Vikan


Vikan - 14.11.1974, Síða 23

Vikan - 14.11.1974, Síða 23
spretta þar eins og hveiti, og hefst hún í hryggjum og hólum og myndar undarlega garða: þarna á askan lika til að taka á sig mynd húsa og reykháfa og reykja- bólstra, já, og ennfremur, sé grannt að gáð, öskugrárra mann- vera, sem þokast eða skriða i gegn um mistrið. Fyrir kemur að röð grárra bila sést ramba eftir einhverri ósýnilegri braut. Fra þeim heyrist stundum voðalegt iskur, þeir stanza og öskugráu karlarnir hlaupa til með blýgráar skóflur og þyrla upp öskukófi, svo þykku, að hvergi sér i gegn, og hverfa þessar kynlegu aðfarir þeirra þar með sjónum manns. En yfir þessu graa -landi og bleikum rykbólstrunum, sem rekur fram og til baka yfir þvi, koma menn að andartaki liðnu auga á sjónir Eckleburgs læknis. Augu Eckleburgs eru heiðblá og risastór, — lithimnan er metri á hæö. Þessi augu eru ekki staðsett I neinu andliti, en horfa þess i stað i gegn um feiknamiklar gular nef- klemmur, sem festareru á ósýni- legt nef. Augljóslega hefur einhver æringi úr stétt gleraugnasmiða komið þeim þarna fyrir, til að glæða viðskipti sin i næsta bæ. Að þvi loknu hefur hann kannski orðið blindur, eða flutt i burtu og gleymt þessu skrauti. En augu hans merkt af löngum dögum vanhirðu i sól og regni, halda áfram að horfa igrundandi yfir hið guðsvolaöa svæöi. öskudalurinn takmarkast til einnar hliðar af gruggugri ársprænu, og þegar vindubrýrnar eru reistar upp til að hleypa flutningaprömmum i gegn, geta farþegar i lestum þeim, sem biða verða á meðan, virt fyrir sér fyrirgreint ömurlegt útsyni, — stundum hálfa klukkustund i einu. Þarna er aldrei numið staðar skemur en i minútu og var það af þeim sökum að ég hitti hjákonu Tom Buchhanan fyrst. Sú staðreynd að hann átti sér hjákonu var kunn öllum, sem hann þekktu. Kunningjum hans var það sifelld skapraun, þegar hann birtist með henni á fjöl- sóttum kaffihúsum, og lét hana eina eftir við borð sitt, meðan hann ráfaði um og masaði við alla sem hann var eitthvað kunnur. Þótt mér léki forvitni á að sjá hana, bar ég samt enga löngun i brjósti til að hitta hana að máli, — en þó fór það svo. Dag nokkurn, siðdegis, fór ég til New York i lestinni ásamt Tom, og þegar við stönzuðum hjá öskuhrúgunum, stökk hann á fætur og greip um handlegg minn. Hann næstum hrakti mig út úr kleíanum. — Hér förum við út, sagði hann. — Ég ætla að sýna þér stúlkuna mina. Ég býst við að hann hafi fengið sér neðan i þvi eftir miðdegis- verðinn, þvi ásetningur hans var svo eindreginn að tryggja sér fylgd mina, að næst gekk ofbeldi. Hann sló þvi fyrir með vanalegu yfirlæti að á sunnudagskvöldi hefði ég ekki annað betra við timann að gera. Framhald i næsta blaöi Canon Ef þér kaupið Canon- vasavéþ þá er ekki tjaldað til einnar nætur. Einkaumboð/ varahlutir, ábyrgð og þjónusta. Sendum i póstkröfu Skrifvélin Suðurlandsbraut 12, sími 85277. í stað Datsun 1200 er komin ný gerð, sem kallast i Evrópu Datsun 120 Y. Tæknilega er um sömu bifreiðina að ræða. Datsun 510 var kallaður i Evrópu Datsun 1600 og er komin ný gerð af honum, sem er Datsun 160 J. Þó ótrúlegt sé, eru á þeirri gerð margar tæknilegar endur- bætur. Datsun 180 B, kallast i Ameriku Datsun 610. Er þetta með allra bestu bifreiðum, sem nú eru fáanlegar. Getum afgreitt allar gerðir Datsun-bifreiða með hálfs mánaðar fyrirvara. _____________________Einkaumboð fyrir Datsun á íslandi. INGVAR HELGASON, Vonarlandi v/Sogaveg, simi 84510 — 84511. 46. TBL. VIKAN 23

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.