um, hvað greiða skyldi i leigu fyrir ibúðina. Til leigu 2ja herbergja ibúð i fjöl- býlishúsi i Hafnarf. frá 1. okt. til 1. júni ’75. Fyrirframgreiðsla. Uppl. i sima ■ÉHcftir kl. 5. Stærö: 65 fermetrar. Leiga á mánuði: 15.000 kr. Fyrirframgreiösla: Sem mest. Leigutimi: 8 mánuðir. 14 VIKAN 46. TBL.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.