Vikan


Vikan - 14.11.1974, Side 22

Vikan - 14.11.1974, Side 22
— Klukkan er tlu, sagði hún, eins og hún hefði fengið vitrun. — Tlmi til kominn fyrir þessa góðu konu að fara að hátta. — Jordan ætlar að taka þátt I keppninni á morgun, yfir I West- chester, sagði Daisy, sem til út- skýringar. — Ó, — svo að þér eruð Jordan Baker. Nú vissi ég hvers vegna andlit hennar hafði komið mér svo kunnuglega fyrir sjónir, — fagran og þóttafullan svip þess hafði ég séð horfa á mig, af myndasiðum fjölda iþróttablaða, þar sem gréindi frá kappleikjum i Ash- ville, Hot Springs og Palm Beach. Einnig hafði ég heyrt einhverja sögu um hana, illgjarna, óskemmtilega sögu, sem ég var löngu búinn að gleyma. — Góða nótt, sagði hún mjúkmál. — Vekið mig klukkan átta, ef þið viljið vera svo góð. — Ef þú ferð þá á fætur. — Eg fer á fætur. Góða nótt, herra Carraway. Sé þig fljótt aftur. — Auðvitað, sagði Daisy fullvissandi. — Satt að segja er ég að hugsa um að láta ykkur giftast. Komdu sem oftast hingað yfir, Nick, og ég skal — já — koma ykkur saman. Ég ætla að læsa ykkur inni i tauklefanum — fyrir slysni, skilurðu — og setja ykkur á rek i bátnum úti á sjó, já, og fleira i þeim dúr. — Góða nótt, kallaði ungfrú Baker úr stigaþrepunum. — Ég heyrði auðvitað ekki eitt orð af þessu. — Indælis stúlka, sagði Tom þau ættu ekki að láta hana flækjast um landið eins og hún gerir. — Hverjir ættu ekki að láta hana gera það? spurði Daisy kuldalega. — Fjölskylda hennar. — Fjölskylda hennar er nú ekki meira en ein einasta, frænka á þúsundasta aldursári. Svo ætlar Nick að fara að taka hana að sér, — ekki satt, Nick. Hún ætlar sér að dveljast hér margar helgar i sumar. Ég býst við að hún hafi gott af að kynnast heimilis- andanum hérna. Daisy og Tom horfðu þegjandi hvort á annað litla stund. — Er hún frá New York? flýtti ég mér að spyrja. — Frá Louisville. Við lékum okkur þar saman sem smáagnir. Það var svo indælt. .. —- Tókst þér ekki að fá Nick til viðræðu við þig um málefni hjartans, úti á veröndinni? spurði Tom óvænt. — Mig? Hún leit til min. — Ég man varla um hvað við vorum að tala, ég held að við höfum rætt um norræna kynþáttinn. Já, alveg rétt, það var vegna þess að það barst i tal, skilurðu... — Trúðu ekki öllu sem þér er sagt, Nick, aðvaraði Tom mig. Ég brá i létt hjal og sagðist ekkert markvert hafa heyrt, og nokkrum minútum siðar stóð ég upp og hélt heimleiðis. Þau komu með mér til dyra og stóðu hlið við hlið I björtum ljósferningi úti- dyranna. Þegar ég hafði ræst bilvélina, mátti Daisy til aö kalla til min: — Biddu við! — Ég gleymdi að spyrja þig að dálitlu, sem ég verð að fá að vita. Viö höfum heyrt að þú sért trúlofaður stúlku vestur frá. — Þaö er rétt, sagði Tom vin- gjarnlega og tók undir þetta. — Við höfum heyrt að þú sért trúlof- aður. — Þaö er blaður. Ég er of blankur. — En við höfum heyrt það samt, þráttaði Daisy og kom mér enn á óvart með að breiða við mér innileik hjarta sins, eins og blóm- krónu. — Við höfum heyrt það á þrem stöðum, svo það hlýtur að vera satt. Auðvitað vissi ég hver kveikja sögunnar var, en því fór alls fjarri að ég væri trúlofaður. Sú staðreynd að almannarómurinn haföi gefið út fréttatilkynningu um trúlofun mina, var lika ein orsök þess að ég haföi haldið austur eftir. Að visu var ástæöu- laust aö hætta að hitta vinkonu sina vegna umtalsins eins saman, en á hinn bóginn ætlaði ég ekki að láta kjafta mig inn i hjónaband. Ahugi þeirra á sliku efni hafði samt sin áhrif á mig og fyrir bragðið þótti mér auðmanns- bragurinn á þeim ekki jafn mikill og fyrr£n hvað sem þvi leið, — ég var ruglaður og leiður i skapi, þegar ég ók á brott. Mér þótti sem Daisy gæti ekki annað betra gert en