Vikan


Vikan - 14.11.1974, Page 26

Vikan - 14.11.1974, Page 26
Smásaga eftir Vigdis Stokkelien Þau sátu úti við ströndina, og Eva fékk gæsahúð af óþolinmæði og vansælu. Hana langaði til að standa upp og hlaupa og hlaupa. Svo kveikti hún sér i sigarettu og dró reykinn djúpt að sér, fór I vasa sinn eftir púðurdósinni og varalitnum. Hún skerpti litinn á vörum sér. Hann tók eftir þvi, að hún var óánægð. Hann teiknaði eitthvað — múkki flaug yfir auðan sjó — svo kveikti hann sér lika i sigarettu. — Af hverju ferðu ekki i göngu- ferð? spurði hann. Hún horfði unt öxl sér á hvita klettana, sneri sér svo við aftur og horfði niður á grýtta ströndina, þar sem brimaði. • — Hvert? spurði hún hvassyrt. • — Nú, hvert sem er. Hann hrukkaði ennið og varð sjálfur óþolinmóður. Hann páraði eitthvað á blaðið, og um stund var eins og skissan fengi sitt eigið dulúðga lif. Múkkinn flaug upp i storminn. Svo þurrkaði hann myndina út, og skissan varð aftur liflaus. — Við getum farið saman, sagði hann. Hún klifraði á undan niður á ströndina og fann, hvernig eggja- grjótið skarst upp i fæturna. Hún varð að nema staðar og hvila sig. Fjallið var eins og múrveggur að baki henni. Múrveggur, sem náði alveg upp i dimm og drunga- leg skýin. Eins og endranær, þegar hún þurfti að klifra niður á við, fann hún til óttablandinnar undrunar yfir villtri náttúrunni. Jon kom á eftir henni. Hann greip einnig andann á lofti, en svo lenti hann i vandræðum. Teikni- blokkin stóð upp úr vasa hans og teikniblýanturinn festist I brjóst- vasanum. Hann bisaðist við að losa hann. Hún nam staðar I flæðar- — Ertu svona bitur? hafði hann sagt, þegar hann virti fyrir sér eina myndina hennar. Hún var af konu, sem ók barni sinu i vagni á bamaheimilið. Heiti myndarinnar var: Fráskilin. — Bitur? Nei, hafði hún svarað. — Ég lýsi bara þvi, sem ég sé. málinu. Skýin þutu yfir I áttina til hafsins, sem skall á grýttri ströndinni. Lengst úti var fiski- bátur á leið til hafnar. Allt i einu fór að rigna. Skúrin dembdist yfir þau. Jon dró hana i skjól I helli, strauk regndropana af kinnum hennar, varir hans leituðu hennar. Það var gott að finna likama hans við sinn, og hann muldraði þessi venjulegu gamal- dags orð. Hún lokaði augunum, en ástar- atlot hans vöktu engar kenndir með henni. Kannski fann hann það, þvi að hann breiddi úr regn- frakkanum sinum, bauð henni sæti, kveikti i tveimur sigarettum og rétti henni aðra. Þau sátu inni i hellinum i skjóli fyrir regninu, og hún fylgdi regn- dropunum við hellismunnann með augunum. Þeir söfnuðust saman og mynduðu svolitinn farveg á leiö sinni til sjávar. Brim var, og hún fann saltkeiminn i vitum sér. Hann strauk hönd hennar varlega. Hún ætlaði að draga höndina að sér, en hann hélt henni fast I sinni. — Eva, ég verð að tala við þig. Hún fann gamalkunna, næstum gleymda hlýju i hjarta sinu við hreiminn i rödd hans, þegar hann sagði þetta, en þétt handtak hans vakti einungis andúð hennar. — Eva, ég verð að tala við þig. 26 VIKAN 46. TBL.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.