Vikan


Vikan - 14.11.1974, Síða 21

Vikan - 14.11.1974, Síða 21
2 Framhaldssaga vera næturgali, sem borizt hefur yfir hafiö meö Cunard eöa White Star skipunum. Hann var aö syngja: „Er það ekki rómantiskt, Tom.” — — Mjög rómantiskt, sagöi Tom og leit kindarlegur á svip til min. — Ef þaö veröur nógu bjart eftir matinn, langar mig aö taka þig með aö skoöa hesthúsin. Siminn hringdi fyrir innan á ný. öllum krossbrá, og þegar Daisy hristi höfuöiö aövarandi framan i Tom, gleymist ráöageröin varö- andi hesthúsin og allt annaö yfir- leitt. Af þvi fáa sem ég man eftir frá þeim fimm mínútum sem enn var setiö'undir boröum má nefna, aö kveikt var á kertunum aö nýju, án sýnilegrar ástæöu. Ég man lika eftir hve mig langaöi aö lita á hvern og einn viöstaddra og enn aö ég forðaðist að láta mér verða litiö í nokkurs manns augu. Ekki gat ég getið mér til um hugsanir þeirra Daisy og Tom. Mér er jafnvel til efs aö ungfrú Baker, sem þó sýndist ekki kippa sér upp við margt, hafi átt létt meö aö láta sem fimmti þátttakandi samkvæmisins, sá sem kvað sér hljóös i þessari málmgjöllu hringingu, væri hvergi nærri. Ýmsum kynni að hafa þótt ástandiö spennandi, en sjálfum var mér þannig innanbrjósts, aö ég hefði viljað hringja á lögreglu, þegar i stað. óþarfi er að nefna að á hesta var ekki minnst aö nýju. Tom og ungfrú Baker gengu inn i bóka- safnið, meö nokkurra feta bil á milli sin af mjúku rökkri, — þaö var eins og þau ætluöu að fara aö vaka yfir llki. Ég gerði mig bros- mildan og fhugandi I framan og fylgdi Daisy út á langa verönd, sem náöi út að dyraskýlinu. t skugga þess settumst við niöur á bekk. — Daisy fór höndum um andlit sér, likt og hún vildi þreifa á hinni fögru lögun þess, og hún leit flöktandi augum út i rökkrið. Mér duldist ekki aö hún var i miklu uppnámi og ég tók þann kost aö spyrja hana nokkurra spurninga um litlu telpuna hennar. Ég hélt aö slikt yrði henni til hug- svölunar. — Við þekkjum hvort annað ekki mikið, Nick, sagði hún allt. i einu. — Jafnvel þótt við séum frænd- systkin. — Þú komst ekki i brúð- kaupið mitt. — Ég var ekki kominn til baka frá vigstöðvunum. — Það er satt. Hún hikaöi. — Jæja, mér heíur liöiö skelfing illa, Nick, óg ég er oröin svo vantrúuö á allt og alla. Aug'ijóslega hafði hún ástæðu til þess. Ég beið eftir að hún segði fleir;., en þegar hún bara þagði, vé'. ég talinu sem varlegast að aóttur hennar á ný. — Ég býst viö að hún sé farin að tala, — og borða, já, og allt það? — Ó, já, já. Hún leit á mig f jar- huga. — Heyröu Nick, lof mér að segja þér hvað ég sagði, þegar hún fæddist. Viltu heyra það? — Með ánægju. — Það er dæmi um það hvernig ég bregst viö hlutunum. Sko hún var minna en klukkutima gömul, og guð má vita hvar Tom var niður kominn. Ég vaknaði af svæfingunni og fannst ég svo voöalega einmana, og ég spuröi hjukrunarkonuna undir eins, hvort þaö væri drengur eöa telpa. Hún sagöi mér að það væri telpa, og þá sneri ég höfði til veggjar og grét. — Allt i lagi, sagði ég, — ég er glöö að það var telpa. Og ég vona að hún verði heimsk, þvl það er það bezta, sem fyrir stúlku getur komið á þessari jörð, — að vera fallegur litill heimskingi. — Þú sérö að mér finnst allt einskis nýtt, hélt hún áfram meö sannfæringu i röddinni. — Og allir hugsa svona, — allt fólk, sem mark er takandi á. Og ég ætti aö vita þaö. Ég er búin að vera alls staðar og sjá allt og gera allt. Hún litaðist um með ögrandi augna- ráði, sem minnti á Tom, og hún hló, skærum fyrirlitningarhlátri. — Lifsreynd, — ó guð, ég er svo lifsreynd! A þvi andartaki, þegar hún hætti að tala, hætti aö þröngva mér til að hlusta á sig og til að trúa sér, heyrði ég hinn hola hljóm óeinlægninnar I öllu þvl, sem hún haföi sagt. Ég gerðist órólegur og fannst að mér hefði veriö boðið hingað til þess eins að gera mig að ábyrgðarmanni hug- mynda þeirra um sig sjálf. Ég beið um stund, og sjá, — að andartaki liðnu leit hún á mig meö yndislegt bros á andlitinu, viss um aö hafa tryggt sér sess I augum minum, sem einstak- lingur i afar ágætum og sérstökum hópi, — hópi sem þau, — Tom og hún heyrðu til. 0 Bleiki salurinn var baöaöur birtu. Tom og ungfrú Baker sátu hvort á sinum enda stóra legu- bekkjarins, og hún las upphátt fyrir hann úr Saturday Evening Post, — orðin runnu saman i suöandi blæbrigöalausa slfellu. Lampaljósið féll skært á stlgvél Tom, en varpaöi daufri slikju á hár ungfrú Baker, sem var gult, eins og haustlaufiö. Það blikaði á pappirinn, þegar hún fletti blaöinu, um leiö og hreyfingu brá fyrir I grönnum vöðva á handlegg hennar. Þegar viö komum inn, gerði hún okkur merki um aö þegja, með aö lyfta hendi. — Framhald sagði hún og varpaöi timaritinu á borðið, — strax I næsta blaðL_ Hún réttist i sæti og stóð óþolin- móð á fætur. Huréír! Við höfum nú tekiö i notkun nýja huröar- verksmiöju aö Skeifunni 19, og getum þvi boöiö yöur innihuröir á hagstæöu veröi og meö stuttum afgreiðslufresti. Fullkomnar vélar tryggja 1. flokks framleiöslu !■ w TIMBURVERZLUNIN VÖLUNDUR HF. KUPPARSTÍG1 ® 18430 - SKEIHiN 19 “2? 85244 €.. 46. TBL. VIKAN 21

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.