koma sér burt úr þessu húsi með barnið á örmum sér, þótt augljóst væri að engar slikar ráðagerðir sæktu á hug hennar. Hvað Tom snerti, þá þótti mér það minna undrunarefni að hann hefði komið sér upp kvenmanni i New York, en að bók skyldi hafa orðið þess umkomin að setja hann úr jafnvægi. Af einhverjum orsökum hafði hann farið að reka nefið I þessa geldu hugmynda- fræði, eins og vessar meðfæddrar sjálfsánægju hans, hrykkju ekki til að næra hégómagirnd hjartans. Sumarið mókti á þökum húsanna meðfram veginum og framan við bilskúrana, þar sem nýjar rauðmálaðar benzindælur stóðu sveipaðar rafljósi. Þegar ég kom að heimili minu að Vestra Eggi ók ég bilnum heim undir og settist um stund á aflóga túnvaltara á flötinni. Vindinn hafði lægt og næturhimininn hvelfdist ljómandi yfir mér. Vængjasláttur likt og orgelspil heyrðist milli trjágreina og sam- fellt hljóð, sem vitnaði um að ferskur andardráttur jarðarinnar hefði blásið froskana út af orku. Skuggamynd kattar á hreyfingu leið hjá úti i tunglsljósinu, og þegar ég vék mér til, svo ég gæti fylgst með henni, sá ég að ég var ekki einn hér, — fimmtiu fet i burtu hafði einhver komið út úr skugganum af húsi nágranna mins og stóð nú með hendur i vösum og virti fyrir sér silfrað tindur stjarnanna. Sitthvað i hæg- látu fasi hans og það hve húsbóndalega hann bar sig þarna. á hlaðinu, benti til að hér væri Gatsby sjálfur á ferö, kominn að segja til um hve stór hluti væri hans, af sameiginlegri himinsýn okkar. Ég ákvað að heilsa upp á hann. Ungfrú Baker hafði minnst á hann við matarborðið og það átti að nægja til að kynna okkur. En ég kallaði ekki til hans, þvi hann gaf snögglega visbendingu um að hann væri sjálfum sér nógur þessa stundina, — hann breiddi út faöminn I átt til hins dökka sjávar á sérkennilegan hátt, og þótt ég stæði góðan spöl frá honum, er ég fús til aö leggja eiö út á að hann skalf. Ósjálfrátt varö mér litiö út á sjóinn, — og sá ekkert nema eitt grænt ljós, örlitið og óraveg i burtu, — gæti hafa veriö á einhverri bryggju. Þegar ég gáði aftur að Gatsby var hann horfinn, og ég stóð einn og'ráðvilltur eftir i myrkrinu. II.KAFLl A akveginum, miðja vegu milli Vestra Eggs og New York, kemur vegfarandinn skyndilega aö járn- brautarteinunum og meöfram þeim liggur vegurinn um þaö bil hálfa milu. Þetta er tilhögun, sem virðist gerð i þvi skyni að sneiða hjá eyðilandflæmi nokkru. Þetta er dalverpi, fullt af ösku, kostuleg jörö, þvi aö askan sýnist Hagkvæmt er heimanám Nú fer í hönd ágætur tími til heimanáms. Bréfaskólinn veitir kennslu á fimm áhugasviðum með um fjörutíu námsgreinum. Eitt þeirra er: FÉLAGSMÁLASVIÐ Sálar- og uppeldisfræði. 4. brél. Námsgjald 1.100.00. Saga samvinnuhreyfingarinnar. 8 bréf og þrjár fræðslubækur. Námsgjald 1.200.00. Áfengismál I. 3 bréf um áfengismál frá fræðilegu sjónarmiði. Námsgjald 800.00. Fundarstjórn og fundarreglur. 3 bréf. Námsgjald 1.100.00. Bókhald verkalýðsfélaga. 4 bréf ásamt færslubókum og eyðu- blöðum. Námsgjald 1.000.00. Staða kvenna í heimili og þjóðfélagi. 4 bréf. Námsgjald 1.100.00. Lærið á réttan hátt. 4 bréf um námstækni. Námsgjald 1.100.00. Hagræðing og vinnurannsóknir. 4 bréf. Námsgjald 1.100.00. Skipulag og starfshættir samvinnuféiaga. 5 bréf. Námsgjald 800.00. Póstið úrklippuna vel útfyllta — eða komið, hringið, skrifið — og skólinn sendir yður allar nánari upplýs- ingar. Undirritaður óskar að gerast nemandi í eftirt. námsgr. □ Vinsaml. sendið gegn póstkröfu □ Greiðsla hjálögð kr.... (Nafn) (Heimilisfang) Klippið auglýsinguna úr blaóinu og geymið! Bréfaskóli SÍS & ASÍ SUÐURLANDSBRAUT32 REYKJAVÍK SÍMI 81255 22 VIKAN 46. TBL.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.